Vísbending


Vísbending - 21.11.2016, Síða 1

Vísbending - 21.11.2016, Síða 1
ÍSBENDING Vikurit um viðskipti og efnahagsmál 21. nóvember 2016 37 . tölublað 34. árgangur ISSN 1021-8483 Bein erlend fjárfesting Síðari hluti: Allt annaó en náttúruauólindir I ) Gylfi Magnússon ' dósent úfk Helstu dæmin um beina erlenda fjár- festingu til eða frá Islandi sem snú- ast ekki um náttúruauðlindir eru úr lfftækni- og lyfjageiranum. Þau eru allnokkur og hafa farið í báðar áttír. Þannig hefur fjár- festíngin bæði fært verulega þekkingu inn í landið og gert það kleift að nýta íslenska þekk- ingu erlendis auk þess að opna á og efla alls konar viðskiptasambönd. Efnahagsleg áhrif þessa hafa ekki verið metin mér vitanlega en þau eru án efa veruleg. Þessi fjárfestíng er besta dæmið um það hvernig bein erlend fjár- festing sem ekki byggir á náttúruauðlindum getur nýst íslensku efnahagslífi til góðs. Tölvuþjónusta og hugbúnaður Þá eru einnig ýmis dæmi um beina erlenda Qárfestíngu í fýrirtækjum sem starfa í tölvu- eða hugbúnaðaigeiranum eða skyldri starfsemi. Þótt þau dæmi séu flest frekar lítil þá eru þar ýmis jákvæð merki. Island virðist þokkalega samkeppnishæft í samkeppninni um slíka starfsemi og líkt og í heilbrigðisgeiranum virðist Islendingar bæði geta notíð sín sem frumkvöðlar og sérfræðingar í þessum geira. Hugsanlega getur vöxtur gagnavera ýtt enn frekar undir vöxt á þessu sviði, scrstakiega ef um er að ræða gagnaver sem fást við flókna útreikninga og sérhæfða tölvuþjónustu frekar en tiltölulega einfalda gagnageymslu. Verslun skiptir miklu Ýmis önnur dæmi má nefna Ein grein sem oft gleymist í umræðu um beina erlenda fjárfestíngu er verslun. Sagan geymir ýmis íslensk dæmi um beina erlenda fjárfestíngu í þeim geira, m.a. einokunarverslunarinnar illræmdu á 17. og 18. öld. Slík fjárfestíng var einnig mikilvægur þáttur í útrásinni fýrir hrun. Nokkur erlend stórfýrirtæki eiga og reka verslanir hérlendis og fleiri hafa boðað komu sína Það skiptir máli, ekki síst vegna þess að verslun er einn af þeim geirum sem er með lægsta framleiðni hérlendis. Kostnaður er hár og velta lítil, hvort heldur miðað er við fjölda starfsmanna, útsölustaða eða fermetra verslun- arrýmis. Afkoman er ekkert endilcga góð en hár kostnaður kemur niður á viðskiptavinum og ýtir versluninni að nokkxu marki úr landi. Islendingar skipta við erlendar netverslanir eða koma með úttroðnar ferðatöskur heim að loknum ferðalögum. Erlend þekking og viðskiptatengsl sem fýlgja slíkri fjárfestingu ætru að geta aukið skil- virkni íslenskrar verslunar, aukið samkeppni og lækkað vöruverð. Samtenging íslenska markaðarins við stærri markaði nágrannaland- anna er lykilatriði í því að draga úr ókosmm smæðar hans sem leiðir bæði til stærðaróhag- kvæmni í rekstri fýrirtækja og takmarkaðrar samkeppni þeirra hérlendis. I þessum geira er augljóst hvað ræður ákvörðunum erlendra að- ila um að hefja rekstur hér, þeir leggja einfald- lcga mat á hvort eining sem þjónar íslenska markaðinum mun skila nægum tekjum til að réttlæta fjárfestínguna. Akkilesarhæll íslenska hagkerfisins er einmitt sá hluti þess sem fýrst og fremst þjón- ar innlendum markaði án umtalsverðrar er- lendrar samkeppni. Þar er framleiðni almennt lág. Það á ekki bara við um verslun heldur einnig ýmiss konar þjónustu. Það væri því til mikils að vinna að stuðla að því að bein er- lend fjárfesting í þeim geira aukist. Sem dæmi mættí nefna tryggingar eða bankareksmr. Hvað þarf þá til að örva beina erlenda fjár- festingu? Það gemr auðvitað verið ýrnislegt. Náttúruauðlindir á hagstæðu verði er einn möguleiki og aðgangur að mörkuðum annar. Við höfum dæmi um hvorutveggja hér eins og að framan hefúr verið rakið. Skattar skipta máli Skattalegt hagræði er enn annar möguleiki. Mikið fjármagn streymir í skattaskjól eftir ótal leiðum. Það getur bæði átt við um ýmiss konar eignarhaldsfélög, sem gjarnan eru með annan fótinn eða þá báða í skattaparadísum, og rekstrarfélög. Þau síðarnefndu em með raunverulegan rekstur, mannvirki, starfsmenn o.s.frv. en reyna að tryggja að sem mest af þeim hagnaði sem til kann að verða lendi í vösum eigenda frekar en því sem þeim finnst vera hin gráðuga krumla skattyfirvalda. Þau fýrrnefndu, þ.e. eignarhaldsfélög í skattaparadísum, em hins vegar dæmi um þá gríðarlegu sóun sem getur leitt af viðleimi einstaklinga og fýrirtækja til að lágmarka skattgreiðslur. Starfsemi þeirra býr ekki til framh. á bls. 2 ISala á orku á undirverði og skattaafslættír bæta ekki samkeppnishæfni Is- Iands til framtíðar Islensk stjórnvöld þurfa að að styðja við nýsköpun með almennum aðgerðum 3: Mikil aukning kaupmáttar : hefúr leitt tíl verðhækkana á • fasteignamarkaði 4Tveggja herbergja íbúð kostar um 420 þ.kr. á fm í Reykjavík og Kópavogi VÍSBENDING • 37. TBl. 2016 1

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.