Loki - 15.12.1931, Qupperneq 6
hafði eignast þann auð, sem er æðri öllum peningum og á heirna
í koti smábóndans og barnanna hans. Hvað hafð.i valdið þessari
breytingu? Það var þýðing litla drengsins á söngvum árinnar.
Hann hafði kennt lýðnum að taka hana sór til fyrirmyndar. Það
voru samtökin, sem höfðu unnið þetta dýrðlega starf. Hann
var líka áskabarnið hennar og hún söng fyrir hann sefandi
söngva, þegar hann var hryggur, en fjöruga og þróttmikla,
þegar æskuþrótturinn svall í honum. Hún brýndi hann til
'starfa og henni átti hann að þakka sinn mikla sigur. -
En áin á líka Xagið þeirra, sem þreyttir eru og hafa ausið
út^þrótti sínum, þetta lag söng hún nú. Hugsanirnar runnu
smám saman í móðu fyrir öldunginum og honum leið vel, af því
að allir þögðu nema áin hans. Þegar_ sólin sendi síðustu
geislat>sína um kvöldið, signdi hún fölnaða ásjónu fornvinar
síns, öldungsins, sem hún hafði leiðbeint í æsku, cg sern^
hafði fylgt leiðbeiningum hennar svo vel. En hann var nú
liðinn yfir á land hillinganna, og gat aldrei framar brosað
við kveðju hennar. ^
Geirmundur Jónsson
V 0 N I H,
Samvinnumenn hafa það að markmiði, að finna réttlæti
í viðskiftum og efla á þeim grundvelli vellíðan og bróðurhug
allra stótta og þjóða. Samtok þeirra eru starfandi um víða
veröld. og orðin mjög sterk. Nokkrir samvinnumenn hafa þegar
séð þörfina á því, #að hafa eitt alheimsmál - hjálparmál til
allra viðskifta þjóða í milli og alþjóðlegra funda. Munu
þeir sannfærast um það betur og betur, að samvinnustéfnunni
ykist afl og áhrif, ef slíkt tungumál kæmist í notkun.
Nokkur mál hafa verið búin til^í því skyni, að þau
yrðu alheimsmál. Fáir telja nokkra þjóðtungu hæfa til þess.
Esperanto er ^það mál, sem náð hefir mestri hylli og breiðzt^
út um allar áifur. Veldur því tvenn.t: w
1. Það hefir reyn?:t öðrum tilbúnum málum hæfara í
hverskonar notkun.
2. Það er búið til og borið^uppi af heilagri hugsjón
og draumum um frið og bróðerni á jörðu.
Samvinnumenn ættu því að taka £að í þjónustu sína í sameigin-
legri baráttu fyrir friði og réttlæti.
Esperanto þýðir ”Sá, sem vonar", og mætti^því kallast
Vonarmál. Höfundur málsins, ^Dr_. Zamenhof hefir lýst von sinni
í kvæði, sem er einskonar þjóðsöngur esperantista. Heitir
það !TVoninrí, og fer hér á eftir í lauslegri býðingu. Gefur
það hugmynd um þá drauma, sem sköpuðu málið í huga Zamenhofs,
þessa snjalla málfræðings og göfuga hugsjónamanns.