Vísbending - 26.01.2016, Blaðsíða 3
ÍSBENDING
Milljón prósent lán
Mynd 1: Hækkun launa og húsnæðis
umfram almennt verðlag 2001-15
fjölbýli • Sérbýli Laun
Heimildir: Hagstofa íslands, Þjóðskrá.
Mynd 1: Hækkun launa og húsnæðis
umfram almennt verðlag 2001-15
130
2011 2012 2013 2014 2015
...."'"Fjölbyli ......... Sérbýli .........1 Laun
Eitt af því sem setur svip sinn á
þjóðfélagsumræðuna er hve erfitt
er að eignast húsnæði. Vextir eru
háir og húsnæðisverð hefúr hækkað um-
fram almennt verðlag. Margir eiga enn í
erfiðleikum vegna þess að þeir keyptu á
árunum 2004-8 þegar íbúðaverð rauk
upp í kjölfar þess að bankarnir fóru að
veita íbúðarlán. Eftirá að hyggja var bólan
undanfari þess sem koma skyldi. Allir
fengu lán án þess að gerðar væru miklar
kröfur. Hundraðprósent lánin komu á
markaðinn haustið 2004.
Gjörbreyttur markaður
Fréttablaðið lýsti í nóvember 2004
breytingunni sem varð fyrr um haustið:
„KB banki reið á vaðið fyrstur þegar hann
bauð 4,4 prósent vexti og allt að 80 pró-
sent lánshlutfall á höfuðborgarsvæðinu.
Hinir bankarnir voru ekki lengi að svara
og fljótlega fóru allir bankarnir að bjóða
sömu kjör víðast hvar um landið. Ibúða-
lánasjóður hefur svo lækkað vexti sína -
nú síðast í 4,15 prósent. Þessu svöruðu
bankarnir umsvifalaust og bjóða nú allir
4,15 prósent vexti.
Islandsbanki var fýrstur til að bjóða
100 prósent veðsetningarhlutfall - en nú
bjóða þetta allir bankarnir. Auk þess hef-
ur afbrigðum íbúðalána fjölgað verulega
og nú stendur venjulegum einstaklingum
til boða mýgrútur ólíkra valkosta. Þetta
hefúr óneitanlega í för með sér að það er
vandasamara að taka ákvörðun um fjár-
mögnun íbúðarhúsnæðis en áður. Á það
ber hins vegar að líta að fyrir skemmstu
höfðu einstaklingar í raun aðeins einn
valkost þegar kom að því að taka stærstu
og mikilvægustu lán sem hver einstak-
lingur tekur.
Flestir eru því sammála því að
breytingin á markaðinum sé til mikils
góðs. Viðvörunarraddir hafa frá upphafi
bent á að þessir auknu möguleikar kunni
að verða til þess að fólk taki út stærra
lán en það þarf og verji mismuninum
í neyslu hvers kyns óþarfa sem hafi
vond áhrif á hagkerfið - sé þenslu og
verðbólguhvetjandi - og grafi undan
fjárhagslegum burðum fólks. Fáar
vísbendingar eru til þess að þessar
bölsýnisspár séu að rætast.“
Ekki er að efa að greining blaðsins
er rétt um að flestir hafi verið sammála
um að breytingin hafi verið til góðs. En
stundum lýgur almannarómur og svo
varð í þetta sinn. Skömmu eftir að þessi
Heimildir: Hagstofa ístands, Þjóðskrá.
mikla samkeppni um íbúðalánamark-
aðinn hófst hækkaði íbúðaverð mikið.
Ríkið fylgdi á eftir með því að hækka
veðhlutfall almennra lána sjóðsins úr
65 prósentum upp í 90 prósent. Skýrsla
Rannsóknarnefndar um sjóðinn telur að
þessi ákvörðun hafi endað illa og orðið
þjóðinni dýrkeypt. Sjóðurinn tapaði tug-
um, ef ekki hundruðum milljarða á þessu
ævintýri. Eins og svo oft deila menn um
hver upphæðin hafi nákvæmlega verið, en
gleyma aðalatriðinu að ekki var viðhöfð
hæfileg gætni við útlánin.
B andarík j amenn
klikkuðu líka
Svo vill til að einmitt núna er ágæt
bíómynd sýnd á fslandi, The Big Short.
Hún fjallar um nokkra einstaklinga sem
töldu að húsnæðismarkaðurinn hlyti
að hrynja í Bandaríkjunum. Þegar þeir
komu til stóru verðbréfafýrirtækjanna
var hlegið að þeim. Enginn markaður
væri öruggari. Þeim reyndist auðvelt að
fá að veðja gegn þessum markaði og voru
álitnir kjánar.
framh. á bls. 4
VÍSBENDING -3.TBL. 2016 3