Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2020, Side 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2020, Side 19
an frá YSL, Pure Shots, er til dæmis frábær ef þú ert komin yfir fertugt. Í henni er serum, dagkrem og geggjað næturserum og vinnur þetta þrennt mjög vel saman. Night Reboot- serumið er þannig þróað að gróf eða ójöfn húð verður mýkri, sléttari og áferðin fal- legri. Night Reboot-serumið fjarlægir dauðar húðfrumur, örvar frumuend- urnýjun og verndar nýjar frumur. Serumið inniheldur 3,4% glycolic- sýru sem slípar yfirborð húðar og hefur endurnýjandi eiginleika ásamt náttúrulegu innihaldsefni, Moonlight kaktus Flower, sem kemst dýpra nið- ur í húðlögin og hefur viðgerðar- og verndandi eiginleika. Það má því segja að húðin dragi strax úr þreytumerkjum. Þegar þú ert búin að setja serum á þig skaltu bera á þig Prodigy Cellglow frá Helenu Rubinstein sem er ný vara sem fyllir húðina ljóma, þéttir hana og jafnar litar- háttinn. Það má nota kremið eitt og sér en það ver okkur gegn skaðlegum geislum. Einnig er hægt að nota kremið sem farða- grunn því það gefur húðinni jafnari áferð. Þegar við eldumst er svolítið mikilvægt að nota farðagrunn svo áferð húðarinnar verði aðeins sléttari. Nýi farðinn frá Max Factor, Miracle Second Skin, verndar og nærir húðina með áferð sem lítur út eins og húðin sjálf. Þetta er hinn fullkomni farði fyrir þær sem vilja ekki virka mikið málaðar. Það sem er gott við þennan farða að hann er frábær fyrir fjarfundinn en líka dagsdaglega þegar eðli- legt líf tekur við. Formúlan hylur ójöfnur og jafnar húðtóninn ásamt því að næra húðina og vernda með kókosmjólk og góðgerlum. Miracle Second skin er með SPF20. Svo er það skyggingin. Það er gott að skyggja andlitið vel fyrir fjarfundinn því ljósið frá skjánum fletur andlitið út. Þú getur notað sólarpúður til að skyggja andlitið en svo gætir þú gengið skrefinu lengra og sett svolítið dökkan farða undir kinnbeinin og skyggt andlitið þannig og sett svo sólarpúður eða kinnalit yfir kinnbeinin. Stay Naked Threesome pallettan frá Urban Decay kemur til bjargar í þessu árferði en hægt er að leika sér með lit- ina þrjá. Þá er komið að augunum. Settu vatns- heldan blýant inn í vatnslínuna allan hringinn og rammaðu þannig inn augun. Svo skaltu setja á þig mjög mikinn maskara. Monsieur Big frá Lancôme kemur til dæmis sterkur inn ef þú vilt láta líta út fyrir að vera með mjög löng og þykk augnhár. Svo er maskara- tvennan frá Max Factor líka að gera frábæra hluti. Um er að ræða Max Out Blue Primer sem er er fullkomin fyrir þær sem vilja áhrifamikla breytingu á augnhárunum. Bláa pigmentið í maskaranum gefur aukna dýpt í svartan lit maskarans, birtir augnsvæðið ásamt því að örtrefjar þykkja og lengja augnahárin. Þessi blái primer er settur undir annan maskara eins og til dæmis Falsh Lash Effect-maskarann. Ef þessi tvenna er notuð saman ertu í toppmálum og augnhárin verða mjög löng. Það er líka hægt að nota bláa primerinn einan og sér ef þú vilt bara smá bláan tón. Falsh Lash Effect Maskarinn er einn af best seldu möskurunum frá Max Factor og þekktur fyrir að lengja og lyfta augnhár- unum. Maskarinn er nú kominn í nýjum lit, Raven Black. Hrafnsvarta pigmentið með bláum tónum opnar augnsvæðið og augnhár- in ná nýjum hæðum. Maskarinn er með þétt- um gúmmíhárum í burstanum sem greiða augnhárin vel í sundur, lengir og þykkir. Augnhárin klessast ekki en margfaldast. Maskarinn inniheldur B5 Pro-Vítamín. Þegar þú ert búin að setja á þig maskara er lítið eftir nema setja örlítinn lit í augabrún- irnar til að ramma andlitið inn. Það hefur aldrei verið jafn auðvelt að ná hinum full- komnu augabrúnum og nú með Real Brow Fill & Shape augabrúnapennanum. Tveggja hliða penni með skáskornum penna sem auð- veldar mótun á augabrúnum og mótun á hár- strokum. Á hinum endanum er augabrúna- púður í svampkenndum bursta. Hann fyllir upp í augabrúnina og gefur henni meiri fyll- ingu. Það sem er gott við þennan augabrúna- penna að augabrúnirnar haggast ekki allan daginn. Þú getur því haldið hvern fjarfundinn á fætur öðrum án þess að útlitið fari úr skorð- um. Og svona til að toppa útlitið þá væri ekki úr vegi að bera á sig 999 litinn frá Christian Di- or. Rauðar varir hressa nefnilega alltaf upp á stemninguna hvort sem þú ert í teiti eða á fjarfundi í vinnunni. Max Out Blue primer maskarinn frá Max Factor gerir augnhárin ennþá þykkari og glæsilegri. Pure Shots heitir nýja lín- an frá YSL. Hún er mjög góð fyrir fólk sem er komið yfir fertugt. Hér sést hvað augnhárin verða löng og falleg með því að nota Monsieur Big frá Lancôme. 12.4. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Lesið vandlega upplýsingarnar á umbúðumog fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingumumáhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220Hafnarfjörður | www.wh.is Dolorin Hita- og verkjastillandiparacetamólÁ HAGSTÆÐUVERÐI! Nýjar umbúðir Dolorin500mg paracetamól töflur 20stkog30stk

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.