Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2020, Qupperneq 14
ferðast út á landi, þá hlupu stundum krakkar á
eftir mér og hrópuðu „Bon jour, Vigdís! Bon
jour, Gérard!“, sem var mjög skemmtilegt.“
Ekkert mun lifa af þessum þáttum því mið-
ur, þar sem í þá daga var einatt skortur hjá
Ríkisútvarpinu á upptökuspólum og þurfti því
að endurnýta gamlar spólur af þáttum sem bú-
ið var að sýna. „Ég man, að það var hringt í
mig og ég spurð hvort að mér væri ekki sama
þó það yrði tekið yfir þetta efni á spólunum?
Jú, jú, ég hélt það nú. Mér datt ekki í hug að
þetta yrði neitt merkilegt,“ segir Vigdís. Það
sér víst enginn alltaf allt fyrir, og í dag þætti
þetta heilmikil sagnfræði.
Vigdís var um svipað leyti einnig í öðrum
þætti, sem hét Vaka. Þar var á ferðinni alhliða
menningarþáttur, þar sem auk Vigdísar komu
fram sérfræðingar á ýmsum listasviðum. Þar
vann Vigdís meðal annars með Birni Th.
Björnssyni listfræðingi og Nirði P. Njarðvík
rithöfundi. „Björn fjallaði um myndlist, Njörð-
ur um bókmenntir og ég átti að vera sérfræð-
ingur í leiklist. Svo var Sigurður Sverrir Páls-
son kvikmyndatökumaður sérfræðingur í
kvikmyndum og Þorkell Sigurbjörnsson tón-
skáld sá um tónlistina og þetta var afar
skemmtilegur tími,“ segir Vigdís, „en ég held
að þessir þættir séu líka komnir í glatkistuna“.
Lærði að þekkja allar hliðar
mannlífsins
Árið 1972 varð Vigdís leikhússtjóri Leikfélags
Reykjavíkur, sem þá var til húsa í Iðnó, en er
nú Borgarleikhúsið. Það voru þó ekki fyrstu
kynni hennar af leikhúsinu, því árið 1962 hafði
hún tekið þátt í að stofna leikhópinn Grímu,
ásamt Magnúsi Pálssyni, Erlingi Gíslasyni,
Guðmundi Steinssyni, Kristbjörgu Kjeld og
Þorvarði Helgasyni. „Við rákum þetta í nokk-
ur ár og þetta var viðbót
við flóruna, því þarna voru
öll þessi menningarhús
höfuðstaðarins, Þjóðleik-
húsið, Leikfélagið í Iðnó,
svo vorum við í Tjarnarbíói
hinum megin við Tjörn-
ina,“ rifjar Vigdís upp.
Hópurinn sýndi verk
framúrstefnuhöfunda, inn-
lendra sem erlendra, og
Vigdís þýddi úr frönsku verk franskra höfunda
á borð við Jean-Paul Sartre og Jean Genet.
„Við vorum avant-garde, á kafi í framúrstefnu
leiklistarinnar á þeim árum,“ segir Vigdís.
Vigdís segir reynsluna af leiklistinni hafa
nýst sér vel allar stundir síðan, og að sjálf-
sögðu í embætti forseta. „Ég lærði að þekkja
hinar ýmsu hliðar mannlífsins og hin ýmsu
karaktereinkenni.“
Hún bætir við að leikhúsið hafi kennt sér
mikla nákvæmni. „Ég segi stundum við vini
mína, hvernig myndir þú setja hann á svið, ef
það er einhver sem verið er að hnýta í? Til
dæmis ef einhver er andsnúinn öllu sem verið
er að leggja til, á sviði myndi ég staðsetja per-
sónuna uppsviðs og snúa baki í áhorfendur,
þannig að þeir skynja hvað klukkan slær, að
þarna er á ferðinni persóna sem samræmist
ekki þeirra réttlætiskennd.“
Kvennafrídagurinn ruddi brautina
Spurð um aðdraganda forsetaframboðsins árið
1980 segir Vigdís að upphafið sé að finna í
kvennafrídeginum, 24. október 1975. „Þarna
komu konur saman út um allt land en þetta var
ekki verkfall, heldur frídagur. Vinnandi konur
út um allt land fóru til yfirmanna sinna og
spurðu hvort þær mættu fara á fund sem búið
var að skipuleggja þennan dag á kvennaári
Sameinuðu þjóðanna. Karlarnir höfðu auðvitað
haft ávæning af þessu, þó að þetta ætti ekki að
fara hátt, og sögðu: „Já, já, farðu endilega og
vertu með í hópnum.“ En þetta varð miklu
meira en bara venjuleg samkoma kvenna,
þarna varð til fjöldahreyfing,“ segir Vigdís.
„Og það sem gerðist var að vinna féll niður á
öllum stöðum þar sem konur voru við störf.
