Vísbending - 06.06.2016, Page 3
V
ÍSBENDING
Gildi milliríkj aviðskipta
Helga Kristjánsdóttir
hagjrxSingur
liríkjaviðskipti haía alltai
verið Islandi mikilvæg. Stað-
isetning landsins milli Evrópu
og Bandaríkjanna býður upp á ýmis
tækifæri í milliríkjaviðskiptum um leið
og ýmsar áskoranir fýlgja legu lands-
ins. Gerðar hafa verið rannsóknir sem
leitast við að greina þær áskoranir, sem
blasa við Islandi sem smáu hagkerfl í
samanburði við viðskiptalöndin, svo
sem möguleg áhrif aðildar viðskipta-
landa okkar að ESB og öðrum viðlíka
viðskiptabandalögum.
Utflutningur skipdst í vöru- og
þjónustuútflutning. Sjávarafurðir hafa
lengst af verið meginuppistaða vöru-
útflutnings Islendinga. Þá hefur útflutn-
ingur frá ál- og kísilmálmverksmiðjum
aukist á undanförnum árum, þar sem
vaxandi útflutningur frá orkufrek-
um iðnaði hefur haldist í hendur við
vöxt beinnar erlendrar fjárfestingar í
þeim iðnaði. Þá eru sjávarútvegur og
orkufrekur iðnaður ekki aðeins gjaldeyr-
isskapandi, heldur hefur ferðaþjónusta
skilaði vaxandi framlagi gjaldeyris. Tekj-
ur af ferðaþjónustu flokkast sem útflutn-
ingur í þjóðhagsreikningum.
Millir ík j aviðskipti
mikilvæg smáríkjum
Smá hagkerfi eru að jafnaði háðari milli-
ríkjaviðskiptum en stór hagkerfi. Þetta
endurspeglast í útflutningshlutfallinu,
sem er almennt hærra í smáum hag-
kerfum þar sem þau eru að jafnaði með
meiri einhæfni í stoðum atvinnulífsins.
Þetta má setja í samhengi við það
að tölur Alþjóðabankans gefa til kynna
að vöruviðskipti hér á landi hafi verið
um 64% af vergri landsframleiðslu árið
2013, en vöruviðskipti ná yfir samtölu
vöruútflutnings og vöruinnflutnings. Til
samburðar benda gögn Alþjóðabankans
til þess að þetta hlutfall sé aðeins um
23% í Bandaríkjunum. Lítil hagkerfi,
á borð við fsland, reiða sig meira á
milliríkjaviðskipti í formi innflutnings
og útflutnings.
Fjarlægð íslands frá öðrum löndum
leiðir til þess að fyrirtæki á innanlands-
markaði njóta fjarlægðarverndar. Þá
fyrir Island
felur fjarlægðin í sér meiri flutnings-
kostnað fýrir almennan vöruútflutning
frá fslandi, kostnað sem útflytjendur
verða að greiða til þess að koma vörum
sínum á markað erlendis. Þannig verður
fjarlægðin viðskiptahindrun. Rannsókn-
ir á útflutningi héðan gefa til kynna að
kaupmáttur og stærð viðskiptalanda
okkar vegi þyngra en markaðsaðstæður
hér á landi.
Mikill áhugi er á rannsóknum á
milliríkjaviðskiptum landa þ.e. inn- og
útflutningi þeirra, sem og milliríkja fjár-
fesdngu. Bein erlend fjárfesting milli
landa er sú fjárfesting sem er 10% eða
meiri í dlteknu fyrirtæki. Þannig er
lagt mat á flæði fjárfestinga milli landa
í samhengi við starfsemi fjölþjóðafyrir-
tækja. f þessu samhengi hefur verið leit-
ast við að skýra hagkvæmni þess að ráð-
ast í fjárfestingu í tilteknu landi fremur
en að ráðast í útflutning til þess að koma
vörum þangað á markað.
Sé áliðnaðurinn hafður í huga eru
aðrir þættir sem snúa að framleiðslu
áls hér á landi það jákvæðir að þeir
yfirstíga fjarlægðarhindrunina.
Ýmislegt fleira kemur til í tilviki
áliðnaðar, svo sem aðgengi að köldu
vatni til nota í álverum, þannig það
er ekki einungis verð rafmangs sem
dregur áliðnað hingað til lands.
Bein erlend fjárfesting
eða útflutningur?
Ein spurning sem fyrirtæki í vexti
standa oft frammi fyrir er hvort hag-
kvæmara sé að ráðast í beina erlenda
fjárfestingu við tilteknar aðstæður eða
að stunda milliríkjaviðskipti. Þetta
snýr aðallega að sókn á erlend markaðs-
svæði. Vegna smæðar hagkerfisins hvet-
ur vöxtur fyrirtækja til þess að þau ráð-
ist annað hvort í útflutning til annarra
landa, eða kjósi að ráðast í erlenda fjár-
festingu í öðrum löndum.
Samspil útflutnings og beinnar er-
lendrar fjárfestingar kemur til dæmis
fram þegar fyrirtæki á borð við Mar-
el og Samherja fara í útrás og sækja á
markað erlendis. Það hefur sýnt sig að
við þessar aðstæður vaxtar er algengt að
fyrirtæki hefji fyrst útflutning á mark-
að og ráðist síðan í beina erlenda fjár-
festingu. Þetta er gert til að tryggja vöxt
og viðgang fyrirtækisins í sókn á stærra
markaðssvæði með vöru sínar og þjón-
ustu.
Orkufrekur iðnaður
Island hefur laðað að sér fjárfestingu
í orkufrekum iðnaði, vegna þess hve það
er auðugt af orku, en landið hefur haft
meiri orku til umráða en landsmenn
þurfa á að halda. Island getur ekki flutt
umframorku beint út eins og lönd á
meginlandinu, heldur flytur það ork-
una óbeint með tilkomu beinnar er-
lendar fjárfestingar í áliðnaði. Þá hefur
það gildi fýrir landið að hafa skýran
eignarrétt og frjáls viðskipti og löggjöf
sem tekur mið af þeirri evrópsku. kS
VÍSBENDING 20. IBl. 2016 3