Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Síða 22
Taílensk núðlusúpa
Fyrir 5
2 msk. rifið eða smátt saxað engifer
3 hvítlauksrif, smátt söxuð eða rifin
1 msk. chillimauk, t.d. Sambal oelek
1 msk. rautt karrímauk
1 búnt kóríander, stilkar/neðri helmingur
skorinn frá og smátt saxað, blöð geymd
þar til síðar
1 msk. púðursykur
1 laukur, skorinn í strimla
800 ml kókosmjólk (2 dósir eða fernur)
1,5 l vatn
2 msk. kjúklinga- eða grænmetiskraftur
safi úr einni límónu
3 kjúklingabringur, skornar í þunna
strimla
100-150 g þurrkaðar eggjanúðlur
salt og pipar
olía til steikingar, t.d. kókosolía
Setjið tvær matskeiðar af olíu í stóran
pott og steikið hvítlauk, engifer, chilli-
mauk og karrímauk í 1-2 mínútur.
Bætið þá smátt söxuðum kóríander
út í ásamt púðursykri og lauknum og
steikið aðeins áfram. Hellið kókos-
mjólk og vatni saman við, hleypið upp
suðu og kryddið með grænmetis- og/
eða kjúklingakrafti, salti og pipar og
kreistið safann úr límónunni út í.
Smakkið ykkur áfram með salti,
pipar, chillimauki og krafti þar til súp-
an er eins og þið viljið hafa hana.
Setjið kjúklingastrimlana hráa út í
súpuna og látið sjóða í 5 mínútur,
bætið þá núðlunum út í og sjóðið eins
og þarf þar til þær eru eldaðar í gegn.
Berið fram með ferskum kóríander-
laufum og límónubátum.
Frá eldhusperlur.com.
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.3. 2020
LÍFSSTÍLL
Smiðshöfða 9, 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is
Auglýsingamerkingar
Risaprentun, límfilmur, álmyndir, límmiðar, bílamerkingar
LogoFlex sérhæfir sig í framleiðslu skilta, prentunum og
smíði úr plasti ásamt efnissölu á plexigleri og álprófílum
7 græn epli
2 tsk. kanill
3 msk. sykur
1 tsk. vanillusykur
70 g súkkulaði
Mylsna
100 g hveiti
100 g smjör
100 g sykur
60 g haframjöl
Hitið ofninn í 180°C.
Flysjið eplin, fjar-
lægið kjarna og stilka.
Skerið eplin í litla
bita og dreifið epla-
bitunum í eldfast
mót.
Blandið sykri, van-
illusykri og kanil sam-
an við eplin.
Saxið súkkulaði og
dreifið yfir eplin.
Næsta skref er að
útbúa deigið sem fer
ofan á eplin. Blandið
hveiti, sykri, smjöri
og haframjöli saman í
skál og blandið með
höndunum.
Dreifið yfir eplin og
bakið í ofni við 180°C
í 35-40 mínútur.
Berið fram með
vanilluís og kara-
mellusósu.
Söltuð karamellusósa
150 g sykur
4 msk. smjör
1 dl rjómi
sjávarsalt á hnífsoddi
Bræðið sykur á
pönnu við vægan hita,
best að hafa alls ekki
háan hita og fara
hægt af stað.
Takið pönnuna af
hellunni þegar sykur-
inn er allur bráðinn
og bætið smjörinu
saman við í nokkrum
skömmtum.
Hellið rjómanum
út í karamelluna og
hrærið þar til kara-
mellan er orðin þykk
og fín.
Í lokin bætið þið
saltinu saman við.
Setjið í krukku og
leyfið að kólna svolít-
ið áður en þið berið
hana fram.
Frá evalaufey-
kjaran.is.
Epla- og bláberja-crumble
Fyrir 3-4
KJÖTBOLLUR
700 g hakk
1 box rifinn piparostur
1 dl brauðmylsna
1 egg
1 tsk. basilika
salt og pipar
smjör eða olía til steik-
ingar
SÓSA
1 ferna (passerade) eða
dós fínmaukaðir tóm-
atar (passata)
2 dl rjómi eða mat-
argerðarrjómi
1 msk. tómatpúrra
1 msk. tómatsósa
½ msk. sojasósa
½ tsk. kjötkraftur
umsteiktar; snúið eftir
þörfum. Hellið tóm-
ataþykkninu út á
pönnuna ásamt rjóma,
tómatpúrru, tóm-
atsósu, sojasósu, kjöt-
krafti og kryddi. Leyfið
sósunni að malla þar
til kjötbollurnar eru
eldaðar í gegn. Áður
en sósan er borin fram
er hún smökkuð til
með til dæmis kryddi
og sojasósu. Ef maður
vill þykkari sósu er
hægt að nota dálítinn
sósujafnara eða maí-
senamjöl. Borið fram
með pasta.
Frá eldhussogur.-
com.
salt og pipar
annað krydd, t.d. stein-
selja, oregano og basil-
ika (má sleppa)
Sjóðið 400 grömm
pasta eftir leiðbein-
ingum.
Blandið öllum hrá-
efnunum í kjötboll-
urnar saman (ég
reyndi að mauka ost-
inn vel með hönd-
unum) og mótið litlar
kjötbollur. Setjið olíu
eða smjör, eða blöndu
af hvoru tveggja, á
pönnu og steikið boll-
urnar við fremur háan
hita þar til þær eru
nærri því gegn-
Ostakjötbollur með pasta
Heitur matur til
huggunar
Á tímum kórónuveirunnar þegar margir þurfa að halda sig innan-
dyra er gott að ylja sér við bragðgóðan og heitan mat.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is