Það varð að loka öllum bönkum, því karlarnir
sem þar unnu voru í þá daga bara á efstu hæð,
og það varð að loka búðum þar sem konur voru
við afgreiðslu og veitingastöðum,“ segir Vig-
dís. „Þá sá maður hvernig konur báru sam-
félagið á öxlum sér á þessum tíma. Þessi fund-
ur varð heimsþekktur.“
Vigdísi finnst það í raun magnað hversu
mjög samfélagið hefur breyst á þeim tíma, sem
liðinn er. „Það voru til dæmis mjög fáar konur
í forystustörfum þegar ég varð leikhússtjóri,
nú eru konur úti um allt í ábyrgðarstöðum,
ráðherrar, bankastjórar, lögreglustjórar og yf-
irlæknar.“
– Má ekki þakka þér það að einhverju leyti?
Vigdís vísar í ummæli Halldórs Laxness þegar
hann þakkaði þjóðinni fyrir innblásturinn að
verkum sínum. „Hann sagði: „Þakka þú mér
eigi fyrir þessi ljóð, það varst þú, sem gafst
mér þau öll saman áður.“ Og sömuleiðis er það
þjóðinni að þakka að ég var kjörin forseti,
þannig að „þakka þú ekki mér, þakkaðu minni
þjóð“ því það var hún, sem gerði allt þetta
kleift“.
Treg til að bjóða sig fram
Kristján Eldjárn, þáverandi forseti, tilkynnti í
nýársræðu sinni 1980 að hann hygðist ekki
gefa kost á sér aftur. Vigdísi datt ekki í hug að
það færi svo að hún yrði eftirmaður hans.
„Mér var bókstaflega ýtt út í þetta æv-
intýri,“ segir Vigdís. Hún segir kveikjuna hafa
verið lesendabréf í síðdegisblaðinu Vísi frá
Laufeyju Vilhjálmsdóttur. „Það var beinlínis
verið að leita að kvenmanni til að bjóða sig
fram, og farið yfir hinar ýmsu framákonur í
samfélaginu. Og Laufey spurði í þessu les-
endabréfi, „Af hverju biðjum við ekki hana
Vigdísi að bjóða sig fram?“ Ég man að ég var
þá í Leikfélaginu og datt þetta auðvitað ekki í
hug. Einn af mínum samstarfsmönnum sagði:
„Hva, ætlarðu að vera forseti?“ og ég blygð-
aðist mín svo mikið!“ segir Vigdís og hlær við
tilhugsunina.
„En svo komst þetta bara á skrið. Ýmsir
ágætis menn fóru að sjá hvað þetta væri þarft
verk, að fá konu í framboð,
og að kona yrði þeirra
kandídat.“ Vigdís rifjar
upp að hún fékk skeyti frá
áhöfninni á togaranum
Guðbjarti ÍS þar sem hún
var hvött til að gefa kost á
sér. „Sjómenn kunna svo
vel að meta konur, því þær
sjá um allt í landi á meðan
þeir eru fjarri. Ég hef enga
stétt heyrt tala jafnfallega um konur og sjó-
menn,“ segir Vigdís.
Hún nefnir einnig að vinir hennar hafi kallað
sig á fund, þar sem þau hvöttu hana til að
bjóða sig fram. „Þau sögðu, þú ert oddvitinn,
og við styðjum við þig. Og það var þá sem ég
lét loks til leiðast. Það er svo margt minnisvert
frá þessum tíma, það vildu svo margir tala við
mig og veita mér stuðning.“
Vigdís efaðist þó fram á síðustu stundu.
„Eftir að hafa tekið þessa ákvörðun var ég
vakandi alla nóttina og ryksugaði heimilið í
gríð og erg, eins og ég hef einhvers staðar áður
getið,“ segir Vigdís. Hún var ákveðin í að
hringja um morguninn um leið og vinir hennar
vöknuðu og draga framboðið til baka. „Mér var
þá sagt að það væri of seint, það væri búið að
láta blöðin vita og þau myndu mæta klukkan
hálfníu.“
Ýmislegt hefur verið ritað um kosningabar-
áttuna, sem stóð á milli Vigdísar, Guðlaugs
Þorvaldssonar ríkissáttasemjara, Alberts
Guðmundssonar alþingismanns og Péturs J.
Thorsteinssonar sendiherra. Það þótti enda
fremur nýstárlegt að kona væri í framboði, og
var ýmislegt tínt til í baráttunni, eins og geng-
ur og gerist.
