Vísbending - 03.05.2016, Síða 4
ISBENDING
framh. afbls. 3
Mynd 3: Meðaltekjur á ári frá TR og
lífeyrissjóðum 1992-2014
3,000,000
1,000,000
500,000
0
(\rO<JU3U3NCOC!Or,r'jrt»Jl/!li)r'OOCnoHíNf,r'>7
O'. oicncrícno5cncio0o0o0000OHHHHrí
cr. cncnaicnCTicicnoooooocoooooooo
riHrtHHr<rlHr\!NfNÍNr'|OIIN'NtNNrMOIf\OirN
■Einhleypir
•í hjúsk,.
Myndin sýnir samanlagðar greiðslur jrá TR og lífeyrissjóðum á verðlagi ársins 2014. Heimild:
og útreikningar Vísbendingar.
Mynd 4: Lífeyristekjur á ári.
Meðaltöl 2014 eftir aldri
rsk.ii
Aörir sálmar
Tollvörugeymslan
Framtíðin
Breytingar eru framundan á lífeyris-
kerfi landsmanna. Boðað er frumvarp
til almannatrygginga sem breytir upp-
byggingu greiðslna til ellilífeyrisþega,
þannig að skerðingar vegna annarra
tekna verða minni en nú er. Jafnframt
verður kerfið einfaldað mjög frá því sem
nú er. Þetta veldur kostnaðarauka sem
mætt verður að hluta með því að hækka
lífeyrisaldur í áföngum úr 67 í 70 ár.
Jafnframt hefur verið samið um það
á almennum vinnumarkaði að iðgjöld til
lífeyrissjóða hækki á næstu árum úr 12%
í 15,5%. Þetta veldur því að greiði menn
slík iðgjöld alla sína starfsævi má áætla að
lífeyrir lífeyrissjóða aukist úr 56% í lið-
lega 72% af meðaltekjum. Ofan á þetta
kemur lífeyrir almannatrygginga hjá
þeim tekjulægstu.
Miðað við núverandi skattkerfi verður
hlutfall ráðstöfunartekna á ellilífeyrisaldri
af meðallaunum enn hærra. Þetta vek-
ur aftur upp spurningar um hve miklar
tekjur séu nauðsynlegar á ellilífeyrisaldri.
Jafnvel þó að gert sé ráð fyrir lífstíls-
breytingum er ljóst að margir ellilífeyris-
þegar munu spara, sem bendir til þess að
fullmikið hafi verið lagt fyrir. Þarna þarf
að finna rétta niðurstöðu, þannig að ungt
fólk sem þarf að leggja í fjárfestingar í
íbúðarhúsnæði geti greitt þær af venjuleg-
um sparnaði. Búast má við því að á næst-
unni komi fram nýjar útfærslur á því kerfi
þar sem verja má hluta séreignasparnaðar
til íbúðakaupa. 0
IVísi kom skemmtileg frétt í nóvem-
ber árið 1979 þegar sagt er frá kapp-
ræðufundi ungra manna úr Sjálfstæðis-
flokknum og Alþýðubandalaginu:
„Olajur Ragnar Grímsson er eins og
tollvörugeymsla fyrir pólitískar skoðanir,
sem hann leysir út eftir því sem hann
skiptir um flokka“, sagði Davíð Oddson
borgarfulltrúi meðal annars á kapprœðu-
fundinum í Sigtúni í gœr. ... Rœðumenn
frá Sjálfstœðisflokki: Friðrik Sophusson, Jón
Magnússon, Haraldur Blöndal og Davíð
Oddson, en Alþýðubandalaginu Svavar
Gestsson, Guðrún Agústsdóttir, Ólafur
Ragnar Grímsson og Sigurður Tómasson.
Auk persónulegs hnútukasts á báða
bóga, snerust ummður um stefnu
Sjálfitœðisflokksins og stefhuleysi Alþýðu-
bandalagsins. Sjálfitœðismönnum varð
tíðratt um það síðarnefnda og kváð-
ust auglýsa eftir stefnu andstœðinganna.
Aheyrendur tóku þátt í þessu og þegar
míkrófónninn sýndi af sér einhvern las-
leika og menn spurðu hvar Sigmar, um-
sjónarmaður hússins vœri, var kallað utan
úr sal: „Hann er að leita að stefnu Alþýðu-
bandalagsins. “...
Hermálið var á dagskrá og gáfu Sjálf-
stœðismenn lítið fyrir staðfestu Alþýðu-
bandalagsins í því máli og bentu á, að
þeir hefðu aldrei gert neitt íþví, þegar þeir
hefðu verið í aðstöðu til þess. Svavar vildi
ekki una þessu og talaði af miklum hita
um undirskriftasöfhun Varins lands, og
kallaði síðan til samherja sinna i salnum
„Félagar! Island úr Nató, herinn burt!“
og klappaði. Þeir hlýddu kallinu og tóku
undir.
„Eftir svona Billy Graham tilburði
er við hœfi að segja „Amen “ sagði Davíð
Oddsson sem sté nast í pontu. “ ...
Alþýðubandalagsmönnum var tíðr&tt um
lögfmðingana í Sjálfitœðisflokknum, en
Friðrik Sophusson benti á að meðal þing-
manna Alþýðubandalagsins, sem kenndi
sig við verkalýðinn vari einn einasti mað-
ur, sem steeði undir því og það vœri Eðvarð
Sigurðsson. Rakti hann síðan menntun og
störfframbjóðenda flokksins og benti á að
þeir veeru Jlestir úr kennarastétt. Auk þess
væru tveir menn í miklum metum hjá
Alþýðubandalaginu, sem báðir hefðu verið
lögfrœðingar, Fidel Castro og Lenín!
Ekki var sagt frá málflutningi
tollvörugeymslunnar í fréttinni. bj
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Jóhannesson
Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23,105 Rvík.
Sími: 512 7575.
Netfang: benedikt@heimur.is.
Prentun: Heimur. Upplag: 700 eintök.
Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita
án íeyfis útgefanda.
4 VÍSBENDING • I6.TBL. 2016