Austri - 09.06.1988, Side 1
Göngum í Kaupfélagið
og vinnum saman,
því Samvinnuhreyfíngin
sýnir mátt hinna mörgu.
Kaupfélag Héraðsbúa
Norræna í fyrstu ferð sumarsins. - Á innfelldu myndinni eru þeir Jónas Hallgrímsson framkv.stj. Austfars og Amalie Knutsen skipstj.
Vorboðinn ljúf!
Heiður þeim er
heiður ber
Einn af vorboðunum hér aust-
anlands er færeyska ferjan
NORRÖNA en hún kom í sína
fyrstu ferð á þessu sumri til Seyðis-
fjarðar fimmtudaginn 2. júní s.l.
Um 300 farþegar komu með skip-
inu auk 150 ökutækja af ýmsum
gerðum. Þetta eru fleiri farþegar
en áður hefur verið í fyrstu ferð.
Það var einnig þétt setinn bekkur-
inn á leiðinni út, um 750 manns
stigu á skipsfjöl sem er mun fleira
Þeir sem verða 23 ára á þessu ári
fengu nú í fyrsta sinn senda heim
happdrættismiða frá Krabba-
meinsfélaginu, en þeir sem eru
komnir yfir sjötugt féllu af útsend-
ingarlista. Er þeim sérstaklega
þakkaður stuðningur við happ-
drættið fyrr og síðar.
Fylgst er með því nú eins og í
fyrra, hvernig greiðslur berast frá
einstökum byggðarlögum og
landshlutum. í Hausthappdrætti
1987 voru nokkrir staðir á Austur-
landi í alfremstu röð: Frá Reyðar-
firði komu betri skil en frá nokkr-
um öðrum þéttbýlisstað á landinu,
eða 57%, En Eskifjörður og Egils-
en áður hefur verið með fyrstu
ferð NORRÖNU frá Seyðisfirði.
Á þriðja hundfað bílar fóru um
borð á Seyðisfirði þar á meðal 17
húsbílar frá Húsbílafélagi Akur-
eyrar en um 90 manns úr þeim
félagsskap héldu utan og hugðust
skoða Færeyjar í vikutíma. Að
sögn Jónasar Hallgrímssonar
umboðsmanns SMYRIL-LINE á
Seyðisfirði lítur vel út með bókan-
ir í sumar og stefnir allt í að þetta
staðir voru efstir meðal kaupstaða
með 45% skil.
Útkoman á Austurlandi var að
öðru leyti þessi miðað við póst-
númer: Bakkafjörður 46%,
Vopnafjörður 44%, Egilsstaðir
dreifbýli (701) 35%, Eiðar 47%,
Hallormsstaður 52%, Seyðis-
fjörður 36%, Mjóifjörður 55%,
Borgarfjörður 31%, Neskaup-
staður 35%, Fáskrúðsfjörður
44%, Stöðvarfjörður 38%, Breið-
dalsvík 44%, Djúpivogur 27%,
Höfn 43%, Höfn dreifbýli (781)
44% og Fagurhólsmýri 33%.
í heild kom Suðurland best út
með 42% heimsendra miða
greidda, en næst var Austurland
verði gott og gjöfult ár í ferða-
mannabúskap. í áhöfn NORR-
ÖNA eru um 90 manns, flestir
Færeyingar. Kokkarnir 5 að tölu
eru þó allir íslenskir og er íslensk-
ur matur í hávegum hafður um
borð. Auk þess eru um 10 íslensk-
ar stúlkur í áhöfn skipsins. Skip-
stjóri á NORRÖNA er Amalie
Knutsen.
SO
með 41%. Meðalskil yfir allt land-
ið voru 36%. Krabbameinssam-
tökin eru með margt í takinu og
starfsemi þeirra hefur farið sívax-
andi. Happdrættistekjurnar eru
einn mikilvægasti þátturinn í fjár-
öflun samtakanna og standa m.a.
undir mestöllu fræðslustarfi
þeirra. Stuðningur við Happdrætti
Krabbameinsfélagsins er handhæg
leið fyrir þá sem vilja efla samtök-
in til dáða.
Aðalvinningar í Vorhappdrætti
Krabbameinsfélagsins í ár eru
Saab 9000 Turbo, 2 Honda Civic
GL og 3 bílar að eigin vali hver að
verðmæti 500 þús. kr. hver. Auk
þess eru 100 vöruvinningar að eig-
in vali hver að verðmæti 50 þús.
kr. Heildarverðmæti vinninga er á
10 millj. króna. Að vanda verður
dregið 17. júní.
