Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2020, Side 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2020, Side 6
Í bankahruninu fyrir rúmumáratug tapaði norski olíu-sjóðurinn, bakhjarl norska ríkisins og einn sá öflugasti sinnar tegundar í heimi, stórum hluta af eignum sínum. Íslensku lífeyr- issjóðirnir töpuðu líka grimmt. Svo náði kapítalisminn sér á strik og eftir að kyndarar neyslu- hagkerfisins höfðu fýrað vel upp í nokkur ár voru allir búnir að ná sér. Braskarar græddu og grill- uðu á ný sem aldrei fyrr. Í verðbólgufári sem iðulega kom upp á öldinni sem leið hug- kvæmdist mönnum að verðtryggja þær stærðir sem þótti skipta máli að héldust óhreyfðar að verðgildi, nefnilega launin og lánin og þar með sparifé fólks. Meðan þessa naut við hækkuðu umsamin laun í samræmi við verðlagsþróun og lánin að sama skapi. Það sjón- armið varð fljót- lega ofan á að þetta fyr- irkomulag skrúf- aði upp verðbólg- una og kom að því að verðtrygging launa var af- numin með lögum en illu heilli ekki vísitölubinding lána. Við þetta var rekið upp ramakvein í þjóðfélaginu og talað um misgengi lána og launa. Sjálfur var ég í þeim kór. Allar tilraunir til að setja þak á vaxtakostnað komu fyrir ekki og varð vaxtabyrði lána að meiri háttar meinsemd. Svo kom hrunið 2008. Þá hefði þurft að aftengja vísitöluna þegar í stað. Hið sama á við nú. Ekki vegna þess að við höfum vissu fyr- ir verðbólguskoti á næstunni, það er nokkuð sem enginn veit. Held- ur vegna hins að í hruni felur verðtrygging fjármagnsins í sér aftengingu við hverfulan veru- leikann. Verðtryggingin þýðir nefnilega að fjármagnið skuli halda verðgildi sínu án tillits til veruleikans í samfélaginu. Og hver er hann? Hann er sá að atvinnustarfsemi, sem byggist á eftirspurn sem ekki er lengur til staðar, veitingastaðir, hótel, ferða- fyrirtæki, hárskerar, iðnaðarmenn í ýmsum greinum, söfn, verslanir og margvísleg þjónustufyrirtæki, fær engar tekjur, meðal annars til að greiða afborganir af lánum sín- um. Tekjur launafólks rýrna að sama skapi. Með öðrum orðum, allar þessar efnahagsstærðir rýrna. Það þarf fjármagnið að gera líka. Einboðið er að við þess- ar aðstæður eigi vextir að liggja undir almennri verðlagsþróun auk þess sem afborganir verði frystar hjá heimilum og fyrirtækjum sem ekki eru aflögufær. Um fyrir- tækin sem enn eru að borga út hundruð milljóna í arð og heimilin sem eru að taka við slíkum greiðslum gegnir öðru máli. Ég var sammála forseta Al- þýðusambandsins sem neitaði að fallast á að rýra lífeyrissjóðina með því að draga úr greiðslum til þeirra. Hvorki talsmenn launa- greiðenda né viðsemjenda þeirra í verkalýðshreyfingunni hafa leyfi til slíkra ákvarðana fyrir hönd fé- lagsmanna sinna nema þá að um væri að ræða lið í allsherjar víð- tækum neyðarráðstöfunum eða samningum um uppstokkun á kerfinu. Ég er líka sammála þeim verka- lýðsleiðtogum sem beina gagn- rýnum sjónum að lífeyriskerfinu og vilja endurskoðun á því. Það er löngu tímabært að hverfa, alla vega að hluta til, frá sjóðsmynd- unarhugsuninni og horfa til gegn- umstreymis um ríkissjóð, einnig að hluta til. Veikleikar sjóðsmyndunar eru tvenns konar. Lífeyrissjóðirnir kynda undir þensluþörf kapítal- ismans, róa undir markaðs- væðingu og einka- væðingu, sífellt gráðugri að kom- ast inn í ný beiti- lönd fyrir fjár- festingar sínar. Hin ástæðan er þessi: Sú hug- mynd að hægt sé að geyma peninga óháð efnahagsumgjörðinni er blekking þegar til langs tíma er litið. Ef veiran sem nú hrjáir okkur lokar heiminum í langan tíma þá gæti komið að því að enginn ræði lengur um réttindi í lífeyr- issjóðum, því þá verði slíkir sjóðir hreinlega ekki til í þeirri mynd sem við þekkjum þá, bara tölur á blaði. Atvinnulífið yrði ekki í stakk búið til að geyma þessa peninga þannig að þeim yrði skil- að með þeirri ávöxtun sem lífeyr- issjóðirnir reiða sig á. Við svo búið kæmum við til með að horfa til þeirrar verðtrygg- ingar sem einni er á að treysta. Hana er að finna í þeim verðmæt- um sem við sköpum með hugviti okkar við þær aðstæður sem við búum við hverju sinni, sem vel að merkja mega ekki byggjast á stöðgugri þenslu; með nytjum á landinu og svo að sjálfsögðu þeirri auðlind sem syndir í sjónum í kringum það. Matvælaauðlindin til lands og sjávar er sú verðtrygging sem enginn mun lengur leyfa sér að fúlsa við enda eina alvöru trygg- ing okkar fyrir lífsviðurværi. Bændurnir sem yrkja landið veita okkur öryggi og fiskurinn í sjónum er auðlindin sem hefur byggt upp Ísland. Þakka skal að sú auðlind er í eigu okkar allra. Nú er að finna leiðir sem tryggi að hún nýtist samfélagi okkar sem best. Því á endanum ræðst af- koma okkar af því hvernig okkur reiðir af sem samfélagi. Sú hugsun er ekki ný af nálinni. Hún er gömul – en sígild. Verðtrygging sem syndir í sjó og grær í túni ’ Verðtrygginginþýðir nefnilega aðfjármagnið skulihalda verðgildi sínu án tillits til veru- leikans í samfélaginu. Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@- ogmundur.is VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.4. 2020 Ég á eiginkonu sem er ekki mikið fyrirflugferðir. Stærsta vandamálið erreyndar að pakka fyrir ferðalög, en þar fyrir utan hatar hún biðina, þrengslin, troðninginn og nándina við ókunnugt fólk sem virðist aldrei hafa heyrt um öryggis- leit. Nú dreymir hana um að komast í flug- vél. Ég yrði ekki hissa þó að ég kæmi að henni að horfa dreymandi á gömul brottfar- arspjöld með lággjaldaflugfélagi, drekka rauðvín úr litlum flöskum og borða hnetur. En þetta er það sem gerist. Það sem er ekki í boði verður sérstaklega eftirsóknar- vert. Alveg eins og þegar maður var ung- lingur og allt sem var bannað varð að ein- hverju sem varð að prófa. Jafnvel þótt allt segði manni að það væri óskynsamlegt. Ég er kominn langleiðina. Mig langar að fara í IKEA. Ég væri til í tveggja tíma ferð þangað. Jafnvel með hálftíma stoppi í gard- ínudeildinni. Á venjulegum degi finnst mér það soga lífsviljann úr mér. Í dag finnst mér það spennandi tilhugsun. Mér hefur alltaf fundist það kostur að vakna og vita að það er ekkert sérstakt sem ég þarf að gera. Ég þarf ekki að vera einhvers staðar á tilgangslausum fundi, sækja eitthvað sem ég þarf ekki nauðsyn- lega eða hitta fólk sem mér finnst ekki skemmtilegt. Í dag langar mig bara að hitta einhvern. Leiðinlegasta fólk landsins er bara orðið spennandi. Hvursu slæmt getur það verið? Kannski hef ég bara verið að misskilja það. Það er alveg örugglega eitthvað gott í þessu fólki. Mig langar að fara á fund! Sem er ótrú- legt í ljósi þess að ég hata fundi. En bara einn. Bara til að hitta fólk og fá að tala við það. Kannski komast að niðurstöðu, en það er samt ekkert atriði. Ég hef ekki séð fótboltaleik í mánuð. Það er að gera mig brjálaðan. Ég er orðinn svo hungraður í íþróttir í sjónvarpi að ég væri til í að horfa á sundmót. Eða skíðagöngu. Bara eitthvað. Fólk að keppa um hvað sem er í beinni útsendingu. Ég þarf að komast í golf og get sennilega þakkað fyrir þetta ömurlega veður sem hef- ur komið í veg fyrir að ég hef ekki lagst í fullkomið þunglyndi yfir að komast ekki út á völl. Ótrúlega margt, sem áður var eðlilegur hluti af daglegu lífi, er farið. Allt það sem fyllti upp í venjulegan dag er breytt. Tím- inn, sem áður var svo fljótur að líða, safn- ast bara upp og fer í ekki neitt nema til- gangslausa leit að næsta verkefni. Ég er þegar búinn að fara tíu ferðir út í bílskúr til að laga til og þar er varla kassi sem ég hef ekki hreyft síðustu daga. Ég er félagsvera. Ég þarf að hitta fólk. Fjölskylda mín er frábær og allt en ég þarf meira. Trún- aðarstig við fullan kverúlant á troðnum bar hljómar bara eins og frábær hugmynd. Og trúið mér, það er ekki venju- legt ástand. Og þetta er heldur ekki venjulegt ástand. Þessir dagar eru allt öðruvísi en það sem við höfum áður kynnst. Nú gildir að haga sér eins og maður og sætta sig við það sem er í boði. Og þakka fyrir að allt sem maður saknar er eitthvað sem er líklegt að maður eigi eftir að upplifa á ný. Það eru ekki allir svo heppnir. Ólíkt því, þegar ég var unglingur, hef ég ákveðið að gera bara það sem mér er sagt. Reyna að njóta þess sem ég hef, þakka fyr- ir hvern dag sem líður og reyna að gera gott úr þessu. Ég hlýði Víði. ’Ég hef ekki séð fótboltaleik ímánuð. Það er að gera migbrjálaðan. Ég er orðinn svohungraður í íþróttir í sjónvarpi að ég væri til í að horfa á sund- mót. Eða skíðagöngu. Bara eitt- hvað. Fólk að keppa um hvað sem er í beinni útsendingu. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Draumur um daglegt líf

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.