Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Síða 29
gott af sér leiða í heimi sem er honum
alls ekki hliðhollur. Að sama skapi sér
Sephy óréttlætið en talar fyrir dauf-
um eyrum. Hennar megin múrsins
skilur enginn hvers vegna það hvarfl-
ar að henni að taka svona niður fyrir
sig. Á götum úti kraumar reiðin, upp-
þot eru í aðsigi og áður en þau vita
eru Callum og Sephy í bráðri hættu.
Nútíma Rómeó og Júlía
Rómeó og Júlía, hugsar nú ugglaust
einhver. Ungir og bláeygir elskend-
ur, sameinaðir af ást en sundrað af
samfélaginu. Og jú, Malorie Black-
man, höfundur skáldsagnanna sem
þættirnir byggjast á, gengst fúslega
við því að Noughts + Crosses sé
hennar útgáfa af hinni ódauðlegu
ástarsögu Shakespeares. En um leið
snörp ádeila á samfélag sem lætur
kynþáttamisrétti líðast.
Blackman er sjálf svört og hefur
lengi verið málefnið hugleikið en
meira en tveir áratugir eru síðan
fyrsta bókin í bókaflokknum kom út.
Í hennar huga hefur þó ekki mikið
breyst í millitíðinni og fyrir vikið eigi
sjónvarpsþættirnir brýnt erindi.
Oft er sagt að fólk eigi erfitt með
að setja sig í spor annarra; nema þá
að hreinlega vera þar. Þetta er leik-
konunni Kiké Brimah, sem fer með
hlutverk Minervu, hinnar illskeyttu
eldri systur Sephy í þáttunum, of-
arlega í huga í samtali við breska
blaðið The Guardian. „Von mín er sú
að þættirnir nái til Claire frá Devon
– það er fólks sem hefur enga tilfinn-
ingu fyrir reynslu af þessu tagi.
Fólki á að líða illa meðan það horfir á
þættina. Til þess að skilja sjónarmið
annarra, þarftu að hafa gengið í
gegnum það sama.“
Breski leikarinn Jack Rowan,
sem leikur Callum, viðurkennir að
hann hafi ekki þekkt til bóka Black-
mans en kveðst hafa fallið fyrir
þeim um leið og hann las þær. „Ég
skildi um leið hvers vegna þær
höfðu svona mikil áhrif. Að fá tæki-
færi til að vinna að einhverju sem
hefur haft svona djúpstæð áhrif á
svo marga var eins og ljóðlist í mín-
um huga,“ segir hann við The Gu-
ardian.
Enda þótt ástarsagan sé miðlæg
glíma þættirnir við kynþátta-
fordóma á breiðari grunni. Ungir
hvítir menn eru undir smásjánni og
þeldökkir lögreglumenn láta þá hafa
það óþvegið; lemja þá eins og harð-
fisk með kylfum og skyrpa út úr sér
niðrandi orði um kynþáttinn, sem í
þessu tilfelli er „blanker“.
„Því miður benda staðreyndir til
þess að hatursglæpir í Bretlandi hafi
ekki í annan tíma verið fleiri en nú,
þar sem fólk er dæmt út frá húðlit
sínum, trúarbrögðum eða kyn-
hneigð,“ segir Blackman. „Svo virð-
ist sem árangur hafi náðst varðandi
upplýsingaflæði og þekkingu gagn-
vart annarskonar menningu en eigi
að síður líta sumir því miður svo á
full ástæða sé til að óttast og varast
alla sem eru öðruvísi en þeir. Það er
synd og skömm.“
Teknir upp í Suður-Afríku
Suður-afríska leikkonan Masali Ba-
duza fer með hlutverk Sephy en
þættirnir voru einmitt teknir að
stórum hluta upp í heimalandi henn-
ar. Hugmyndin mun hafa verið að
tengja sem best við menningu
svartra. Tungumálið, tónlistin, lýs-
ingin, búningarnir og förðunin hafa
öll þann tilgang að undirstrika hinn
öfugsnúna heim; hvort sem við erum
að tala um hina ákjósanlegu fegurð,
yfirburði afrískrar menningar eða
einfaldlega bara hvernig fólk heilsar
hvað öðru.
Baduza viðurkennir að hún hafi
haft mjög gaman af þessu. „Það var
frábært að halda upp á okkar menn-
ingu með þessum hætti,“ segir hún
við The Guardian. „Allt frá leik-
munum yfir í búningana og hárið.
Allt var þetta svart og afrískt án
þess að biðjast afsökunar á því. Það
var gaman að taka þátt í því. Afríka
var normið við tökurnar og það
hjálpaði mér að líða vel.“
Kiké Brimah tekur undir það.
Merkilegt hafi verið að sjá svo
margt hörundsdökkt fólk í einu og
sama herberginu „og öll vorum við
valdamikil og tigin“.
Mögulega verður upplifunin und-
arlegri fyrir þá sem eru fölir á hör-
und. „Ég vona að fólk læri af þessu
og að þetta hjálpi fólki að sjá annað
fólk sem líkist því ekki í útliti,“ segir
Jack Rowan. „Ég vona að þetta
kenni einhverjum eitthvað nýtt um
kynþáttafordóma og að þeir geti
sagt á eftir: Nú skil ég.“
Masali Baduza og Jack
Rowan í hlutverkum elsk-
endanna Sephy og Callum.