(Frá Krabbameinsfélaginu)
Sjómannadagurinn var haldinn
hátíðlegur í fimmtugasta sinn með
hefðbundnum hætti í flestum sjáv-
arplássunum hér eystra. Veður
spillti þó fyrir á syðri fjörðunum.
Víðast var fólki boðið í skemmti-
siglingu, kappróður var á dagskrá
ásamt fleiru, og síðan var hátíða-
samkoma, þar sem minnst var lát-
inna sjómanna og lífs og liðnir
heiðraðir.
Á Vopnafirði var börnum boðið
í siglingu á laugardag og á sunnu-
dag var hátíð sett í glampandi sól-
skini og 16 stiga hita. Oddviti,
Aðalbjörn Björnsson, bauð vel-
komna heim fegurðardrottningu
íslands, Lindu Pétursdóttur, lýsti
ánægju sinni og sveitunga með
frama hennar og óskaði henni vel-
farnaðar. Þá var einn sjómaður,
Björgólfur Jónsson, sæmdur heið-
ursmerki sjómannadagsins og það
var auðvitað fegurðardrottningin
sem afhenti það. Síðan voru ýmsir
leikir á dagskrá og hljómsveit lék
sjómannalög. Kaffisala var í Mikla-
garði.
Á Höfn í Hornafirði var afhjúp-
aður minnisvarði um hornfirska og
aðra austfirska sjómenn, en því
máli var fyrst hreyft 1979. Nefnd,
undir forystu Óskars Helgasonar
fyrrv. símstöðvarstjóra tók til
starfa 1982 og valdi hún úr nokkr-
um tillögum verk eftir Helga Gísla-
son myndhöggvara. Minnisvarðinn
var reistur á Gónhól í Óslandi og
hefur umhverfi hans verið lagfært
svo þar er orðið mjög snyrtilegt.
Félög og einstaklingar hafa gefið 2
milljónirtil minnisvarðans. Blóma-
kransar bárust frá Slysavarnar-
deild, Hafnarhreppi og Sjómanna-
dagsráði.
Við þetta tækifæri voru tveir
menn, Þórlindur Magnússon og
Rafnkell Þorleifsson, sæmdir heið-
urspeningi, en þeir hafa báðir
stundað sjóinn í áratugi.
Á laugardaginn var fólki einnig
boðið í siglingu og var farið á þrem
stórum bátum og mörgum smærri
út undir Sker. Fjölmenntu Horn-
firðingar í þessa skemmtisiglingu.
Um tuttugu lið tóku þátt í kapp-
róðri þennan dag. Sigurvegarar í
karlaflokki urðu þeir kappar úr
móttöku fiskiðjuversins en knáar
valkyrjur frá USÚ sigruðu í
kvennaflokki.
Á sunnudag varð að flytj a hátíða-
höldin inn í íþróttahús vegna
veðurs. Þar var heiðraður Einar
Björn Einarsson fyrir sjómennsku-
störf. Þá var knattspyrnuleikur,
þar sem sjómenn, íklæddir vinnu-
gallanum, kepptu við yngri kyn-
slóðina og unnu þeir ungu með
dyggri aðstoð dómarans.
Hátíðahöld féllu niður á
Djúpavogi vegna hins hörmu-
lega slyss er þar varð á laugar-
dag 5. júní.
SB
Minnisvarðinn sýnir þrjár mannverur
sem eiga að tákna manninn gegn hafinu
og þrjár 8 m. háar súlur úr hvítum
marmara, sem tákn fyrir þá reisn og
hæð, sem hinn stórbrotni fjallahringur
býr yfir.
Austramynd: SA
Happdrætti Krabbameinsfélagsins:
Öflugur stuðningur á Austurlandi
Hótel Bláfell
Nýlega var tekin í notkun við-
bygging við Hótel Bláfell á Breið-
dalsvík. Er hér um að ræða 565 fer-
metra byggingu á tveim hæðum.
Þar eru sjö tveggja mann herbergi
og matsalur.
Herbergin voru tekin í notkun 1.
júní þegar þar gisti hópur aldraðra
frá Reykjavík á leið til Færeyja
með fyrstu ferð Norrænu. Salurinn
var tekinn í gagnið á sjómannadag-
inn en formleg opnun verður síðar.
Eftir þessa stækkun getur hótelið
tekið á móti 120 manns í mat.
Hjá Hótel Bláfelli vinna fimm
menn yfir sumartímann og fleiri við
stærri samkvæmi og þegar hópar
eru á ferðinni. í vetur voru þau
hjónin tvö með reksturinn og var
aðsókn allgóð, eða eins og Guðný
Gunnþórsdóttir sagði. „Það var
nóg fyrir okkur.“
SB
Hótel Bláfell. Nýbyggingin til vinstri.
Austram.M.G.
„Ég tefli nú bara við páfann.