Vísbending


Vísbending - 01.07.2016, Side 1

Vísbending - 01.07.2016, Side 1
ÍSBENDING Vikurit um viðskipti og efnahagsmál 1 . júlí 2016 23 . tölublað 34. árgangur ISSN 1021-8483 Hvað höfum við gert? ó að tæplega hálfur mánuður sé liðinn frá því að meirihluti kjós- enda í Bretlandi ákvað að heppi- legast væri að leiðir landsins og annarra Evrópulanda myndu skilja veit enginn enn hvaða áhrif úrsögnin hefur. Eitt virðist þó víst að hún mun ekki verða þessu gamla stórveldi til góðs. Verkefnið næstu mánuðina verður að lágmarka skaðann bæði fyrir Breta og aðra. Hrun á mörkuðum Strax eftir að niðurstöður atkvæða- greiðslunnar lágu fyrir tók pundið dýfu gagnvart öðrum gjaldmiðlum. Á mynd sést hvernig gengið hafði farið lækkandi eftir því sem útgöngusinnum óx fiskur um hrygg, en þegar aftur var farið að hilla undir sigur þeirra sem vildu óbreytt ástand styrktist pundið á ný. Lækkunin er sú mesta á einum degi á undanförnum áratugum. Athyglisvert er að hlutfallslega er lækkunin minni gagnvart evrunni, en það er rökrétt að útganga Breta veiki evruna líka, því að Evrópusambandið verður auðvitað veikara en áður eftir út- göngu þeirra. Hlutabréfavísitölur um allan heim lækkuðu líka mikið. Athygli vekur að í Bretlandi hafa þær hækkað á ný, ólíkt því sem gerst hefur á meginlandi Evrópu. Sérfræðingar hafa átt í erfiðleikum með að skýra þetta, en benda á að það séu einkum félög sem bundin eru við Bretland sem hafa hækkað í verði, t.d. byggingafyrirtæki og tryggingafélög. Slík starfsemi getur auðvitað búist við minni samkeppni eftir að Bretland hverfur af sameiginlega markaðinum. Segja má að fall hlutabréfamarkaða utan Bretlands hafi komið mörgum meira á óvart en lækkunin heima fyrir. Hún er samt auðvitað eðlileg eftir á að hyggja því að úrsögn Breta úr Evrópusambandinu er áfall fyrir frjáls viðskipti um heim allan. Mælt í öðrum myntum en pundum hef- ur hlutabréfamarkaðurinn í London fallið eins og aðrir. Lánshæfismat Bretlands lækkaði í kjölfar atkvæðagreiðslunnar hjá öllum helstu matsfyrirtækjum. Þetta getur haft þau áhrif að dýrara verði fyrir bæði breska ríkið og helstu fyrirtæki að taka lán. En jafnframt er ástæða til þess að vera á verði gagnvart því að önnur ríki gætu líka lækkað í einkunn vegna þess að horfur versni almennt. Þess vegna er engin ástæða til Þórðargleði annarra þjóða yfir óförum Breta. Upplausn Bretlands Segja má að í rúmlega 200 ár hafi Breska heimsveldið verið að liðast í sundur. Bandaríkin lýstu yfir sjálfstæði árið 1776. Sagt var að sólin settist aldrei í Breska heimsveldinu Eftir það áttu reyndar margar nýlendur í Afríku eftir að bætast í veldið, en á 20. öldinni varð Heimsveldið að Samveldi sem tengist gegnum drottninguna. Nú gæti styst í að Stóra-Bretland yrði bara England og Wales. Þó að þessu hafi verið spáð fyrir kosningarnar var það örugglega ekki markmið útgöngusinna. Skotar felldu sjálfstæði fyrir tæplega tveimur árum, meðal annars með þeim rökum að með því móti héldist landið í Evrópusambandinu. Skoðanakannanir benda til þess að nú vilji fleiri Skotar en áður segja skilið við England. Þeir studdu áframhaldandi veru í sambandinu og finnst mörgum að nú verði þeir skildir eftir á köldum klaka. Svipað má segja um Norður-Ira sem einnig vildu óbreytt ástand. Sambandið við Irland er auðvitað mjög mikil- vægt og þá hryllir við því að setja upp landamæragirðingu, sem yrði væntanlega nauðsynlegt ef hefta á fólksflutninga. London er sá hluti Englands sem mestu tapar á útgöngunni. Vægi borgarinnar í fjármálaheiminum mun áreiðanlega minnka og líklegt er að margir leiti leiða til þess að finna sér starf í nýrri fjármálahöfuðborg Evrópu, sem væntanlega verður Frankfurt, þó að Parísarbúar hugsi sér líka gott til glóðarinnar. Byltingin étur börnin sín Einn helsti kostur frjálsra viðskipta er að bæta heildarhag, þó að hlutskipti margra versni til skamms tíma litið. Einmitt þess vegna er frjáls för milli landsvæða mikil- vægt, því að þá geta þeir sem missa starf á einum stað flutt annað þar sem vinnu er að fá. íslendingar fluttu til Noregs eft- ir hrun og flytja nú aftur heim þegar á móti blæs í olíuveldinu. Það gagnstæða gerist þegar höml- ur eru settar á viðskipti milli landa. Þá versnar allra hagur. Rannsóknarmiðstöð tímaritsins Economist telur að hagkerfi Bretlands dragist saman um 6% fram til ársins 2020 vegna úrsagnarinnar. Þeir sem kannast við kenningar 19. aldar hagfræðingsins Ricardos vita að viðskiptalönd Breta græða ekki á móti heldur þvert á móti: Allir tapa. Það töpuðu líka allir helstu stjórn- málaforingjar landsins. Aðalleikarar í Brexit-ævintýrinu eru þeir Boris John- son, Michael Gove dómsmálaráðherra og Nigel Farage, formaður Breska sjálfstæðisflokksins (UKIP). David Cameron forsætisráðherra boðaði árið 2013 til kosninga, sem hann hélt að framh d hls. 4 1 Það er vægt til orða tekið að : i ^ Bein erlend íjár- rt Þegar tilfinningar og rök : A Ekki er heppilegt að ríkið sé 1 Bredand sé í upplausn eftir : ( rj festingjókstmikið takast á í jafnri barátm er helsti eigandi bankakerfisins þjóðaratkvæðagreiðsluna á Islandi á árunum : líklegt að tilfinningarnar • á Islandi. Fyrri einkavæðing um Evrópusambandið. fyrir hmn. hafi yfirhöndina. hræðir þó marga. VÍSBENDING • 23.TBL 2016 1

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.