Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2020, Page 6
Í bankahruninu fyrir rúmumáratug tapaði norski olíu-sjóðurinn, bakhjarl norska
ríkisins og einn sá öflugasti sinnar
tegundar í heimi, stórum hluta af
eignum sínum. Íslensku lífeyr-
issjóðirnir töpuðu líka grimmt.
Svo náði kapítalisminn sér á strik
og eftir að kyndarar neyslu-
hagkerfisins höfðu fýrað vel upp í
nokkur ár voru allir búnir að ná
sér. Braskarar græddu og grill-
uðu á ný sem aldrei fyrr.
Í verðbólgufári sem iðulega
kom upp á öldinni sem leið hug-
kvæmdist mönnum að verðtryggja
þær stærðir sem þótti skipta máli
að héldust óhreyfðar að verðgildi,
nefnilega launin og lánin og þar
með sparifé fólks. Meðan þessa
naut við hækkuðu umsamin laun í
samræmi við
verðlagsþróun og
lánin að sama
skapi. Það sjón-
armið varð fljót-
lega ofan á að
þetta fyr-
irkomulag skrúf-
aði upp verðbólg-
una og kom að
því að verðtrygging launa var af-
numin með lögum en illu heilli
ekki vísitölubinding lána. Við
þetta var rekið upp ramakvein í
þjóðfélaginu og talað um misgengi
lána og launa. Sjálfur var ég í
þeim kór.
Allar tilraunir til að setja þak á
vaxtakostnað komu fyrir ekki og
varð vaxtabyrði lána að meiri
háttar meinsemd.
Svo kom hrunið 2008. Þá hefði
þurft að aftengja vísitöluna þegar
í stað. Hið sama á við nú. Ekki
vegna þess að við höfum vissu fyr-
ir verðbólguskoti á næstunni, það
er nokkuð sem enginn veit. Held-
ur vegna hins að í hruni felur
verðtrygging fjármagnsins í sér
aftengingu við hverfulan veru-
leikann. Verðtryggingin þýðir
nefnilega að fjármagnið skuli
halda verðgildi sínu án tillits til
veruleikans í samfélaginu.
Og hver er hann? Hann er sá að
atvinnustarfsemi, sem byggist á
eftirspurn sem ekki er lengur til
staðar, veitingastaðir, hótel, ferða-
fyrirtæki, hárskerar, iðnaðarmenn
í ýmsum greinum, söfn, verslanir
og margvísleg þjónustufyrirtæki,
fær engar tekjur, meðal annars til
að greiða afborganir af lánum sín-
um. Tekjur launafólks rýrna að
sama skapi. Með öðrum orðum,
allar þessar efnahagsstærðir
rýrna. Það þarf fjármagnið að
gera líka. Einboðið er að við þess-
ar aðstæður eigi vextir að liggja
undir almennri verðlagsþróun auk
þess sem afborganir verði frystar
hjá heimilum og fyrirtækjum sem
ekki eru aflögufær. Um fyrir-
tækin sem enn eru að borga út
hundruð milljóna í arð og heimilin
sem eru að taka við slíkum
greiðslum gegnir öðru máli.
Ég var sammála forseta Al-
þýðusambandsins sem neitaði að
fallast á að rýra lífeyrissjóðina
með því að draga úr greiðslum til
þeirra. Hvorki talsmenn launa-
greiðenda né viðsemjenda þeirra í
verkalýðshreyfingunni hafa leyfi
til slíkra ákvarðana fyrir hönd fé-
lagsmanna sinna nema þá að um
væri að ræða lið í allsherjar víð-
tækum neyðarráðstöfunum eða
samningum um uppstokkun á
kerfinu.
Ég er líka sammála þeim verka-
lýðsleiðtogum sem beina gagn-
rýnum sjónum að lífeyriskerfinu
og vilja endurskoðun á því. Það er
löngu tímabært að hverfa, alla
vega að hluta til, frá sjóðsmynd-
unarhugsuninni og horfa til gegn-
umstreymis um ríkissjóð, einnig
að hluta til.
Veikleikar sjóðsmyndunar eru
tvenns konar. Lífeyrissjóðirnir
kynda undir þensluþörf kapítal-
ismans, róa undir markaðs-
væðingu og einka-
væðingu, sífellt
gráðugri að kom-
ast inn í ný beiti-
lönd fyrir fjár-
festingar sínar.
Hin ástæðan er
þessi: Sú hug-
mynd að hægt sé
að geyma peninga
óháð efnahagsumgjörðinni er
blekking þegar til langs tíma er
litið.
Ef veiran sem nú hrjáir okkur
lokar heiminum í langan tíma þá
gæti komið að því að enginn ræði
lengur um réttindi í lífeyr-
issjóðum, því þá verði slíkir sjóðir
hreinlega ekki til í þeirri mynd
sem við þekkjum þá, bara tölur á
blaði. Atvinnulífið yrði ekki í
stakk búið til að geyma þessa
peninga þannig að þeim yrði skil-
að með þeirri ávöxtun sem lífeyr-
issjóðirnir reiða sig á.
Við svo búið kæmum við til með
að horfa til þeirrar verðtrygg-
ingar sem einni er á að treysta.
Hana er að finna í þeim verðmæt-
um sem við sköpum með hugviti
okkar við þær aðstæður sem við
búum við hverju sinni, sem vel að
merkja mega ekki byggjast á
stöðgugri þenslu; með nytjum á
landinu og svo að sjálfsögðu þeirri
auðlind sem syndir í sjónum í
kringum það.
