Iðnaður og tízka - 01.09.1933, Blaðsíða 30

Iðnaður og tízka - 01.09.1933, Blaðsíða 30
Umfram allt notid ekki Svarta skó við gráar flónelsbuxur. Regnhlífar við sportföt. Of víðan harðan flibba. Mislitan silkivasaklút við kjól eða smoking. Skóhlífar við pokabuxur eða regnhlíf við sportföt. Svarta skó við brún föt. Lítaða emaille manchethnappa við kjól- eða sinokingskyrtu. Fínan svartan frakka við pokabuxur. Enska húfu við samkvæmisföt. Ljósbrúna skó við dökk föt. Tvíhneppt föt, ef þér eruð lágur vexti og þrekinn. Áberandi röndótt föt, ef þér eruð mjög hár og grannur. Lakkskó við hversdagsföt. A f þ v í a ð: Brúnir leðurskór fara miklu betur. Það á alls ekki saman. Hann fer illa Það er hlægilegt. Hvorttveggja er óviðeigandi. Það spillir samræminu. Silfur-, gulÞ eða perlulitir eiga miklu betur við, einnig svartir. Sportfrakki og pokabuxur eiga saman. Ensk húfa á við sportföt. Það bendir á slæman smekk. Þá sýnist þér ennþá minni og gild- ari. Þá sýnist þér ennþá hærri og grennri. Það er of mikið af því góða.

x

Iðnaður og tízka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaður og tízka
https://timarit.is/publication/1461

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.