Hreyfing - 01.06.1999, Blaðsíða 7

Hreyfing - 01.06.1999, Blaðsíða 7
VERTU FRJÁLS — reyklaus Staðreyndir um reykingar kvenna • í tóbaksreyk eru 40 krabbameinsvaldandi efni. • Börn sem búa við óbeinar reykingar í móðurkviði verða fyrr háð nikótíni ef þau byrja að fikta við reykingar síðar. • Samkvæmt nýlegri bandarískri rannsókn má rekja um 100.000 fósturlát beint til reykinga móðurinnar. Þetta samsvarar 100 fósturlátum á íslandi. • Reykingar þungaðra kvenna í Bandaríkjunum leiða til þess að 10.000 nýburar eru lagðir inn á gjörgæslu á hverju ári vegna heilaskaða og burðarmálsdauða. • Enn ein könnunin í Bandaríkjunum sýndi að í þvagi margra nýbura, sem bjuggu við reykingar í möðurkviði, var að finna efnið NNK sem er aukaefni nikótíns en það getur valdið krabbameini seinna á lífsleiðinni. • Vöggudauði er mun algengari meðal barna sem búa hjá foreldrum sem reykja. • Eitt af hverjum fjórum börnum undir 18 mánaða aldri sem verða fyrir óbeinum reykingum fær af því astmakennda berkjabólgu. • Ef ein sígaretta er reykt í návist barns er hægt að mæla niðurbrotsefni nikótíns í þvagi barnsins þremur dögum síðar. • Stúlkur með lítið sjálfstraust og lélega sjálfsmynd eru líklegri til að byrja að reykja en aðrar stúlkur. • Stúlkur sem reykja fá frekar cellulite (appelsínuhúð) en þær sem ekki reykja. • Stúlkur, sem eiga foreldra sem reykja, eru í tvölfalt meiri hættu að byrja að reykja en stúlkur frá reyklausum heimilum. • Konur sem reykja eru að jafnaði þyngri en reyklausar konur. • Tíðarhvörf hjá konum sem reykja verða 2-3 árum fyrr en hjá reyklausum konum. • Konur sem reykja 25 eða fleiri sígarettur á dag eru í 44 faldri áhættu að fá lungnakrabbamein miðað við konur sem reykja ekki. • „Light" og „slim" sígarettur, sem eru markaðssettar fyrir konur, eru jafn skað- legar og aðrar sígarettur. Þær sem reykja „léttar" sígarettur hafa tilhneigingu til að sjúka reykinn dýpra ofan í lungun en það veldur óviðráðanlegra krabba- meini en ella. • Mæður eru sterkustu fyrirmyndir barna sinna og þeir unglingar sem búa við leiðandi uppeldishætti eru ólíklegri til að reykja en unglingar afskiptalausra, skipandi og eftirlátra foreldra. • Aðeins 4% kvenna í Harvard háskóla reykja. Ætli þetta sé spurning um gáfna- far? 7

x

Hreyfing

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hreyfing
https://timarit.is/publication/1456

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.