Vísbending


Vísbending - 21.09.2016, Síða 2

Vísbending - 21.09.2016, Síða 2
VíSBENDING Mynd 2: Raunvextir í nokkrum löndum 1996-2016 - Meðaltal skammtímaraunvaxta 4.0 Þýs Dan Fin Fra Bre ísl Nor Sví Ban framh. afbls. 1 og evrusvæðinu var 2,5 til 3,0% á þessu tímabili. Hvert stefnir? Asgeir Jónsson hagfræðingur skrifar líka um raunvexti í FréttabréfVirðingar sem kom út 23. september. I grein Ásgeirs Gullbrá og birnirnir þrír3 segir: „Lengi vel var álitið að náttúrlegt raunvaxtastig væri á bilinu 2,5-3,5% í hinum vest- ræna heimi en það hefur lækkað veru- lega eftir fjármálakreppuna 2008 og er nú talið vera nálægt núlli í Bandaríkj- unum og jafnvel neikvætt á meginlandi Evrópu. Seðlabankar þessara landa hafa lent í bobba: Ef jafnvægisraunvextir eru núll þarf neikvæða nafnvexti til þess að hita kólnandi hagkerfi - en það er ill- mögulegt, ef ekki ómögulegt." Á Islandi hefur verið hagvöxtur undanfarin ár og því ekki ástæða til svo dramatískra aðgerða sem neikvæðra stýrivaxta, en engu að síður er það slá- andi hve raunvextir af óverðtryggð- um lánum eru miklu hærri á Islandi en erlendis. Þegar verðbólgan er um eitt prósent eru algengir vextir milli 7 og 8 prósent, sem jafngildir 6-7% raunvöxtum. Þetta er helsta efnahags- vandamál íslands núna. Þegar vextir eru svo miklu hærri hér á landi en er- lendis dregur það úr samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja. Hver er skýringin? Ásgeir skýrir hvaða kraftar eru hér að verki: „Raunvextir í rekstrarhagfræði- legum skilningi ráðast af jaðarfram- legð fjármagns sem til lengri tíma er rekið áfram af tækniframförum, eða framleiðni, sem og vexti annarra fram- leiðsluþátta líkt og vinnuafls. En ný tækni og aukinn mannafli kallar á nýj- ar fjárfestingar og auka eftirspurn eftir fjármagni - svo dæmi sé tekið. Lækkun raunvaxta má því fyrst og fremst rekja til fallandi framleiðni á Vesturlönd- um og fólksfækkunar í þróuðum ríkj- um líkt og Japan, ftalíu og Þýskalandi svo dæmi séu nefnd. Það hefur meðal annars lýst sér í því að skráð fyrirtæki greiða út arð og/eða kaupa eigin bréf í stað þess að fjárfesta. Þessi raunvaxta- lækkun á vesturlöndum ætti að hafa áhrif um heim allan þar sem frjáls við- skipti með fjármagn ættu að jafna raun- vexti á milli landa. Það hefur og gerst - enda hafa gríðarlegir fjármunir flætt frá Vesturlöndum til nýmarkaðsríkja á síðustu árum.“ Ásgeir rekur hvernig raunvextir Heimild: Oecd og útreikningar Vísbendingar. skutust upp á íslandi á árunum 1983- 85 sem varð til þess að raunvaxtastig varð 8-9% miðað er við verðtryggða fimm ára kröfu. „Það voru líklega einna helst tvær ástæður fyrir háum markaðs- vöxtum á þessum tíma. I fyrsta lagi var gríðarlegur fjármagnsskortur til staðar vegna verðbólgu og neikvæðra raun- vaxta árin á undan er höfðu étið niður sparnað landsmanna. I annan stað var íslenska ríkið í skuldakreppu og gaf mikið út af ríkispappírum sem þrýsti upp vaxtastiginu. Hvað sem því líður er ljóst að raunvextir hafa verið á leið nið- ur síðan frá þessum tíma ef tveir toppar eru undanskildir - þ.e. 1999-2001 og 2005-2007 - þegar Seðlabankinn þrýsti upp markaðsvöxtum til þess að reyna að kæla hagkerfið. Það má annars vegar rekja til alþjóðlegra fjármagnsviðskipta sem hafa þrýst vöxtunum upp og þá sérstaklega eftir að ísland varð aðili að EES árið 1994 og fjármagnsflutningar urðu frjálsir og hins vegar uppsöfnunar sparnaðar á tímabilinu - einkum þó líf- eyrissparnaðar." Vaxtamunur vegna krónu Loks segist Ásgeir hafa komist að þeirri niðurstöðu á árum áður að raunvaxta- munur milli íslands og stærri myntsvæða væri um 2,0% (eða 200 punktar á máli verðbréfasala). „Niðurstaðan var þá að 200 punktar væru eðlilegt viðmið sem væru gjald fyrir skort á seljanleika á gjald- eyrismarkaði, smæðarálag og svo framveg- is. Ef sú forsenda heldur í dag ættu verð- tryggðir raunvextir að liggja rétt undir 2%.“ Allir vita að verðtryggðir raunvextir eru í besta falli rétt um 3,5%. Skýringin er væntanlega sú að hér eru enn höft og fjármagnsflutningar ekki frjálsir. Ásgeir bendir á að „Island er með stöðugan við- skiptaafgang - þökk sé ofurvexti í ferða- þjónustu - og ætti að vera hreinn útflytj- andi á fjármagni (sem höftin hafa að vísu hindrað). Á sama tíma er uppsöfnun sparnaðar mjög hröð — bæði vegna vaxt- ar lífeyrissjóðanna og sökum þess að sókn almennings og fýrirtækja eftir lánsfé er ekki söm og áður. En þrátt fýrir uppgang í efnahagslífinu hafa skuldir heimilanna verið að minnka og einkaneysla hefur ekki hækkað hraðar en ráðstöfunartekjur. Þessu til viðbótar hefur ríkissjóður staðið í stórfelldum uppgreiðslum á skuldum sem má bæði þakka stöðugleikaframlögunum og vaxandi tekjum. Allt bendir þetta til lækkunar raunvaxta." Miðað við niðurstöður Ásgeirs ættu raunvextir á verðtryggðum lánum að lækka um 1,0 til 1,5%. Sé tekið mið af meðaltali á raunvaxtamun á skammtíma- lánum (sbr. mynd 2) ættu óverðtryggðir vextir að lækka í 4,5 til 5,0%. Forsenda fýrir seinni lækkuninni er auðvitað stöð- ugt verðlag, en Seðlabankinn spáir meiri verðbólgu á næstunni, sem vinnur gegn lækkun óverðtryggðra vaxta. 0 Heimildir: 1 Ritstjóri Viðskiptablaðsins: Norðurlöndin og staðreyndir um húsnœðisvexti. http://wunv. vb.is/skodun/nordurlondin-og-stadreyndir- -um-husnaedisvexti/131316/ 2 Bjarni Halldór Janusson: Enn einn plásturinn. httpsd/vidreisn. is/is/greinar/enn- -einn-plasturinn. 3 FréttabréfVirðingar 23. september. Ásgeir Jónsson: Gullbrá og birnimir þrír3 2 VÍSBENDING • 3I.TBL. 2016

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.