Vísbending


Vísbending - 04.02.2016, Síða 1

Vísbending - 04.02.2016, Síða 1
ÍSBENDING Vikurit um viðskipti og efnahagsmal 4. febrúar 2016 4. tölublað 34. árgangur ISSN 1021-8483 Misjafnt gengi netrisanna Mynd: Gengi netrisa á hlutabréfamarkaði 2012-2016 •GOOGL-i.9o;w • v-'i •YHOO-Be Myndin sýnir þróun gengis frá því að Facebook var skráð á markað árið 2012. Rautt: Ya- hoo!, grænt Google, blátt facebook, gult Twitter. Heimild: Google Finance. ú í vikunni birtust fréttir af því að Yahoo! hefði ákveðið að fækka starfsmönnum um 1.700 og selja hluta af starfseminni í kjölfar þess að fyrirtækið tapaði 4,4 milljörðum Bandaríkjadala (570 milljörðum króna) á fjórða ársfjórðungi 2015. Á sama tíma var sagt frá því að Mark Zukerberg, hinn 31 árs eigandi Facebook, væri orðinn fjórði ríkasti maður heims. Samfélags- miðillinn Facebook var ekki talinn til góðra fjárfestingakosta þegar hann kom á markað árið 2012 og lækkaði strax í kjölfar þess að hann var skráður á mark- að. Nú hefúr fýrirtækið hins vegar mikið hækkað í verði og er nú um fjórfalt verð- mætara en fyrir tveimur og hálfu ári. Við skoðum helstu tölur fjögra netrisa, Face- book, Yahoo!, Google og Twitter. Sveiflur á markaði Á myndinni sést hvernig gengi hluta- bréfa í fyrirtækjunum hefur þróast undanfarin tæplega fjögur ár. Mikið var gert úr því á sínum tíma að Facebook hefði verið metið of hátt á markaði þegar hlutabréf í fyrirtækinu voru skráð árið 2012 og meðal annars fjallað um málið í Vísbendingu (sjá 20. tbl. 2012). Twitter (sem er samfélagsmiðill fyrir stutt skila- boð) gekk betur í upphafi, en síðan hefúr hallað undan fæti hjá félaginu. Verðmæti Googfe hefúr vaxið jafnt og þétt allt þetta tímabil og er nú tæplega þrefalt verðmætara en fyrir tveimur og hálfu ári. En það er ekki á vísan að róa í netfyrirtækjunum. Yahoo! var lengi mjög vinsælt, bæði hjá almenningi og fjárfestum. Vinsældirnar hafa greinilega minnkað og á 12 mánuðum hefúr gengi hlutabréfa í fé- laginu næstum lækkað um helming. Fj ár málaupplýsingar I töflunni sjást nokkrar helstu fjármála- upplýsingar um þessa fjóra netrisa. Ekki þarf að skoða tölurnar lengi til þess að uppgötva að þó að öll séu fyrirtækin stór á íslenskan mælikvarða eru þau mjög misstór. Google er langstærst með um 60 þúsund starfsmenn. Óhætt er að segja að Google komi víða við, allt frá sjálfstýr- andi bílum í gömlu góðu leitarvélina. Verðmæti félagsins er yfir 500 milljörð- um dala (65 billjónum ISK) og tekjurnar um 66 milljarðar dala eða um 8 billjónir króna. Eiginfjárhlutfall félagsins er þó ekki sérlega sterkt, þó að veltufé sé mikið og veltufjárhlutfall næstum 5,0. Facebook hafur nú náð um 60% af markaðsvirði Google þó að starfsmanna- fjöldinn sé aðeins um 20% og tekjurn- ar um 27% af tekjum hins síðarnefnda. EBIDTA er hins vegar afar mikil eða næstum helmingur af tekjum. Skuldir eru sáralitlar og veltufjárhlutfall sterkt. Fyrirtækið á því mikla möguleika á stór- sókn ef það vill. Yahoo! réði til sín Marissu Mayer í upphafi þess tímabils sem hér er til skoðunar. Hún kom frá Google og til að byrja með var markaðurinn afar ánægður með frammistöðu hennar og verð hluta- bréfa í fyrirtækinu hækkuðu mikið, þrátt fyrir að það færi halloka fyrir Google. Árið 2015 jukust tekjur nokkuð frá fyrra ári eða um 7%. Tap upp á 4,4 milljarða dala gerir það þó að verkum að nú er talað um að fyrirtækið selji frá sér eignir framh. á bls. 4 Tafla: Tölur um afkomu og verðmæti fjögra netrisa í árslok 2015 Fyrirtæki Verð/ eiginfé Heildarverð (milljarðar $) Veltufjár- hlutf. Eiginfjár- hlutf. Starfs- menn Tekjur EBITDA EBITDA/ tekjur Google 5,1 523,59 4,8 16,6% 59.976 66,001 21,476 33% Facebook 7,4 327,58 11,3 79,4% 12.691 17,928 8,175 46% Yahoo! 1,0 27,92 2,1 22,8% 12.500 4,900 0,843 18% Twitter 3,2 12,23 10,8 2,2% 3.638 1,403 -0,330 -24% Tekjur og EBITDA í milljörðum Bandaríkjadala. Heimild: Google Finance. IMargir hafa orðið ríkir á því að fjárfesta í netfyrirtækjum. En ekki allir. Nýjar tölur Hagstofunnar sýna að enn flytja fleiri frá landinu en koma til baka. 3Verðbólgan helst enn lítil en skýringin er sterkt gengi krónunnar og lágt olíuverð. 4Raungengi krónunnar hefúr hækkað mikið að undanfornu. Almenningur fagnar en fyrirtækin síður. VÍSBENDING • 4.TBL. 2016 1

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.