Loki - 15.12.1931, Page 3
ÁVARP TIL____LS SEND ANNA.
Þar- eð þetta er fyrsta blað "Loka" á þessum vetri vil
eg fylgja honum úr hlaði,með nokkrum orðum. "Loki" kemur nú í
fyrsta sinn út í hinum nýia búningi sínum. ^Hann hefir áður
verið skrifaður og lesinn upp á fundum, en á nú að fjölritast
og koma út mánaðarlega.
Með þessari breytingu hyggst^félagið að vinna tvennt.
í fyrsta lagi það, að_ nemendu-r geti átt "Loka" sem^minjagrip
frá skólaárunum og í öðru lagi, að blaðinu verði nú meiri sómi
sýndur, en gjört hefir verið hingað til.
Það er von allra þeirra, sem annt er um blaðið, að sem
.flestir nemendur reyni að leggja sinn skerf til þess, því að
það er skilyrði fyrir því, að blaðið geti^orðið fjölbreytt og
skemmtilegt og^að það nái þeim tilgangi sínum, að æfa nemendur
í að láta í- ljós húgsanir sínar í riti.
Daniel JÓnsson.
F R A M T í B.
Við elskum þig, ókomna_ tíð,
hin íslensku fortíðarbörn.
Við hyllum þig^ störf^þín og stríð
og stefnur í sokn og í vörn.
Við horfum á takmarkið hátt
og hugleiðum ''/æntanleg ár,
með æsknnnar athafnamatt
cg unglingsins baráttu þrár.
Við trúurn á þróun og tryggo
og táp, sem í öryggi finnst.
Því græðum við bernskunnar byggð,
en b^ótum, sem vægast og minnst,
Því úrelta raunar skal eytt,
án umbóta ná,um'/við skammt .
ÞÚ, framtíð, sért fsgri og breytt,
en fortíðar barn ertu sarnt.
Við skiljum að mork ^þitt.og mál
er menning og hugsjónastörf^
með heilbrigoar hendur og sál
að heildar og einstaklings þörf.
Og okkar mun vaxanda verk
að viðgangi menntar og hags.
Svo stigum við örugg og sterk
í starfsemi kornanda dags.
Guðm, Ingi Kristjánsson.