Iðnaður og tízka - 01.09.1933, Blaðsíða 6

Iðnaður og tízka - 01.09.1933, Blaðsíða 6
Hvers vegna á ég að vera rétt klæddur ? Sá maður, sem kýs að klæða sig rétt, sér mjög vel, hve mikinn persónulegan hag hann hefir af því. Sá maður, sem stendur algerlega á sama um klæðnað sinn, á bágt með að skilja, hve þetta kæru- leysi er honum til mikils ófarnaðar. Það er ekki beint fjárhagsatriði, þótt oft fáist tiltölulega lítið fyrir mikla peninga. Skilningur og smekkur kaupandans ræður mestu um það, hversu vel hann getur klæðzt fyrir sem minnsta penínga. í viðskiptalífinu er réttur klæðnaður áríðandi. Heppni og góður árangur hvílir oft að nokkru á því. Sjálfstraust margra er undir því komið, að þeir séu sér þess meðvitandi, að framkoma þeirra sé lýtalaus og geti verið í hvaða félagsskap sem er, án þess að hafa það á tilfinningunni, að þeir eigi þar ekki heima. »Fötin skapa manninn« Það er því meiri sannleikur, sem felst í máltæk- inu: »Fötin skapa manninn«, en margur hefir tek- ið eftír. Það er ábyggilegt, að það, að vera rétt klæddur víð ýms tækifæri, eykur eigi svo lítið ánægj- una, hvort sem um er að ræða einka- eða sam- kvæmislíf. Aflið yður ánægju og sjálfstrausts með því að klæða yður rétt.

x

Iðnaður og tízka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaður og tízka
https://timarit.is/publication/1461

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.