Vísbending


Vísbending - 17.05.2016, Side 1

Vísbending - 17.05.2016, Side 1
ÍSBENDING Vikurit um viðskipti og efnahagsmál 17. maí 2016 17. tölublað 34. árgangur ISSN 1021-8483 Hvað ef Bretar fara úr Evrópusambandinu? Mynd: Gengi sterlingspunds gagnvart evru undanfarna 12 mánuði 1,50 1,45 & & J? jf* jifjir. fr -P -P -? fr -P -p' %«' -íP' -t5' •$>' y v' v V «*> ? & 0s»' -sr -sþ ~öv jy -fy jy jy essa dagana keppast fræðimenn við að vara við því að Bretland segi skilið við Evrópusambandið (ES). Nú síðast kom forstjóri Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins (AGS) með viðamikl- ar athugasemdir. Áður hafði Seðlabanki Englands komið fram með sín sjónar- mið um málið, en þau voru mjög á sömu lund. Andstæðingum aðildar tókst einnig að ná saman hópi hagfræðinga sem töldu að Bretum myndi farnast mun betur utan sambandsins en innan. Auðvitað er mjög mikilvægt fyrir umræðuna að sem skýrust rök komi fram með og á móti, en þó ber umræðan nokkurn svip af því að afstaða manna er nánast eins og trúar- brögð. Það verður þó ekki sagt um skoð- anir fyrrverandi borgarstjóra Lundúna, Boris Johnson, sem skipti um lið, að eigin sögn án þess að skipta um skoðun, en hann sagðist vera fylgjandi veru í sambandinu sama daginn og hann gekk í raðir þeirra sem aðhyllast útgöngu. Nú líkir hann Evrópuhugsjóninni við mark- mið Hitlers. Slík röksemdafærsla hefur yfirleitt ekki verið málstað til framdrátt- ar. Á sínum tíma sagði bandaríski heim- spekingurinn Leo Strauss: „Umræðum eða deilum lýkur, þegar annar aðilinn tekur að líkja hinum við Hitler og nas- ista.“ Ekkert bendir þó til þess að deilum um veru Breta í ES sé lokið. Hvað segir Christine Lagarde? AGS spáir svartnætti ef Bretar ákveða að segja skilið við félaga sína í ES. Hluta- bréfamarkaður muni hrynja og verð á húsnæði lækka. Samkvæmt mati sjóðsins er mögulegt að Bretland lendi í efna- hagssamdrætti í kjölfar úrsagnar. For- stjóri sjóðsins, Christine Lagarde, sagði að þrátt fyrir ítarlega skoðun sæi sjóð- urinn ekkert jákvætt við brotthvarf. Ef fjárfestar fara á taugum er hugsanlegt að Heimild: Seðlabanki Evrópu. áhrifin veri svo heiftarleg að hagkerfið allt skjálfi og nötri. Jafnvel til lengri tíma litið séu horfur Breta dökkar ef landið fer úr Evrópusam- bandinu. Aftur á móti spáir sjóðurinn því að ákvörðun um áframhaldandi þátttöku í samstarfinu geti orðið til þess að landið komist úr spennitreyju stöðnunar og hag- vöxtur tæki strax við sér á seinni hluta ársins. Ovissan nú um framtíð Bretlands hafi þegar haft mjög neikvæð áhrif. Ólík- legt sé að hagvöxtur nái því að verða 2,0% eins og upprunalega var spáð vegna þess að árið hafi byrjað illa, m.a. vegna neikvæðra áhrifa atkvæðagreiðslunnar. Raunhæft langtímamarkmið sé 2,25% sem ætti að nást strax á næsta ári, ákveði Bretar að halda áfram innan ES. Gengi pundsins Auðvitað er oft erfitt að segja til um orsök og afleiðingu í hagkerfmu, en það er staðreynd að gegni pundsins hefur veikst um nálægt 10% gagnvart evrunni undanfarna mánuði, sérstaklega eftir að ákveðið var að efna til atkvæða- greiðslunnar. Sumir töldu að sterkari staða í skoðanakönnunum hjá þeim sem vilja halda áfram að vera inni skýrði tímabundna styrkingu pundsins í byrjun apríl, en jafnari kannanir skýri lækkun á ný (sjá mynd 1). Lagarde varar einnig við því að mikill halli á viðskiptum við útlönd auki áhætt- una. Bretland þurfi fjármögnun að utan sem verði ekki auðveldari ef það einangr- ast efnahagslega. Hætta sé á því að í gang fari spírall verðlækkana og samdráttar í efnahagslífinu. Áhrifin eru þó engan veginn bundin við Bredand. Fjölmörg ríki eiga í miklum viðskiptum við landið og neikvæð áhrif á hagkerfi Breta myndi hafa keðjuverk- andi áhrif á önnur ríki, ekki síst önnur ríki Evrópusambandsins. Því má þó ekki gleyma að þó að um helmingur viðskipta Breta sé við Evrópusambandið þá er að- eins um tíundi partur af viðskiptum sambandsins við Bretland. framh. á bls. 4 1 Bretar ganga að kjörborði eftir rúmlega mánuð um hvort landið verði áfram í Evrópusambandinu. : Fjártækni er nýtt hugtak Sumir sem vilja vinna A Forsetaframbjóðendur • en slík tækni er auðvitað rökræður grípa til þess að ■ munu ylja landsmönnum • ekki ný af nálinni. ■ bendla andstæðinginn við j á næstunni með Hitler. : málefnalegum umræðum. VÍSBENDING • 17.TBL. 2016 1

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.