Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2020, Qupperneq 20
sögunni. Ég notaði True Skin Radiant Priming Serum
frá ILIA en ég er mjög hrifin af þessari formúlu. Hún er án
óæskilegra aukaefna, sílikonlaus og gerir húðina mun
sléttari og minnkar svitaholur. Allur farði sem fer svo
ofan á helst mun betur yfir daginn.
Næst bar ég hyljara undir augun og aðeins yfir T-
svæðið til að lýsa það upp. Sjálf nota ég alltaf Radi-
ant Creamy Concealer frá NARS eða True Skin
Serum Concealer frá ILIA.
Hinn magnaði púðurfarði sem ég notaði er glæ-
nýr á markaðnum og nefnist Synchro Skin Self-
Refreshing Custom Finish Powder Foundation frá
Shiseido. Púðuragnirnar eru svo fínmalaðar að áferðin
verður nánast kremkennd. Formúlan ber með sér að vera
næsta kynslóð af púðurfarða þar sem ActiveForce-tækni
heldur húðfitu og svita í skefjum, Responsive Sensory-tækni lagar formúluna að ástandi húð-
arinnar og eins býr formúlan yfir litaleiðréttandi eiginleikum. Þessi púðurfarði er langvarandi
og mér fannst hann gefa mér góða miðlungsþekju. Hægt er að setja annað lag af honum yf-
ir húðina til að fá aukna þekju en yfirleitt fannst mér það ekki þurfa.
Til að spara pláss í töskunni og tíma þá notaði ég Studio Fix Sculpt & Shape Contour
Palette frá MAC til að móta andlitið en einnig sem bronser og augnskugga. Þetta spar-
aði mikinn tíma því þessi palletta er skotheld og ég elska svona fjölþættar snyrtivörur.
Eins nota ég þessa pallettu til að móta augabrúnirnar.
Til að klára augnförðunina notaði ég Woody Eye Liner frá GOSH í litnum 002 Mahog-
any. Þessi umhverfisvæni, vegan og ofnæmisprófaði augnblýantur hefur á stuttum tíma
orðið einn af mínum uppáhalds. Einn mest notaði maskarinn minn, Lash Volumiser 38°C
frá Sensai, var svo að sjálfsögðu notaður á augnhárin. Báðar þessar vörur eru langvarandi
og entust allan daginn á augunum án þess að hreyfast.
Að lokum setti ég Mineralize Blush frá MAC í litnum Like Me, Love Me á kinn-
arnar, aðeins yfir augnlokin og yfir varasalvann á vörunum. Þarna var ég komin með
smá mónókróm-förðun, sem ég hef verið mjög hrifin af undanfarið.
Vertu með á Instagram:
@Snyrtipenninn
Fyrir ekki svo löngu var ég stödd erlendis áráðstefnu þar sem ég þurfti að hafa útlitið ílagi fjóra daga í röð frá níu á morgnana til
tíu á kvöldin.
Þar sem ég verð seint þekkt fyrir að vera A-
manneskja sem myndi vakna eldsnemma til að líta
sem best út þurfti ég að framkalla fullkomna förð-
un á sem skemmstum tíma til að hámarka svefntím-
ann.
Yfirleitt tekur það mig um tvo klukkutíma að fram-
kalla fullkomna förðun (stefnumótamark-
aðurinn er dauður svo ég leyfi mér að upp-
ljóstra slíkum leyndarmálum núna) svo ég
ákvað að stytta það ferli um 110 mínútur.
Þetta tókst mér en hvert var leyni-
vopnið? Púðurfarði.
Elsku púðurfarðinn hefur fengið svo-
lítið slæmt orðspor síðustu árin og á tímabili var
ástandið svo slæmt að ég þorði ekki að láta sjá mig
með púðurfarða í töskunni. Nú er þó öldin
önnur því ný kynslóð af púðurförðum hefur
litið dagsins ljós og gera þeir húðina full-
komna á skotstundu.
Staðreyndin er þó sú að þeir eru meira
þurrkandi en fljótandi farðar en með því að
bera vel af andlitskremi á húðina fyrst og
nota svo nærandi farðagrunn var þetta vandamál úr
NARS Radiant
Creamy Concealer,
4.675 kr. (Cult-
Beauty.co.uk)
Falleg förðun
þarf ekki alltaf að
taka langan tíma.
Sensai Lash Volumiser
38C, 4.800 kr.
(Beauty-box.is)
Shiseido
Synchro Skin
Self-Refreshing
Custom Finish
Powder Founda-
tion, 7.599 kr.
Fullkomin
förðun á 10
mínútum
MAC Studio
Fix Sculpt &
Shape Conto-
ur Palette,
10.590 kr.
ILIA True Skin
Radi-ant Prim-
ing Serum,
7.990 kr.
(Nola.is)
Skjáskot/Instagram
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.4. 2020
LÍFSSTÍLL
Þetta leynivopn í snyrtivesk-
inu gerir það mögulegt að
farða sig á skotstundu.
Lilja Ósk Sigurðardóttir
snyrtipenninn@gmail.com
GOSH
Woody Eye
Liner (002
Mahogany),
1.299 kr.
MAC Mineralize
Blush í litnum
Like Me, Love
Me, 5.290 kr.