Vísbending - 21.11.2016, Síða 4
Aðrir sálmar
^fíSBENDING
v----------------------------
framh. afbls. 3
Mynd 3. Vísitala íbúðaverós á
höfuðborgarsvæóinu 2005 - 2016
Heimild: Þjóðskrá íslands.
395 þ.kr. í október miðað við staðgreiðslu. Að
vísu er ekki um að ræða nema fimm kaup-
samninga. Meðal byggingarár eignanna var
2011, en talsvert helur verið byggt af nýjum
fjölbýliseignum í sveitarfélaginu síðusm ár.
Hæsta fermetraverðið var hins vegar í
Kópavogi í október, en þar kostaði tvcggja
herbergja íbúð að meðaltali um 424 þ.kr.
staðgreitt á fermetra. Hæsta verðið í einstaka
viðskiptum var tæplcga 520 þ.kr. á fermetra.
Meðal byggingarár samkvæmt kaupsamning-
um varárið 1981.
Tæplega 76% hækkun í
Reykjavík
Til marks um þær miklu verðhækkanir sem
orðið hafa á fasteignamarkaðinum á undan-
fbrnum árum var meðal fermetraverð á
tveggja herbergja íbúð í Reykjavík um 238
þ.kr. á fermetra í ágúst árið 2009 þegar hag-
kerfið hafði tekið mikla dýfu og verðbólgan
mældist tæplega 11%. Meðalverðið hefur
hækkað um tæplega 76% frá þeim tíma-
punkti. A sama tíma jókst kaupmáttur ráð-
stöfúnartekna um tæp 30% samkvæmt vísi-
tölu kaupmáttar launa sem Hagstofan reiknar.
Það gefúr því auga leið að aukinn kaupmáttur
á síðustu árum skýrir að stórum hluta þær
hækkanir sem orðið hafa á fasteignamarkað-
inum, a.m.k. á höfúðborgarsvæðinu. Þá hafa
húsnæðislánakjör verið hagstæðari en ella
vcgna lágrar verðbólgu þótt kjörin séu enn
ekki sambærileg við það sem víða gerist er-
lendis.
Meðalverð í Reykjanesbæ
tæplega helmingur
af Reykjavílr
Fróðlegt er að skoða landsbyggðina í saman-
burði við höfúðborgarsvæðið. Á hverju ári
flyst talsvert af ungu fólki frá landsbyggðinni
m.a. til háskólanáms á höfúðborgarsvæðinu.
Þessir einstaklingar taka síðan afstöðu eft-
ir nám hvort þeir flytji dl baka í sína gömlu
heimabyggð, setjist að í höfúðborginni eða
leiri tækifæra á erlendri grundu. Verð á hús-
næði er án efa einn af þeim þáttum sem fólk
metur í þessu sambandi og er því fróðlegt
að skoða mun á íbúðarverði milli nokkurra
staða.
í október var meðal staðgreiðsluverð á
fermetra á tvcggja herbergja íbúð á Akureyri
tæplega 232 þ.kr., en það er einungis liðlega
55% af meðal fermetraverði í Reykjavík mið-
að við sama mánuð. Verðið var aðeins hærra í
Árborg eða liðlega 238 þ.kr, en tölur miðast
við septembermánuð í tilfelli Arborgar.
I Reykjanesbæ var meðal staðgreiðsluverð
á fermetra hins vcgar um 205 þ.kr. í október
sem er einungis um 49% af fermetraverðinu
í Reykjavík. Mikið framboð var á íbúðum á
Asbrú í Reykjanesbæ eftir brotthvarf Banda-
ríkjahers, en einnig var talsvert byggt af fjöl-
býli á uppgangsárunum í kringum 2007. At-
vinnumál á svæðinu hafa einnig sett sinn svip
á eignaverðið. Hins vegar hefúr verið mikil
gróska í fasteignaviðskiptum á Suðurnesjum á
þessu ári eins og sjá má af fjölgun kaupsamn-
inga.
