Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2020, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2020, Blaðsíða 30
Jenelle Potter átti að sögn erfiða ævi í smábænum Mountain Town í Tennes­ see. Þar búa um 2.500 manns. Fjölskyldan flutti þangað árið 2005 þegar Jenelle var 23 ára. Eldri systir hennar var flutt að heiman en Jenelle var óvinnu­ fær og stríddi við ýmsan heilsubrest. Sykursýki, skert heyrn og kvíðaröskun voru aðeins hluti af því. Foreldrar Jenelle vernduðu hana stíft og hún var mjög einangruð. Hún hitti fáa en varði miklum tíma á netinu þar sem hún lét gamminn geisa undir öðrum nöfnum, fyrst á spjallrásum og síðan á Facebook, eftir að sá frægi samfélagsmiðill kom til sögunnar. Segja má að Jenelle hafi lifað lífi sínu að miklu leyti á samfélags­ miðlum. Foreldrar hennar eru Bar­ bara og Marvin Potter. Mar­ vin var fyrrverandi her­ maður í sjóhernum og hafði þjónað í Víetnam. Hann hafði einnig, að eigin sögn og Bar­ böru, starfað fyrir CIA, en sanngildi þeirra yfirlýsinga er dregið mjög í efa. Þegar þarna var komið sögu stríddi Marvin við ekki minni heilsu­ brest en dóttirin Jenelle og var óvinnufær. Barbara hafði starfað fyrir Hewlett Packard en hún helgaði sig núna um­ önnun veikra ættingja, sem voru ástæðan fyrir því að fjöl­ skyldan hafði flutt til Moun­ tain Town. Jenelle eignast vini Það var í kringum 2010 sem einangrun Jenelle í Mountain Town var rofin að nokkru leyti. Þá sá lyfjatæknirinn Tracy Greenwell aumur á henni og gaf sig á tal við hana, dag einn þegar Jenelle var að sækja lyfin sín í apó­ tekið. Eftir þetta varði Jenelle nokkrum tíma með Tracy og vinum hennar, sem og bróður hennar Billy Payne. Jenelle varð bálskotin í Billy sem endurgalt það ekki, heldur tók saman við konu að nafni Billie Hayworth. Árið 2011 eignuðust þau barn saman. Tracy kynnti Jenelle líka fyrir frænda sínum Jamie Curd og þau áttu í ástarsam­ bandi sem þau héldu leyndu fyrir hinum ströngu og of­ verndandi foreldrum Jenelle, en hjónin héldu að Jamie væri bara heimilisvinur enda sótti hann líka í félagsskap þeirra og kom oft á heimilið. Hvað sem leið sambandinu við Jamie var Jenelle áfram mjög hrifin af Billy og var mjög ósátt við samband hans við Billie og að þau hefðu eignast barn saman. Hún sagði að hún hefði átt að fæða honum barn. Ofsóknir á netinu En einmitt þegar félags­ lífið virtist loksins farið að blómstra hjá Jenelle varð hún fyrir miklum og vaxandi ofsóknum á netinu. And­ styggileg nafnlaus skilaboð fóru að birtast á Facebook­ síðunni hennar. Móðir hennar Barbara, setti inn skilaboð þar sem hún bað fólk um að skrifa ekki á síðuna hennar. Það hafði engin áhrif. Jenelle hélt því fram að Billie Hayworth stæði á bak við ofsóknirnar. Jenelle sagði jafnframt að fólkið öfundaði hana af því hvað hún væri fal­ leg og það væri ástæðan fyrir ofsóknunum. Þessar ásakanir Jenelle urðu hins vegar til þess að Billy og Billie afvin­ uðu hana á Facebook, nokkuð sem henni mislíkaði mjög. Hryllileg morð Þann 31. janúar árið 2012 kom vinur parsins Billy Payne og Billie Hayworth að þeim látnum. Þau höfðu bæði verið skotin í andlitið, auk þess