Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2020, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.4. 2020
LESBÓK
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur
beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann.
Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
ROKK Nýjasta sólóplata rokksöngkonunnar Cherie
Currie, Blvds Of Splendor, kemur út í stafrænu formi
undir lok mánaðarins en hún var upphaflega gefin út í
takmörkuðu upplagi á vínyl í fyrra. Currie er frægust
fyrir að hafa verið söngkona stúlknabandsins Runaways
meðan hún var ennþá táningur á áttunda áratugnum en
með henni í bandinu voru m.a. Joan Jett og Lita Ford.
Currie leggur einnig stund á keðjusagarlist og slasaðist
lífshættulega við þá iðju árið 2016 en greri sára sinna.
Meðal gesta á nýju plötunni eru rokkgoðsagnir á borð
við Billy Corgan, Slash og Duff McKagan. Þá kemur
leik- og söngkonan Juliette Lewis einnig við sögu. „Ég
hef aldrei skemmt mér eins vel við gerð plötu,“ segir
Currie í kynningarefni sem fylgir útgáfunni.
Currie aftur á kreik
Cherie Currie
í essinu sínu. AFP
POPP „Ögrandi plata frá einni djörfustu
röddinni í poppheimum.“ Þannig kemst
gagnrýnandi breska blaðsins The Independ-
ent að orði um fyrstu breiðskífu bresk/
japönsku söngkonunnar Rinu Sawayama sem
kom út í gær. Platan, sem ber ættarnafn
söngkonunnar, fær fjórar stjörnur af fimm
mögulegum og gagnrýnandinn, Elisa Bray,
er ánægð með hversu víða tónlistin teygi
anga sína – enda hafi Sawayama sagt að
henni leiðist mjög auðveldlega staldri hún of
lengi við á sama stað. Þá komi hún víða við í
textagerðinni líka, yrkisefnið sé allt frá
gelgjuangist yfir í loftslagsbreytingar.
Frá gelgjuangist yfir í loftslagsmál
Rina Sawayama fær ljómandi góða dóma.
AFP
Beastie Boys í stuði árið 2004.
Mynd um
Beastie Boys
SJÓNVARP Aldarfjórðungi eftir
að hann leikstýrði hinu fræga
myndbandi við lagið Sabotage er
kvikmyndagerðarmaðurinn Spike
Jonze aftur kominn í samstarf við
Beastie Boys. Nú er það heimildar-
mynd um hið goðsagnakennda
rappband, sem kallast einfaldlega
Saga Beastie Boys og verður frum-
sýnd á Apple TV+ í lok vikunnar.
Eftirlifandi meðlimir, Mike Dia-
mond (Mike D) og Adam Horovitz
(Ad-Rock), segja þar sögu sína, en
að eigin sögn voru þeir í upphafi
miðlungsrapparar, frægir í fjórtán
húslengda radíus, en voru svo allt í
einu farnir að vinna með Rick Rub-
in og túra með sjálfri Madonnu.
Þriðji meðlimurinn, Adam Yauch
(MCA), lést árið 2012 af völdum
krabbameins.
Í þáttunum er rætt við afreksfólkí íþróttum sem hefur með ein-stöku hugarfari og þrautseigju
sigrast á ólíkum áskorunum í gegn-
um lífið, innan vallar og utan.
Áhorfendur kynnast viðmælendum í
sínu náttúrulega umhverfi og fá að
sjá hliðar sem fáir ef nokkrir
þekkja, að baki sögum sem flestir
hafa heyrt; kynnast manneskjunni
undir búningnum. Rætt er við sam-
starfsfólk, fjölskyldu og vini og kaf-
að undir yfirborðið í sögu hvers og
eins.“
Þannig hljómar kynning á Áskor-
un, þáttum sem hófu göngu sína á
fimmtudaginn var. Um er að ræða
fimm þætti sem koma inn í Sjón-
varp Símans Premium á fimmtu-
dögum og eru svo sýndir í línulegri
dagskrá í Sjónvarpi Símans sama
kvöld. Umsjón hefur Gunnlaugur
Jónsson, fjölmiðlamaður og fyrrver-
andi knattspyrnumaður og -þjálfari.
„Það eru tvö ár síðan ég fékk
þessa hugmynd,“ segir Gunnlaugur.
„Ég var að leita mér að vinnu á
þeim tíma og hugsaði með mér að
gaman yrði að kafa svolítið í
íþróttasöguna. Það er alltof lítið
gert af því hér á landi. Ég fór á
stúfana til að kynna hugmyndina og
Sagafilm sýndi henni fljótlega
áhuga og skömmu síðar kom Sjón-
varp Símans inn í verkefnið.“
Af vettvangi fjölmiðla er Gunn-
laugur sennilega þekktastur fyrir
útvarpsseríuna „Árið er“ sem hann
vann með Ásgeiri Eyþórssyni fyrir
Rás 2 en eina reynsla hans af sjón-
varpi voru heimildarþættir sem
hann gerði um Eurovison-sögu Ís-
lands fyrir nokkrum árum. Þá gerði
hann hlaðvarpsþættina Návígi fyrir
Fótbolta.net sem voru einskonar
upptaktur að Áskorun.
„Þetta var allt annars konar
vinna en þegar ég gerði þættina um
Eurovision, hér er ég að vinna efni
frá grunni. Enda tók þetta tíma, tvö
Manneskjan
undir
búningnum
Í Áskorun, nýrri þáttaröð í Sjónvarpi Símans, ræð-
ir Gunnlaugur Jónsson, fjölmiðlamaður og fyrr-
verandi knattspyrnumaður, við íslenskt afreks-
fólk í íþróttum á persónulegum nótum.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Elísabet Gunnarsdóttir knattspyrnuþjálfarinn sigursæli í Svíþjóð var viðmæl-
andi Gunnlaugs í fyrsta þættinum af Áskorun. Alls verða þættirnir fimm talsins.