Vísbending - 26.01.2016, Blaðsíða 1
ÍSBENDING
Vikurit um viðskipti og efnahagsmál
26. janúar 2016
3. tölublað
34. árgangur
ISSN 1021-8483
Náttúruspilling manna
Spilling er meinsemd í samfélaginu.
Fyrir hmn var talið að ísland væri
eitt óspilltasta land heimsins, en
þegar fjármálakerfi landsins hrundi til
grunna fór marga að gruna að maðkur
hefði verið í mysunni. Jafhframt vöknuðu
vonir um að blaðinu yrði snúið við og Is-
lendingar myndu snúa aftur á dyggðanna
braut. Svo var þó ekki ef marka má ný-
lega niðurstöðu samtakanna Transparancy
International, en þar kemur Island út lakar
en nágrannarnir á Norðurlöndum og fjöl-
miðlar lýsa því yfir að Island sé spilltast í
þessum ríkjahópi. Astæða er til þess að
staldra við og íhuga hvað veldur.
Hvað er spilling?
I íslenskri orSabók eru fjórar lýsingar á spill-
ingu: Spilling: 1 glötun, eyðilegging, 2
mútuþægni, 3 illir siðir, vont siðferði, sið-
leysi, 4 skemmd. Ekki er víst að allir taki
undir þessar orðskýringar, né röðina sem
þar er sett fram. Líklega myndu flestir setja
skýringu 3 í fýrsta sæti. Mútuþægni er auð-
vitað spilling, en varla samheiti. Athygl-
isvert er að talað er um skemmd og eyði-
leggingu, sem er bæði samheiti spillingar
og afleiðing spilltrar framkomu. Hallgrím-
ur Pétursson talar í Passíusálmunum um
náttúruspillingu manna í þeim skilningi að
allir geti verið spilltir.
Á heimasíðu áðurnefhdra samtaka er eft-
irfarandi skilgreining: Spilling er misnotkun
á vatdi sem manni er treyst jyrir. Þessi merk-
ing fer miklu nær því sem notuð er í daglegu
tali en orðabókarskýringin.
Athyglisvert er hvernig samtökin skil-
greina gegnsæi á sömu síðu: Gegnsœi þýðir
að varpa Ijósi á vafasama gjörninga (e. shady
deals), að reglum sé ekki fýlgt og annað
ólöglegt athæfi sem veikir góða stjómar-
hætti, siðferði í viðskiptum og samfélagið
almennt. Þarna er lögð áhersla á uppljóstrar-
ann, en ekki að gjörningar séu opinberir og
að allir hafi sömu aðstöðu. Að nokkm leyti
kann þetta að endurspegla tortryggnina
sem gegnsýrir mörg samfélög. Markmiðið
er að upplýsa það sem gert er rangt í stað
þess að gæta þess að menn breyti rétt.
Er ísland spillt?
Á árum áður voru tengsl stjórnmála mik-
il við alla þætti þjóðlífsins. Stjórnmála-
menn úthlutuðu sjálfir ýmsum gæðum og
þannig var það mikilvægt að vera innund-
ir hjá valdamönnum. Bankaráð ríkisbank-
anna voru mjög valdamikil og tóku beinar
ákvarðanir um útlán. Skortur var á láns-
fé og því voru þessi völd mikilvæg. Með
þessu móti gátu stjórnmálamenn bæði
umbunað sínum vildarvinum og keypt
nýtt fýlgi. Sumir töldu það sér til hróss að
vera fýrirgreiðslupólitíkusar, sem merkti
að þeirra skjólstæðingar fengu betri með-
ferð en aðrir.
Ef farið er enn lengra aftur má rifja
upp þá tíma þegar stjórnmálamenn út-
hlutuðu gjaldeyri og leyfi til bifreiðakaupa
svo dæmi séu tekin. Þeir sem ekki voru
innan kerfisins eða í röngum flokki fengu
engin leyfi. Fáir sakna þessara tíma.
Spillingu finna menn helst í úthlutun
fjármuna, en auðvitað er hægt að sjá hana
líka í deilingu annarra gæða. Þegar stjórn-
málamenn velja vildarvini í stöður sem
þeir úthluta er það líka misbeiting á valdi.
Hitt hafa menn líka bent á að ekki eigi
að leggja neinum til lasts að eiga stjórn-
málamann að vini. Einmitt þess vegna er
mikilvægt að fjarlægja stjórnmálamann-
inn frá beinum ákvörðunum um stöðu-
veitingar.
Pólitískar ákvarðanir
Þegar horft er um öxl virðist ljóst að spilling
hafi verið vanmetin á Islandi í könnunum
fýrir hrun. Ef nefna á dæmi um misbeitingu
valds stjórnmálamanna kemur salan á rík-
isbönkunum upp í hugann, en Geir H.
Haarde baðst á sínum tíma afsökunar á þeim
gjörningi, sem er óvenjulegt. Bankarnir voru
seldir svonefndum kjölfestufjárfestum, en sú
aðstaða sem þeim var aflient hafði mikil áhrif
á þróun mála fýrir hrun.
Decode fékk ríkisábyrgð ffá Alþingi,
ábyrgð sem reyndar kom aldrei til ffam-
kvæmda, en hún er eitt skýrasta dæmið
um misnotkun á löggjafarvaldinu í þágu
einstaks fýrirtækis. Vaðlaheiðargöng eru
annað dæmi um ríkisábyrgð fýrir einka-
aðila, en sú ábyrgð mun falla af fullum
þunga á ríkið. Einhver kann að telja að
eðli hennar sé annað, því að hún snúi að
almenningssamgöngum, en heiðarlegra
hefði verið að ríkið kæmi þá beint að fram-
kvæmdinni, því að fýrirsjáanlegt var að
ábyrgðin yrði virk.
framh. á bls. 2
T Spilling er mörgum töm. Hún: J Erfiðleikarnir í Kína hafa : l ^ Húsnæðisverð hefur A Forstjórar vita margt, en
I verður ekki upprætt með því • 4 J áhrif á hlutabréfaverð en • y J hækkað en ekki er enn að •{ ^ þeir eru ekki spádómlega
að ráðast á einkennin heldur j fleira kemur til. sjá sprengingu eins á árin : vaxnir þegar kemur að
undirrótina. 2005-8. : hlutabréfaverði.
VfSBENDING • 3.TBL. 2016 1