Vísbending - 24.06.2016, Síða 4
Aðrir sálmar
Nýr veruleiki
Bretar ákváðu í sögulegri atkvæða-
greiðslu að segja sig úr Evrópusam-
bandinu. Cameron hefur boðað af-
sögn og gengi pundsins og evrunnar hefur
veikst á sama tíma og verð á hlutabréfum
hefur lækkað um alla Evrópu. Ljóst er
að Englendingar hafa látið nær einróma
viðvaranir sérfræðinga sem vind um eyr-
un þjóta. Skotar vildu halda í Evrópu-
sambandið og raddir um sjálfstæði þeirra
hljóðna ekki við þessa niðurstöðu.
Viðbrögð markaða
Oft er talið að markaðir nemi allar upp-
Iýsingar með undraverðum hætti og þeir
„viti“ meira en fólk. Þess vegna héldu
margir, þeirra á meðal Farage, leiðtogi
Sjálfstæðisflokksins breska, að þeir yrðu
ofan á sem vildu halda aðild að Evrópu-
sambandinu. Niðurstöðurnar sanna að í
markaðsverði er ekkert nema væntingar
um hvað gerist. Væntingar eru oft litaðar
af óskhyggju.
Meðan menn hafa einbeitt sér að því
að hugsa um hvaða áhrif úrslitin hafa í
Bretlandi hafa fáir velt því fyrir sér hvern-
ig niðurstaðan leiki aðrar Evrópuþjóðir.
Evran veiktist gagnvart Bandaríkjadal og
hlutabréf lækkuðu meira í Frakklandi og
Þýskalandi en í London við opnun mark-
aða.
A öðrum mörkuðum voru dæmigerð
óvissuviðbrögð. Gull hækkaði í verði og
olía og aðrar hrávörur lækkuðu vegna þess
að menn vænta þess að úrsögnin hafi nei-
kvæð áhrif á efnahagslíf heimsins.
Áhrif á Breta
I grein í 17. tbl. Vísbendingar var farið yfir
nokkur atriði sem ætla mætti að fylgdu
úrsögn Breta:
V Cameron þarf þá væntanlega að fara frá
? Ekki ólíklegt að Boris Johnson taki við
? Ekki er útilokað að Johnson taki upp
nýjar aðildarviðræður með frekari kröf-
um um undanþágur
V Frekari veiking pundsins
? Verðbólga gæti farið upp fyrir 2,0%
markmiðið
V Sjálfstæðiskröfur Skota gætu orðið há-
værari
? Miðstöð fjármála í Evrópu mun færast
frá London til Frankfurt
? Mörg fyrirtæki færa höfuðstöðvar sínar
væntanlega þangað.
Eins og sjá má eru nokkur atriði
þegar komin fram. Um annað er óvissa
og stjórnmál næstu dagana munu snú-
ast um það að koma í veg fyrir suma af
spádómunum hér að framan. Seðla-
bankastjórinn Mark Carney lýsti því strax
yfir að bankinn myndi styðja við pundið
og að staða bresku bankanna væri marg-
falt sterkari en hún var fyrir hrun. Pundið
hefur reyndar lækkað nær stöðugt allt árið
(með sveiflum auðvitað) og náði lægstu
stöðu gagnvart Bandaríkjadal í þrjátíu ár.
Áhrifin á heiminn
Evrópusambandið var upprunalega stofn-
að til þess að minnka líkurnar á stríði
milli erkióvinanna Frakka og Þjóðverja.
Itaiir og Benelux-löndin voru líka í upp-
runalega bandalaginu. Hugsunin er sú
að því nánari sem löndin eru, þeim mun
líklegra sé að þau haldi friðinn. Viðskipti
innan svæðisins hafa líka stóraukist og
við stofnun sameiginlega markaðsins árið
1992 var stigið viðbótarskref í þá átt. Evr-
an bætti svo enn við það sem flest löndin
eiga sameiginlegt.
