Hreyfing - 01.06.1999, Page 3
Sigrún Hjálmtýsdóttir
Hvatning frá
Sigrúnu Hjálmtýsdóttur!
Allar viljum við líta vel út og láta okkur líða sem best. Ýmsum meðulum hefur verið beitt til að ná
þessum markmiðum okkar, en tilfellið er að engin leið er jafn árangursrík og reglubundin hreyfing,
ef við viljum ná varanlegum árangri.
f hraða nútímasamfélagsins skiptir það miklu máli að við áttum okkur á því að einfaldar skyndi-
lausnir í hreyfingu og mataræði skili okkur ekki því sem við viljum. Við verðum að gefa okkur tíma
til þess að rækta okkur sjálfar, andlega og líkamlega.
Sem uppalendur verðum við líka að gera okkur grein fyrir því hversu miklar fyrirmyndir við erum.
Það læra nefnilega börnin sem fyrir þeim er haft. Með réttum áherslum og jákvæðum gildum gerum
við líf barnanna okkar enn betra. Jákvæður lífstíll okkar verður sjálfsagður lífstíll barnanna okkar.
Ég skora á ykkur kæru kynsystur að taka þátt í Kvennahlaupinu þann 19. júní næstkomandi og
um leið hvet ég ykkur til þess að láta ekki þar við sitja heldur gera reglubundna hreyfingu sjálfsagða
og eðlilega í nútímalegum lífsstíl ykkar, rétt eins og hollt mataræði og líf án tóbaks.
Góða skemmtun í Kvennahlaupinu!
Diddú.
3