Hreyfing - 01.06.1999, Blaðsíða 5
Ertu að
ganga,
skokka
eða
hlaupa?
Ertu í þeim skóm sem
henta þér best? —
Við notum svokallað hlaupaband með upptökubúnaði til að
komast að því hvaða skór henta þér best. Þú gengur eða hleypur berum fótum á bandinu og við
skoðum ramma fyrir ramma í sjónvarpsskjá hvernig þú stígur niður. Þannig getum við séð hvort
þú þarft skó með styrkingu að innanverðu eða utanverðu, sérstaklega stöðuga skó o.s.frv. Við
hjálpum þér síðan að velja og máta rétta skó miðað við þínar þarfir, 2-3 gerðir, og skoðum síðan
aftur á bandinu hverjir henta best.
Hjá okkur er geysimikið úrval af hlaupaskóm og hlaupafatnaði og það er allt á samkeppnishæfu
verði. Við erum til dæmis með vörur frá: Nike, Adidas, Asics, Reebok, Brooks, Mizuno,
Saucony og Fila.
STOÐTÆKNI
Sérverslun
hlauparans
m
Kringlunni 8-12 • 3. hæð Uppsölum
Sími 581 4711