Vigdís segir þó að það sem standi upp úr við
kosningabaráttuna hve þeir frambjóðendur
fjórir voru alla tíð miklir vinir. „Við héldum
mikið hvort með öðru, og sérstaklega við Guð-
laugur, sem var afar vænn maður. Ég komst
að því reyndar ekki fyrr en síðar, að við kusum
hvort annað. Ég vildi láta hann verða forseta,
því hann var svo mörgum kostum búinn,“ segir
Vigdís og bætir við að það hafi aldrei verið
markmiðið í sjálfu sér að vinna kosningarnar,
heldur einfaldlega að sanna að kona ætti fullt
erindi í framboð.
Það fór þó svo að Vigdís hlaut 33,8% at-
kvæða en Guðlaugur 32,3%. Vigdís segir að
hún hafi verið hissa því hún hafi talið að Guð-
laugur myndi vinna. „Ég var vakin klukkan
fimm um morguninn og mér sagt að ég ætti að
koma upp í sjónvarp og þá var mér ljóst að ég
hefði verið kosin í þessu sérkennilega forseta-
framboði, en mjótt var á munum. Þetta var þó
ekki alveg óviðbúið því allar skoðanakannanir
fyrir kosningarnar sýndu að baráttan var á
milli mín og Guðlaugs. En ég var samt ekki
enn farin að sjá mig fyrir mér í þessari stöðu,“
segir Vigdís.
Hún segir viðbrögð umheimsins í raun
hafa komið sér mest á óvart. „Ég fékk heilla-
óskaskeyti alls staðar utan úr heiminum,
hvaðanæva, og svo voru mér meira að segja
sendar úrklippur, til dæmis úr kínversku
blaði, þar sem maður skildi ekkert um hvað
var verið að ræða, en stór fyrirsögn og svo
mynd af mér, þar sem ég var ógnarlega ein-
mana á gangi.“
Þessi viðbrögð umheimsins eru skiljanleg í
ljósi þess að með kjöri sínu varð Vigdís fyrsti
þjóðkjörni kvenkyns þjóðhöfðinginn í sögunni.
Þeim hefur hins vegar fjölgað hratt eftir að
Vigdís ruddi brautina. „Árið 1998 stofnuðum
við Laura Liswood, Council of Women World
Leaders. Þá vorum við átta í þessum fé-
lagsskap og nú 22 árum síðar eru þar 77 konur
sem hafa verið annaðhvort forsetar eða for-
sætisráðherrar.“
Fólk skynjar samkenndina
Forsetatíð Vigdísar spannaði sextán ár, frá
1980 til 1996. „Þegar ég lít til baka núna, finnst
mér að forsetatíð mín hafi verið fremur far-
sæl,“ segir Vigdís. „Það sem mér er raunar
minnisstæðast á þessum langa ferli eru slysin
skelfilegu í snjóflóðunum á Flateyri og Súða-
vík sem urðu með níu mánaða millibili 1995.“
Framganga Vigdísar sem þjóðhöfðingi og
sameiningartákn þjóðarinnar vakti enda mikla
athygli á þeim tíma, og gegndi hún mikilvægu
hlutverki fyrir Vestfirðinga og þjóðina alla til
þess að takast á við áfallið. Það er hins vegar
greinilegt á tali okkar að minningarnar eru
enn sárar.
„Þegar ég hugsa til þessara skelfilegu slysa
fyrir vestan átta ég mig á því að það er engin
huggun til þegar svona atburðir verða. Það er
ekki hægt að hugga, heldur bara vera til stað-
Vigdís sýnir Ronald Reagan
Bandaríkjaforseta Bessastaði
þegar leiðtogafundurinn var
haldinn í Höfða 1986.
Morgunblaðið/RAX
’Ég komst að þvíreyndar ekki fyrr ensíðar, að við kusumhvort annað. Ég vildi
láta hann verða forseta,
því hann var svo mörg-
um kostum búinn.
Vigdís leikhússtjóri fer í Leikhúsgönguna 1975
til að minna á húsbyggingarsjóð Leikfélagsins.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
VIÐTAL
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.4. 2020
Háskóli Íslands og Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur í samvinnu við stjórn-
völd og Reykjavíkurborg hugðust
standa að veglegri hátíðardagskrá í Há-
skólabíói á afmælisdaginn, en því hefur
þurft að breyta af augljósum ástæðum.
Þess í stað verður sérstök útsending á
RÚV kl. 20.00 nú á miðvikudag, en þar á
meðal annars að veita Vigdísarverð-
launin í fyrsta sinn, sem árlega verða
veitt fyrir lofsvert framlag til menning-
ar, einkum tungumála.
Fjöldi fyrirtækja og félagasamtaka
hefur ákveðið að styrkja afmælishátíð-
ina, og mun allur afgangur renna í
styrktarsjóð Stofnunar Vigdísar Finn-
bogadóttur sem eins konar afmælisgjöf,
en Vigdís er formaður sjóðsins og hefur
verið frá upphafi.
AFMÆLISHÁTÍÐ VIGDÍSAR
Hátíðin flutt í
sjónvarpið