Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2020, Síða 6
MEST LESIÐ
Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST...
Fjölskylda í felum
Egypskri fjölskyldu var neitað um alþjóðlega vernd á Íslandi
í nóvember og átti að vísa henni úr landi á miðvikudag. Fjöl-
skyldan fannst þó ekki þegar yfirvöld bar að garði og er nú í
felum á Íslandi. Málið hefur vakið mikla athygli. Dómsmála-
ráðherra segir reglur ekki eiga við í tilviki fjölskyldunnar sem
hefur dvalið hér í tvö ár og fest rætur og ekki komi til greina
að breyta reglunum til að heimila fjölskyldunni að setjast að
á Íslandi.
Tilfellum fjölgar
Staðfestum tilfellum af COVID-19 smiti fjölgaði mikið í vik-
unni sem leið. Meðal annars kom upp smit í Háskóla Íslands, í
íbúðakjörnum fyrir fatlað fólk og á Reykjalundi svo dæmi séu
tekin. Þriðjungur tilfella hefur verið rakinn til vínveitinga-
staða og voru fæstir þeirra sem greindust í sóttkví.
Jarðskjálftar
Nokkuð var um snarpa skjálfta í vikunni sem leið en tæp-
lega 830 skjálftar voru mældir á mælakerfi Veðurstofu. Á
laugardag varð skjálfti af stærðinni 3,0 sem átti upptök rétt
við Kleifarvatn. Á mánudag skalf jörð á Dalvík og Ólafs-
firði vegna skjálfta sem mældist 3,4 og átti upptök sín 12
kílómetra norðvestur af Gjögurtá. Öflugur skjálfti varð í
Vatnajökli aðfaranótt þriðjudags og var hann 3,3 að stærð.
Síðdegis á þriðjudag kom enn stærri skjálfti, 4,6 að stærð, á
Norðurlandi með upptök í Skjálfandaflóa. Fannst sá skjálfti
vel á Húsavík og Akureyri. Síðar um daginn kom annar stór
skjálfti á svipuðum slóðum sem var 4,0 að stærð. Eldfjalla-
fræðingur hvetur Húsvíkinga til að huga að skjálftavörnum
á heimilum.
Eyþór og Dóra í hár saman
Borgarfulltrúarnir Dóra Björt
Guðjónsdóttir hjá Pírötum og
Eyþór Laxdal Arnalds hjá
Sjálfstæðisflokki hafa eldað
grátt silfur í vikunni. Dóra
hefur ítrekað nýtt vettvang
fjölmiðla og borgarstjórnar
til að ásaka Eyþór um mútu-
þægni á meðan Eyþór sakar
Dóru Björt um lygar og íhugar
að leita réttar síns gagnvart
henni.
Til rannsóknar vegna barnakláms
Fjórir íslenskir karlmenn eru til rannsóknar lögreglu og
ákæruvalds eftir að gríðarlegt magn barnaníðsefnis fannst í
fórum þeirra. Tvö málanna eru komin til ákæruvalds og rann-
sókn lögreglu er á lokastigi í málum hinna tveggja. Lögreglan
komst á spor mannanna eftir að Danir gerðu viðamikla rann-
sókn á dreifingu og vörslu barnaníðsefnis seint á síðasta ári.
Mennirnir höfðu aldrei komið við sögu lögreglu áður.
Brutu siðareglur
Framkvæmdastjóri og ritstjórar Fótbolta.net brutu siðareglur
blaðamanna þegar þeir nafngreindu Andreu Rán Snæfeld,
leikmann Breiðabliks, eftir að hún greindist með COVID-19
sjúkdóminn. Brotið var metið alvarlegt.
1 Guðmundur Elís braut gegn fleiri konum – Óhugnanlegar lýsingar
í Kastljósi og langur afbrotaferill
Guðmundur Elís Sigurvinsson hefur
verið dæmdur fyrir gróf ofbeldisbrot
gegn konum. Þolandi hans steig fram
í Kastljósi og sagði sögu sína.
2 11 drengur fannst látinn í Garða-bæ – „Málið er í rannsókn“
11 ára drengur lést af völdum skot-
sárs í heimahúsi í síðustu viku.
3 Auður giftist á Litla-Hrauni og hefur ekki fengið að snerta
manninn sinn síðan – „Ég veit ekki
hvort ég að hlæja eða gráta“ Vegna
COVID fær Jóna Auður Haraldsdóttir
ekki að snerta eiginmann sinn sem
hún giftist á Litla-Hrauni í júlí.
4 Lára opnar sig um nóttina ör-lagaríku á Hótel Sögu – „Það
var gott að kyssa hann“ Lára
Clausen, önnur af íslensku stúlkunum
sem fóru á hótel enska landsliðsins,
steig fram í einkaviðtali við Daily Mail.
5 Páll segir egypska fjölskyldu-föðurinn vera „ósvífinn“ og
Mogginn tekur undir – „Samtökin
eru viðurkennd öfgasamtök“ Páll
Vilhjálmsson, blaðamaður og kenn-
ari, benti á tengsl föðurins í egypsku
fjölskyldunni sem vísa átti úr landi við
samtökin Bræðralag múslima.
6 Mynd af knattspyrnustjörnu vekur mikla athygli vegna
kynfæra – „Er hann með snák í
stuttbuxunum?“ Aðdáendur mark-
manns Chelsea fengu áfall þegar
mynd birtist af honum, en á myndinni
virtust kynfæri hans risastór.
7 Nadía segir sögu sína af nótt-inni á Hótel Sögu í einkaviðtali
við The Sun – „Það gerðust hlutir“
Nadía Sif Líndal, hin stúlkan sem fór
á fund við ensku landsliðsmennina,
steig fram í breskum fjölmiðlum og
sagði sögu sína.
8 Nadía og Lára stíga fram í fyrsta íslenska viðtalinu – „Ég eyddi
13 þúsund kalli í þessa drengi“ Þær
Nadía Sif Líndal og Lára Clausen
stigu fram í hlaðvarpi Sölva Tryggva-
sonar.
iPhone viðgerðir
facebook.com/biladursimi
780 7459
www.biladursimi.com
6 FRÉTTIR 18. SEPTEMBER 2020 DV