Matvælaauðlindin til lands og
sjávar er sú verðtrygging sem
enginn mun lengur leyfa sér að
fúlsa við enda eina alvöru trygg-
ing okkar fyrir lífsviðurværi.
Bændurnir sem yrkja landið
veita okkur öryggi og fiskurinn í
sjónum er auðlindin sem hefur
byggt upp Ísland. Þakka skal að
sú auðlind er í eigu okkar allra.
Nú er að finna leiðir sem tryggi
að hún nýtist samfélagi okkar sem
best. Því á endanum ræðst af-
koma okkar af því hvernig okkur
reiðir af sem samfélagi.
Sú hugsun er ekki ný af nálinni.
Hún er gömul – en sígild.
Verðtrygging
sem syndir í sjó
og grær í túni
’ Verðtrygginginþýðir nefnilega aðfjármagnið skulihalda verðgildi sínu
án tillits til veru-
leikans í samfélaginu.
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@-
ogmundur.is
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.4. 2020
Ég á eiginkonu sem er ekki mikið fyrirflugferðir. Stærsta vandamálið erreyndar að pakka fyrir ferðalög, en
þar fyrir utan hatar hún biðina, þrengslin,
troðninginn og nándina við ókunnugt fólk
sem virðist aldrei hafa heyrt um öryggis-
leit. Nú dreymir hana um að komast í flug-
vél. Ég yrði ekki hissa þó að ég kæmi að
henni að horfa dreymandi á gömul brottfar-
arspjöld með lággjaldaflugfélagi, drekka
rauðvín úr litlum flöskum og borða hnetur.
En þetta er það sem gerist. Það sem er
ekki í boði verður sérstaklega eftirsóknar-
vert. Alveg eins og þegar maður var ung-
lingur og allt sem var bannað varð að ein-
hverju sem varð að prófa. Jafnvel þótt allt
segði manni að það væri óskynsamlegt.
Ég er kominn langleiðina. Mig langar að
fara í IKEA. Ég væri til í tveggja tíma ferð
þangað. Jafnvel með hálftíma stoppi í gard-
ínudeildinni. Á venjulegum degi finnst mér
það soga lífsviljann úr mér. Í dag finnst
mér það spennandi tilhugsun.
Mér hefur alltaf fundist það kostur að
vakna og vita að það er ekkert sérstakt
sem ég þarf að gera. Ég þarf ekki að vera
einhvers staðar á tilgangslausum fundi,
sækja eitthvað sem ég þarf ekki nauðsyn-
lega eða hitta fólk sem mér finnst ekki
skemmtilegt.
Í dag langar mig bara að hitta einhvern.
Leiðinlegasta fólk landsins er bara orðið
spennandi. Hvursu slæmt getur það verið?
Kannski hef ég bara verið að misskilja það.
Það er alveg örugglega eitthvað gott í
þessu fólki.
Mig langar að fara á fund! Sem er ótrú-
legt í ljósi þess að ég hata fundi. En bara
einn. Bara til að hitta fólk og fá að tala við
það. Kannski komast að niðurstöðu, en það
er samt ekkert atriði.
Ég hef ekki séð fótboltaleik í mánuð. Það
er að gera mig brjálaðan. Ég er orðinn svo
hungraður í íþróttir í sjónvarpi að ég væri
til í að horfa á sundmót. Eða skíðagöngu.
Bara eitthvað. Fólk að keppa um hvað sem
er í beinni útsendingu.
Ég þarf að komast í golf og get sennilega
þakkað fyrir þetta ömurlega veður sem hef-
ur komið í veg fyrir að ég hef ekki lagst í
fullkomið þunglyndi yfir að komast ekki út
á völl.
Ótrúlega margt, sem áður var eðlilegur
hluti af daglegu lífi, er farið. Allt það sem
fyllti upp í venjulegan dag er breytt. Tím-
inn, sem áður var svo fljótur að líða, safn-
ast bara upp og fer í ekki neitt nema til-
gangslausa leit að næsta verkefni. Ég er
þegar búinn að fara tíu ferðir út í bílskúr
til að laga til og þar er varla kassi sem ég
hef ekki hreyft síðustu daga.
Ég er félagsvera. Ég þarf að hitta fólk.
Fjölskylda mín
er frábær og
allt en ég þarf
meira. Trún-
aðarstig við
fullan kverúlant
á troðnum bar
hljómar bara
eins og frábær
hugmynd. Og
trúið mér, það
er ekki venju-
legt ástand.
Og þetta er heldur ekki venjulegt ástand.
Þessir dagar eru allt öðruvísi en það sem
við höfum áður kynnst. Nú gildir að haga
sér eins og maður og sætta sig við það sem
er í boði. Og þakka fyrir að allt sem maður
saknar er eitthvað sem er líklegt að maður
eigi eftir að upplifa á ný. Það eru ekki allir
svo heppnir.
Ólíkt því, þegar ég var unglingur, hef ég
ákveðið að gera bara það sem mér er sagt.
Reyna að njóta þess sem ég hef, þakka fyr-
ir hvern dag sem líður og reyna að gera
gott úr þessu.
Ég hlýði Víði.
’Ég hef ekki séð fótboltaleik ímánuð. Það er að gera migbrjálaðan. Ég er orðinn svohungraður í íþróttir í sjónvarpi
að ég væri til í að horfa á sund-
mót. Eða skíðagöngu. Bara eitt-
hvað. Fólk að keppa um hvað
sem er í beinni útsendingu.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Draumur um daglegt líf