Stjórnmál hafa alltaf haft mikið að
segja. Ollum var ljóst að lönd sem komust
undan einræðisherrum á áttunda áratugn-
um eins og Spánn, Portúgal og Grikkland
stóðu fjárhagslega langt að baki hinum
löndunum, en leiðtogar Efnahagsbanda-
lagsins eins og það hét þá töldu að aðild
þessara landa myndi styrkja veikt lýðræðið
í sessi. Sömu sjónarmið voru uppi um
Austur-Evrópulönd.
Orslitin í Bretlandi hafa örugglega
áhrif á kjósendur í öðrum Evrópusam-
bandslöndum. Þannig gæti úrsögn Breta
leitt til keðjuverkunar. Þeir hafa engan
áhuga á því að vera í EES því að þeirri
aðild fylgja allar þær reglugerðir og frelsi
til fólksflutninga sem útgöngumenn vildu
ekki. Hver sem áhrifin verða er óhætt að
segja að sambandið er veikara þegar eitt
stærsta aðildarríkið hverfur úr því. Það
gildir reyndar um Bretland líka. Q
Hamfarir af manna-
völdum
David Cameron og fleiri stuðnings-
menn Evrópuaðildar Breta tala um
kreppu af mannavöldum nú þegar Bretar
eru á útleið. Ávarp seðlabankastjóra Breta
eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna minnti
suma á stöðuna á Islandi haustið 2008.
Seðlabankastjórinn var greinilega sleginn
þegar hann talaði yfir fjölmiðlum, og
reyndi að hughreysta þjóðina, en endaði
þó ekki: God save Britain. Fólk gerði að-
súg að Boris Johnson við heimili hans.
Sumir gleðjast feikilega enda eru
áhrifin af úrsögn lengi að virka. Flestir
telja að innflytjendamálin hafi haft mest
að segja, en það hjálpar við ákveðinn
hóp fólks að kynda undir útlendinga-
hatri. Eftir tvö ár, þegar úrsögnin tekur
loks gildi, verður enginn til þess að rekja
hverjum það var að kenna að verð hækk-
aði eða störfum fækkaði.
Cameron sýndi pólitískt hugrekki
þegar hann sagði af sér þegar hann hafði
tapað atkvæðagreiðslunni. Afstöðu fylgir
ábyrgð. Nú verða útgöngumenn að sjá
um framhaldið eins og eðlilegt er. Bor-
is Johnson segir nú að ekkert liggi á að
byrja útgönguferlið, enda valdi hann sér
afstöðu nánast með því að henda upp
peningi eins og áður er rakið í sálmum.
En niðurstaðna er ekki eins og vandi
sem hverfur ef maður sinnir honum
ekki. Báðir aðilar verða að sætta sig við
að þjóðin hefur talað og meirihlutinn vill
ganga úr Evrópusambandinu.
Allir þurfa að gæta sín að mála ekki
skrattann á vegginn. Menn munu
vinna úr nýrri stöðu og eitthvert sam-
band verður milli Breta (eða Englands
og Wales, ef landið liðast í sundur) og
Evrópusambandsins. Það gleymist oft
að bandalagið var upprunalega stofnað
til þ ess að vernda mannréttindi, frelsi og
frið í Evrópu. Það hefur tekist, en það er
lítils metið. Friður og frelsi eru eins og
loft og vatn, einskis virði ef maður hefur
nóg af þeim.
Pawel Bartoszek setti eftirfarandi
reglu fram á FB-síðu sinni: „Þegar fólk
hefur upplifað stöðugleika, frið og vel-
megun í marga áratugi má alltaf treysta
því að einhver stigi fram og lýsi því yfir
að almenningur sé búinn aðfá nóg.“
Svo segir fulltrúi almennings að það
hafi ekki verið þetta sem hann meinti. bj
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Jóhannesson
Utgefandi: Heimur h£, Borgartúni 23,105 Rvík.
Sími: 512 7575.
Netfáng: benedikt@heimur.is.
Ptentun: Heimur. Upplag: 700 eintök.
Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita
án leyfis útgefanda.
4 VÍSBENDING • 22. TBt 2016