hafði Billy verið skorinn á háls. Í fangi Billie var sjö mánaða gamalt barn hjónanna, og var á lífi, ósært. Rannsóknarlögreglumað­ urinn sem var yfir rannsókn málsins sagði við fjölmiðla að það þyrfti ótrúlega mann­ vonsku til að myrða konu með barn í fanginu. Meðal þeirra sem lögregla ræddi fljótt við í rannsókn­ inni voru Jenelle og fjöl­ skylda hennar, auk kærast­ ans/heimilisvinarins Jamie. Við yfirheyrslur sagði Jamie við lögregluna að hann hefði átt í skilaboðaspjalli við CIA­ mann sem sagði að setið væri um líf Jenelle. Eftir sex klukkustunda yfir­ heyrslur játaði Jamie að hafa myrt parið í félagi við Marvin Potter, föður Jenelle. Jamie féllst á að vinna með lögregl­ unni og tókst honum að út­ vega hljóðritun þar sem Mar­ vin gekkst við morðunum. CIA-maðurinn Chris Meðal þess sem fannst við húsleit hjá Potter­fjöl­ skyldunni voru fjölmargar ljósmyndir af parinu Billy og Billie og mikið magn af útprenti sem innihélt tölvu­ póstsamskipti við mann að nafni Chris, fulltrúa hjá CIA. Chris átti mest tölvupóstsam­ skipti við Barböru, móður Jenelle. Chris sagði henni að setið væri um líf Jenelle og fólkið sem ætlaði að vinna henni mein væru þau Billy og Billie. Í augum Chris væru þau bæði réttdræp. Þetta var vægast sagt sér­ kennilegt. Hvers vegna í ósköpunum var CIA­maður að skipta sér af fábrotnu fólki í smábæ í Tennessee? Þar að auki var textinn sem maðurinn skrifaði barnaleg­ ur og fullur af stafsetningar­ villum. Enn fremur komust rannsóknarmenn að því að IP­tala þessa Chris tilheyrði í raun tölvu á heimilinu. Það var Jenelle sem hafði skrifað alla þessa tölvupósta. Fyrir­ myndin að þessum Chris var Chris Hayden, gamall bekkj­ arbróðir Jenelle sem vann við öryggisvörslu. Hann vissi ekkert um þetta. Enn fremur kom í ljós að allar ofsóknir gegn Jenelle á Facebook voru tilbúningur hennar. Hún hafði stofnað gerviaðganga og skrifað þetta allt sjálf. Jenelle var einföld stúlka sem hafði lifað vernduðu lífi og hvorki sótt sér fram­ haldsmenntun né starfs­ reynslu. Auk þess glímdi hún við geðræn vandamál. Þetta kom ekki í veg fyrir að henni tækist að sannfæra hina of­ verndandi foreldra sína um að líf sitt væri í hættu og fá þá til að myrða saklaust fólk. Þessu dæmalausa máli lauk með þungum fangelsis­ dómum. Marvin, faðir Jenelle, fékk tvöfalt lífstíðarfangelsi. Jamie Curd gerði samkomu­ lag við saksóknara og vann með lögreglunni, en hann fékk 25 ára fangelsi. Mæðgurnar Jenelle og Barbara fengu báðar lífstíðarfangelsi. n SAKAMÁL Ágúst Borgþór Sverrisson agustb@dv.is Tvær manneskjur myrtar eftir ímyndað rifrildi á Facebook CIA-fulltrúinn Chris hafði mikil áhrif á fjölskyldu eina í smábæ í Tenn essee. Hann taldi dótturina á heimilinu vera í hættu og hvatti foreldra hennar til að ráðast til atlögu við stórhættulegt par sem bjó í bænum og ofsótti dótturina. Allt reyndist tal hans tóm þvæla. Jenelle Potter varð fyrir miklum ofsóknum og hún taldi líf sitt vera í hættu. Ekki var þó allt sem sýndist. MYND/FACEBOOK Billy Payne og Billie Hay­ worth voru myrt. MYND/SKJÁSKOT AF YOUTUBE 30 FÓKUS 18. SEPTEMBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.