Miklar hækkanir á íbúðaverði á höfúð-
borgatsvæðinu hefúr valdið því að margir hafa
flutt út fýrir boigarmörkin m.a. til Arborgar,
Vestmannaeyja og á Suðurnesin. Lengst af
hefúr íbúðarverð verið hagstætt á þessum
slóðum en verðið hefúr þó farið nokkuð
hækkandi. Ekki er ólíklegt að sú þróun muni
halda eitthvað áfram ekki síst í ljósi þess að
verð á lidum íbúðum á höfúðborgarsvæðinu
er sums staðar farið að nálgast hálfa milljón
króna á fermetra. □
Sjaldan er ein báran stök
Eitt sinn sagði við mig eldri maðun „Það er
nú mikið lán með blessuð börnin því þau
vita ekki hvaða vandamál lífið ber í skauti sér“.
I Morgunblaðinu þann 24. nóvember 1916,
fýrir sléttum 100 árum birtist eftirfarandi frá-
sögn af Franz Jósef Austurríkiskeisara sem átti
ekki sjö dagana sæla:
Nú er hann látinn, elztí ríkisstjórinn í álf-
unni, og mun hafa verið saddur lífdaga. Alla
hina löngu æfl hans hafði módæti og sorgir elt
hann á röndum. Franz Jósef var fæddur 18.
ágúst 1830 og settist í hásæti Austurríkis, 2.
desember 1848, þá rúmlega 18 vetra að aldri.
En eigi var það glæsilegt, að taka við ríkisstjórn
þá. Ungverjar höfðu slitið sig úr bandalagi við
Austurriki. Króatar og Serbar heimtuðu sjálf-
stæði. Uppreist geisaði i Krakau og Sardinía
styrkti hin ítölsku héruð til uppreistar. Wienar-
búar hófu einnig uppreist í félagi við Ungverja.
Síðan var hernum snúið gegn Ungverjum.
Gekk vel í fýrstu, en síðar fengu Ungverjar
yfirhöndina, og þá neyddust Austurríkismenn
til að biðja Rússa hjálpar. Rússar komu og
bældu niður uppreistina. Þegar Krimstríð-
ið hófst, hefði mátt vænta þess að Austurríki
hefði launað Rússum liðveizluna, en í stað
þess sat það hjá hludaust. Varð það til þess að
Austurríki stóð uppi einsamalt gegn Itölum og
Frökkum árið 1869 og misti þá Langbarða-
land til fúlls. Hófúst nú enn innbyrðis róstur
milli hinna ýmsu kynflokka í keisararikinu. En
jafnframt reyndi keisarinn að ná aftur tökum
á Þýzkalandi. En það strandaði á járnvilja og
fýrirhyggju Bismarks. Síðar hófst ófriður milli
Prússa og Austurríkismanna og um leið sögðu
Italir Austurríki stríð á hendur. Austurríkis-
menn biðu algeran ósigur fýrir Prússum og
urðu að sleppa öllu tilkalli tíl Suðurjódands og
jafnframt láta Feneyjar af höndum við ítali. En
auk alls þessa módætis hafa enn þyngri sorgir
lagst á keisarann. Maximilian bróðir hans,
sem gerðist keisari í Mexíkó árið 1864, var
hrakinn frá ríki og skotinn árið 1867. Einka-
sonur Franz Jósefs, Rudolf erkihertogi og ríkis-
erfingi í Austurriki, fýrirfór sér árið 1889. Níu
árum síðar var Elizabeth drotning hans myrt.
Bróðursonur hans Franz Ferdinand, sem var
ríkiserfingi að Rudolf erkihertoga og föður
sínum látnum, var mynur ásamt konu sinni í
Sarajevo sumarið 1914. Alt þetta módæti tók
gamli keisarinn sér mjög nærri og það er sagt,
að þá er hann frétti um morð þeirra hjónanna
hafi hann farið að hágráta og mælt: Hér í lífi er
mér eigi hlíft við neinu!
Já, sjaldan er ein báran stök. sg.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Jóhannesson
Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23,105 Rvík.
Sími: 512 7575.
Netfang: benedikt@heimur.is.
Prentun: Heimur. Uppiag: 700 eintök.
Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita
án leyfis útgefanda.
4 VÍSBENDING • 37.TBL. 2016