Þróun - 27.11.1938, Side 1
Útgefandi:
Málfundafél. Hvöt.
ÞROU
ísafirði 27. nóvember 1938.
Kemur út
við hentugleika.
Hjið nýja hús gagnfræðaskólans á ísafirði.
Byrjað var á byggingu gagn-
fræðaskólahúss hér í bænum í
septembermán. í fyrrahaust. Tók
Ragnar Bárðarson að sér að byggja
vtra hyrði hússins í ákvæðisvinnu j
fyrir 33 800 krónur. Var neðri j
hæð skólahússins steypt í fyrra-
haust, en efri hæðin nú í sumar.
Síðari hluta sumarsins hefir verið
unnið að því að fullgera húsið
innan, og er því nú lokið, nema
hvað ekki verður gengið að fullu
frá málningu, fyr en næsta sumar.
Verður hið nýja skólahús vígt
í dag með skernmtisamkomu, en
kennsla hefst í því næstkomandi
miðvikudag.
Byggingin er gerð úr járnbentri
steinsteypu. Útveggir allir eru ein-
angraðir með þriggja þumlunga
vikui'steypu. Gluggar eru allir
tvöfaldir. A neðri hæð hússins
eru þrjár kennslustofur, lítið
herbergi til fatageymslu, rúmgott
anddyri, snyrtiherhergi fyrir pilta
og stúlkur, miðstöðvarherbergi og
kolageymsla. Á efri hæðinni eru
aðrar þrjár kennslustofur. Verður
vængjahurð á'milli tveggja þeirra,
svo að þær verða jafnframt há-
tíðasalur skólans.
í framtíðinni er ætlast til, að
ein af kennslustofunum verði út-
búin fyrir kennslu í eðlis- og
efna-fræði, önnur fyrir handavinnu
stúlkna og sem teiknistofa, og sú
þriðja verður nú þegar tekin til
notkunar sem smíðastofa. Eru
þá eftir þrjár kennslustofur fyrir
dagdeildir skólans.
Á efri hæð eru auk þess kenn-
arastofa, skólastjóraherbergi, lítið
fataherbergi og rúmgóður gangur.
Breiður steinsteyptur stigi liggur
milli hæðanna.
Stærð hússins er 16X14 m.
Múrararnir Helgi Halldórsson
og Sigurður [Guðjónsson hafa
framkvæmt alla einöngrun út-
veggja og múrhúðun innanhúss>
Hallgrímur Pétursson hefir stjórn-
að trésmíðinni, Guðmundur Sæ-
mundsson hefir málað það, sem
ennþá hefir verið málað í skól-
anum, Vigfús Ingvarsson hefir
lagt miðstöðina (helluofnar hafa
verið notaðir) og Kaupfélag ís-
firðinga hefir annast raflagnir um
húsið. Eftirlit með byggingu húss-
ins hefir Jón Þ. Ólafsson haft á
hendi fyrir skólanefnd.
Eins og húsið stendur nú, mun
það kosta sem næst 65 þúsund
krónur. Áætlað var í fyrstu, að
það mundi kosta 75 þúsundir full-
gert, og eru líkur til, að sú á
ætlun muni standast.
Frá stofnun gagnfræðaskólans
allt fram til byrjunar þessa
skólaárs lrefir hann haft húsnæði,
þrjár kennslustofur og kennara-
stofu á þriðju hæð [í byggingu