BBC
15.3. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
SJÓNVARP Reese Witherspoon fer
mikinn í míníseríum í sjónvarpi um
þessar mundir. Big Little Lies sló í
gegn og nú er komið að Little Fires
Everywhere sem efnisveitan Hulu
frumsýnir í næstu viku, en þeir
þættir byggja á samnefndri skáld-
sögu eftir Celeste Ng frá 2017. Líkt
og Big Little Lies er Little Fires
Everywhere stútfull af bitastæðum
kvenhlutverkum og ógurlegum
leyndarmálum. Witherspoon leikur
móður og út á við virðist fjölskylda
hennar fullkomin. Kunnuglegt?
Witherspoon í nýjum þáttum
Reese
Witherspoon
leikur móður.
AFP
BÓKSALA 4.-10. MARS
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Glæpur við fæðingu Trevor Noah
2 Andlitslausa konan Jónína Leósdóttir
3 Brúin yfir Tangagötuna Eiríkur Örn Norðdahl
4 Fórnarlamb 2117 Jussi Adler-Olsen
5 Blekkingaleikur Kristina Ohlsson
6 Úlfakreppa B.A. Paris
7 Ennþá ég Jojo Moyes
8 Hvítt haf Roy Jacobsen
9 Independent People Halldór Laxness
10
Konan sem datt upp
stigann
Inga Dagný Eydal
1
Sombína og dularfulla
hvarfið
Barbara Cantini
2 Dularfulla símahvarfið Brynhildur Þórarinsdóttir
3 Kepler 62 – leyndarmálið Bjørn Sortland
4 Tinni – ferðin til tunglsins Hergé
5
Georg og magnaða
mixtúran
Roald Dahl
6 BFG kilja Roald Dahl
7
Tinni – í myrkum
mánafjöllum
Hergé
8
Harry Potter og
viskusteininn
J.K. Rowling
9 Langelstur að eilífu Bergrún Íris Sævarsdóttir
10
Orri óstöðvandi
– hefnd glæponanna
Bjarni Fritzson
Allar bækur
Barnabækur
Undanfarin ár hef ég markvisst
verið að lesa meira. Ég var mikill
lestrarhestur sem barn en í kring-
um unglingsaldurinn (sjónvarp í
fermingargjöf) fór lestrarstund-
unum fækkandi. Fyrir 3 árum hins
vegar setti ég mér
það markmið að
hætta að sofa með
símann í herberg-
inu mínu, gerði
mér sérferð til að
kaupa vekj-
araklukku og les
núna fyrir svefninn
í stað þess að fara
heilalaust í gegnum hvers kyns
samfélagsmiðla. Mæli virkilega
með þessu, þú sefur betur.
Sú bók sem hefur haft hve
mestu áhrifin á mig er bókin
SELD sem ég fann í bókahillu
eldri systur minnar þegar ég var
11 ára. Ég var klárlega of ung til
að lesa hana þar sem ég skildi
ekki allt en hef lesið hana oft síð-
ar. Hún fjallar um systur, Zönu 15
ára og Nadiu 14 ára, sem búa í
Englandi með for-
eldrum sínum,
enskri móður og
föður frá Jemen.
Eitt sumarið eiga
þær að fá að fara í
draumafríið að
heimsækja ömmu
og afa í Jemen.
Þær fara þangað einar en þegar
þær mæta á svæðið þá kemur í
ljós að pabbi þeirra hafði selt þær
í hjónaband. Zönu tekst að sleppa
frá Jemen eftir 8 ár en þurfti að
skilja son sinn eftir. Nadia varð
eftir í Jemen ásamt börnum sín-
um og er þar enn. Þessi bók
snerti mig og ég átti svo erfitt
með að sætta mig við þessi örlög
þeirra (og á það enn!).
Í fyrra tók ég svo þátt í bóka-
áskorun þar sem átti að lesa 26
bækur sem uppfylltu alls kyns
kröfur (fyrsta bók höfundar, bók
sem gerist á stað sem þú átt eftir
að heimsækja o.s.frv.). Mér gekk
ekkert sérstaklega vel að klára
flokkana þar sem
ég les aðallega
glæpasögur en
tókst samt næst-
um því að klára
uppsettan bóka-
fjölda. Þetta víkk-
aði líka sjóndeild-
arhringinn og ég
heyrði um bækur
sem ég hefði annars aldrei vitað
af og af og til læddust inn bækur
sem fjölluðu ekki um morð. Til
að mynda bókin Villt sem er
sjálfsævisaga Cheryl Strayed, en
22 ára gekk hún ein síns liðs
Kambaslóðina (the Pacific
Crest).
Núna er ég að lesa bókina Kon-
an í glugganum eftir A.J. Finn
sem fjallar um sálfræðinginn
Önnu Fox sem
hefur ekki stigið
út undir bert loft í
10 mánuði vegna
víðáttufælni. Bíð
spennt eftir að sjá
hvernig þetta fer
allt saman.
Næstu bækur
sem mig langar að
lesa eru Svínshöfuð eftir Berg-
þóru Snæbjörnsdóttur og Kokkáll
eftir Dóra DNA. Geri samt ráð
fyrir að einhverjir krimmar læðist
inn á undan og á eftir.
ÓLÍNA KRISTÍN ER AÐ LESA
Sef betur eftir bóklestur
Ólína Kristín
Sigurgeirs-
dóttir er verk-
fræðingur hjá
Icelandair.