Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Qupperneq 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.3. 2020 LÍFSSTÍLL Fallegar vörur fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Wave stólar Fáanlegir í mörgum litum Verð: 12.900 kr. Berglind hefur hefur lengi haft áhuga ásnyrtivörum og lærði förðunarfræði áð-ur en annað tók yfir. Blaðamaður fékk að forvitnast um uppáhaldssnyrtivörur Berg- lindar. Berglind leggur mikið upp úr því að hugsa um raka húðarinnar og næra hárið vel. Einnig er svefn algjört lykilatriðið að hennar mati. „Ég reyni aðallega að viðhalda eðlilegum raka húðarinnar sem getur reyndar verið mikil áskorun á þessum árstíma. Ef rakinn er í lagi þá gengur allt annað vel upp. Það sama gildir um hárið, að það sé vel nært. Ef ég er með ljót- una þá klikkar ekki að lita augabrúnirnar og skella á mig brúnkukremi. Annars er góður svefn lykillinn að því að líta vel út – snyrtivör- ur geta aldrei gert það sem góður nætursvefn færir manni,“ segir Berglind þegar hún er spurð að því hvernig hún hugsi um útlitið. Hvernig málar þú þig dagsdaglega? „Ég set á mig rakakrem, farða, kinnalit, augnskugga, „eyeliner“, skyggingu og gloss eða varalit.“ En þegar þú ferð eitthvað spari? „Sama rútína nema þá nota ég dekkri augn- skugga eða breikka „eyeliner-línuna“, geri skyggingu og svo elska ég rauðan varalit. Hann er svona mitt einkennismerki.“ Hvað tekur það þig langan tíma að gera þig til? „Ætli ég sé ekki svona 15 mínútur að skella hversdagsfarðanum á en ef ég er að fara eitt- hvað fínt að þá finnst mér voða gaman að dúll- ast aðeins við þetta. Þá getur þessi athöfn al- veg léttilega farið upp í klukkutíma með ljúfri tónlist, góðri vinkonu og jafnvel prosecco – já svei mér þá.“ Hvenær byrjaðir þú að mála þig? „Ég hafði mjög snemma áhuga á förðun. Ég og vinkona mín lékum okkur að því að setja á okkur mjög litríka augnskugga og kinnaliti. Ætli við höfum ekki verið um 12-13 ára gaml- ar. Hefði nú verið gaman að eiga myndir af því, en það var frekar skrautlegt. Svo hélt áhuginn áfram og ég endaði á að fara og læra förðunarfræði og það kom alveg til greina að vinna við það. Svo varð þó ekki og leiðir mínar lágu í staðinn í matarbransann þar sem sköpunarkrafturinn fékk notið sín.“ Hvernig hugsar þú um húðina? „Mér finnst gott að nota kókosolíu sem ég nota sem rakakrem og einnig til að fjarlægja farða og þrífa húðina. Svo er góð rakabomba á andlitið sem ég nota frá SkinCeuticals sem heitir Moisturize Hydrating B5 gel. Gefur húð- inni fallegan ljóma. Ég ætti líklega að drekka meira vatn og minna af rauðvíni, en það hefur ekki alveg gengið eftir. Annars á ég það til að fá kuldaexem og Ása Regins gaf mér það frá- bæra ráð að fá mér daglega matskeið af hamp- fræjum eða hampfræolíu. Þau hjálpa til við að halda exeminu í skefjum.“ Ilmolíuböð og dekur Hvað gerir þú til að dekra við þig? „Mér finnst voða huggulegt að liggja í óhóf- lega heitu ilmolíubaði og setja á mig andlits- maska. Svo fer ég stundum í meira dekur til Evu frænku sem er snyrtifræðingur á snyrti- stofunni Kopar í Garðabæ. Hún lumar alltaf á einhverju sniðugu fyrir mig og ég kem alltaf „gordjöss“ út frá henni. Það sama get ég sagt um hana Hrafnhildi hjá Portinu sem sér um að halda hárinu á mér fallegu. Þetta er drauma- teymið mitt!“ Hvað finnst þér skipta máli að eiga í snyrti- buddunni? „Góðan farða, maskara og rauðan varalit sem ég nota líka sem kinnalit.“ Uppáhaldssnyrtivörurnar? „Það eru nokkrar vörur sem ég kaupi aftur og aftur eins og Esteé Lauder Double Wear- farðann. Þrátt fyrir að hafa prufað þá marga er þessi farði alltaf í uppáhaldi. Tarte- hyljararnir eru algjör snilld og svo er Better Than Sex eyelinerinn sá besti sem ég hef pruf- að. Já og svo verð ég að fá að nefna Born to Glow highlighter-pallettuna frá NYX en ég fæ alltaf fyrirspurnir um það hvernig ég fæ svona fallegan gljáa þegar ég nota hana.“ Hvað dreymir þig um að eignast í snyrti- budduna? „Ég væri alveg til í að eignast gott ilmvatn. Ég á enn eftir að finna ilminn fyrir árið 2020.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnúss Berglind notar Born to Glow frá NYX. Rauði varaliturinn fer líka á kinnarnar Berglind Guðmundsdóttir, eigandi uppskriftasíðunnar GulurRauðurGrænn&Salt, er þekkt fyrir breitt bros og rauðan varalit. Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is Berglind notar ekki bara kókosolíu í matreiðsluna heldur einnig á andlitið. Rakabomba frá Skin Ceuticals. Berglind elskar rauð- an varalit. Berglind notar „eyel- iner“ bæði hversdags og við fínni tilefni. Berglind Guðmunds- dóttir hefur lengi haft áhuga á förðun. Berglind not- ar farða frá Estée Lauder.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.