Vísbending


Vísbending - 11.02.2016, Blaðsíða 4

Vísbending - 11.02.2016, Blaðsíða 4
Aðrir sálmar framh. afbls. 1 Mynd 3: Hagvöxtur í Rússlandi 2013-2015 1 3 1.2 13 0.7 / * 0.7 0.9 0.4 2013 2013 2013 2013 2014 2014 2014 20l\ . 2015 2015 2015 2015 F1 F2 F3 F4 F1 F2 F3 F4 ' V F1 F2 F3 F4 Y2 -4 5 ........—......... ......-....... Heimild: tradingeconomics.com búnaðar. Vandinn cr tvíþættur. Annars vegar er slæm reynsla af slíkum áætlunum og hins vegar er þegar mikill halli á fjár- lögum og allt útlit fyrir að hann haldist í 3% af VLF (vergri landsframleiðslu). Ein hugmynd var sú að Kínverjar myndu auka innflutning frá Rússlandi, en sú von hefur brugðist því að þeir eiga fullt í fangi með sinn eigin vanda. Ástandið skánar A mynd 2 sést hvernig verðbólgan hefur þróast að undanförnu. Eftir að rúblan Vt6 hætti að falla í takt við lækkun olíuverðs á alþjóðamörkuðum dró úr verðbólgunni og hún er nú komin rétt niður fyrir 10 prósent. Mynd 3 sýnir hagvöxt, en eft- ir hagvaxtartölur í samræmi við flest Evrópulönd árið 2013 hefur hægt á hag- kerfinu og það svo dregist saman á árinu 2015. Ef marka má tölurnar virðist held- ur hafa dregið úr samdrættinum á fjórða ársfjórðungi 2015, en frekara verðfall á olíu gefur Rússum ekki tilefni til bjart- sýni. Alþjóðabankinn spáir 1% samdrætti í Rússlandi á yfirstandandi ári. Q Hótelgestaþáttur að er löngu orðið tímabært að stökkva á vagninn og stofna hótel. En gott hótel er vonlaust án viðskiptaáætlunar. Eftir yfirlegu færustu sérfræðinga, ferða- málafræðinga, skipulagshagfræðinga og almannatengsla höfum við loksins dottið niður á réttu hugmyndina: LággjaMahótel. Á lággjaldahótelinu er hægt að fá að gista fyrir 10 evrur, en vilji menn fá her- bergi, kostar það auðvitað aukalega. Grunnherbergi er með rúmi og vaski. Vinir okkar útbjuggu fyrir okkur nokkur skilti á náttborð og veggi (sem verða auðvitað þýdd á ensku í fyllingu tímans): Boðið er upp á ókeypis hressingu (sjá leiðbeiningar um hvernig opna á glugg- ann). ► íslenskur bjór aðeins 20 evrur úr krana (ekki þó krananum á vaskinum). Glas 10 evrur aukalega. ► Við mælum ekki með því að sofa í þessu rúmi (aukadýna 50 evrur, þægileg dýna 100 evrur). ► Vinsamlega farið ekki í bað í vaskinum. Aðgangur að sturtu 25 evrur. Bíltúr í gæða- sundlaug (Sundhöllina) 150 evrur (nátt- úrulegt íslensk hveravatn úr iðrum jarðar). ► Á ganginum er sjónvarp sem þið getið horft á án endurgjalds. Fyrir 25 evrur setj- um við það í samband fyrir ykkur. Á hótelinu er ekki þráðlaust net, en fyrir 60 evrur á dag fylgjum við ykkur að ókeyp- is neti. Gömul kona á Þórsgötunni er með ólæst net. Nei, við erum ekki með kort af Reykjavík, en gætum útvegað það fyrir hæfilega þóknun (frá 35 evrum og upp úr). ► Sumir hafa bent á að auglýst er að morgunmatur er innifalinn. Milli klukkan 6.00 og 6.15 býðst gestum að sitja með eigendum hótelsins meðan þeir síðar- nefndu matast. Vilji gesturinn líka fá mat fer það eftir verðskrá: Brauðsneið 5 evrur, ristað brauð 15 evrur, ostur 5 evrur sneiðin, vatn úr krana 10 evrur. Almennilegt vatn 25 evrur. Egg og beikon? Ef þið þurfið að spyrja hvað þau kosta hafið þið ekki efni á þeim. ► Þeir sem vilja nota sængurföt eru beðnir að fylla plastpokana við rúmið af pening- um (evrum eða dollurum að eigin vali). Lökin má skilja eftir á rúminu. ► Við tökum öll helstu kreditkort, en skil- um þeim ekki aftur. Þetta er hugmynd sem getur ekki klikk- að. bj Ritstjóri og ibyrgðarmaður: Benedikt Jóhannesson Úlgefandi: Heimur h£, Borgartúni 23,105 Rvík. Sími: 512 7575. Netfeng: benedikt@heimur.is. Prentun: Heimur. Upplag: 700 eintök. Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án leyfis útgefanda. Þegar borgar sig að eyða Almennt gildir að peningar eru minna virði seinna ef við geymum feparnað okkar í íslensku reiðufé. Vextir eru jafnvel svo lágir að með verðrýrn- un er innistæðan sem lögð var inn í fyrra minna virði þegar hún er tekin út en þegar hún var lögð inn. Um tíma flæddu peningar fiá erlendum fjárfestum inn í Danmörku, svo hratt að mik- ill þfystingur var á að gengi dönsku krónunnar hækkaði gagnvart evru. Danir hafá fástbundið gengj któnunnar við evm ffá upphafi og hyggj- ast viðhalda því jafnvægi, þó að þeir noti ekki evruna sjálfa. Til þess að spoma við þessu fjár- magnsflæði ákváðu þeir að lækka vexd niður fýrir núfl. Með öðrum orðum, bankamir boiga fýrir bindiskyfdu sína í danska seðlabankanum. Svipað kerfi gildir í Sviss og í Svíþjóð og evm- löndunum. Japanir sem áratugum saman hafa verið lágvaxtaland gengu svo í þennan mínus- klúbb í janúar 2016. Þetta hefúr einkennileg áhrif I stað þess að fá staðgreiðsluafslátt fá menn staðgreiðslu- álag. Allir vilja borga sín aðföng strax en fá greitt eins seint og mögulegt er. Dæmi um þetta sjást nú þegar í Sviss og kannski víðar. Þó að hugmyndin bakvið neikvæða vexti sé eins og að fram er rakið, og ætti að hvetja til ffamkvæmda fýrr en síðar, hefur hún ekki haft tilæduð áhrif alls staðar. Is- lendingar myndu eflaust taka lágvaxtalánum sem himnasendingu, en Japanir hugsa ekki eins. Þar kaupa menn ríkisskuldabréf ár eft- ir ár, svo mjög að Japan er eitt skuldugasta ríki heims, en vaxtabyrðin er létt, þannig að fáir hafa áhyggjur af skuldum sem em jafnvel risavaxnar miðað við Grikkland! Marga dreymir um lán sem minnka í verðbólgunni eins og gerðist í gamla daga. Ólíklegt er að sá draumur rætist þó að verð- trygging yrði afnumin. Byrðin myndi færast til þannig að greiddir vextir yrðu háir þegar verðbólgan er mikil. Fyrir á árum borguðu menn 40% vexti á ári eða meira. Það er þung byrði, jafnvel þó að höfuðstóllinn rýrni og afborganir orðið léttari með tímanum. Vandinn er verðbólgan sem leiðir tíl hárra vaxta sem aftur leiðir til verri lífskjara. Q 4 VÍSBENDING • 5. TBL. 2016

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.