Vísbending - 11.02.2016, Side 1
ÍSBENDING
V'ikurit um viðskipti og efnahagsmál
11. febrúar 2016
5. tölublað
34. árgangur
ISSN 1021-8483
Stríð og kreppa
Rússar hafa verið í djúpri efna-
hagslægð undanfarið ár. Segja má
að kreppan þar fylgi verðinu á
olíu. Enn þann dag í dag er olía ráðandi í
útflutningi og fyrsta ráð Rússa þegar olíu-
verðið lækkaði var að fella gengi rúblunn-
ar þannig að verðlækkunin hefði lítil
áhrif í rúblum talið. Gengisfellingin olli
verðbólgu og lífskjör versnuðu þar með.
Ymsar kenningar eru um það hvaða áhrif
efnahagserfiðleikarnir hafi á hernaðar-
stefnu Pútíns, annars vegar að þeir dragi
úr hernaðarmætti og hins vegar að ógn-
anir hans séu notaðar til þess að draga
athygli almennings frá erfiðleikunum.
Olía er aðalmálið
Árið 2014 var olía 59% af útflutningi
Rússa. Næst á eftir henni kom járn og
stál með 4% hlutdeild. Af þessu sést að
það hefur geysilega mikil áhrif á hagkerfi
Rússlands þegar olíuverð sveiflast. Þegar
olíuverð var í hæstu hæðum gat Pútín
skekið krepptan hnefann framan í um-
heiminn, en þegar það hríðlækkar eins og
að undanförnu gerist margt í senn. Tekj-
ur minnka og þar með kaupmáttur til
hernaðar. Kaupgeta almennings minnkar
líka með verðbólgu og fólk heldur að sér
höndum. Einkaneysla minnkaði um 10%
í fyrra.
Fjárfestingar hafa líka dregist saman.
Sumir hafa gert lítið úr lægðinni og
bent á að hún er ekki nærri eins djúp og
kreppan eftir fjármálahrunið, en munur-
inn er sá að nú er ekki samdráttur í flest-
um iðnríkjunum þó að vöxtur sé hægur.
Fasteignamarkaðurinn í Moskvu hefur
nánast hrunið. Borgin sem var sögð sú 9.
dýrasta í heimi er nú í 50 sæti.
Á mynd 1 sést hvernig olíuverðið stóð
í stað eða jafnvel hækkaði í rúblum talið
allt fram á haust. Eftir það virðast Rúss-
ar hafa gefist upp á að elta þessar miklu
verðlækkanir með gengisfellingum, enda
hafði það mikil áhrif á allt efnahagslífið
heima fyrir. Fjármálaráðherra Rússlands
hefur sagt að olíuverð þurfi að komast
upp í 80 dali tunnan til þess að efnahgur-
Mynd 1: Verðbreytingar á olíu 2013-2016 í
rúblum og dollurum
........Dalir »■■■■■■' Rúblur
Heimild: tradingeconomics.com, útreikningar Vísbendingar.
Mynd 2: Verðbólga í Rússlandi 2012-2016
inn réttist við á ný. Fáir spá slíkum verð-
hækkunum.
Áætlun til úrbóta
Efnahagsaðgerðirnar vegna Ukraínu-
deilunnar taka líka sinn toll. Nú er
vandinn orðinn svo mikill að ríkisstjórn-
in hefur að sögn Bloomberg íhugað að
selja nokkrar ríkiseignir, t.d. banka og
flugfélagið Aeroflot. Hugmyndin er að
dæla rúmlega 800 milljörðum rúblna
(1.300 milljörðum króna) inn í hagkerfið
og reyna þannig að hressa það við. Fram-
lagið skiptist á milli bílaiðnaðarins, járn-
brauta, byggingarframkvæmda og land-
framh. á bls. 4
1 Rússland hefur staðið í ^\ Islendingar sukku í ^\ Víða eru vextir lægri en Á Hótelrekendur hafa beitt
I hernaðarbrölti. Hvaða áhrif £j skuldafen í hruninu. Á yj verðbólgan. Sums staðar skemmtilegu hugviti til
hefur olíuverð á ógnina af þeim? rúmlega sjö árum hefur mikill árangur náðst. eru þeir minni en núll. Þar kostar að leggja inn. þess að bæta sinn rekstur.
VÍSBENDING • 5.TBI. 2016 1