Austri


Austri - 09.06.1988, Qupperneq 6

Austri - 09.06.1988, Qupperneq 6
Fjölbreytt úrval af garðyrkjuverkfærum. Slöngur, tengi o.m.fl. Járnvörudeild K.H.B. Egilsstöðum, 9. júní 1988. 20. tölublað. Sambýli í bindivél Svo virðist sem smáfuglarnir hafi haft eitthvert hugboð um að lítið yrði um heyskap á Borgarfirði þetta sumarið, þvf að bæði maríuerla og skógarþröstur gerðu sér hreiður í sömu bindivél- inni, sem stendurá túninu í Hvannstóði. Maríuerluhreiðrið með eggjunum sem sést á mýndinni er á hillunni þar sem bindigarn- ið er, en þrastarhreiðrið er í sópnum. Ekki var hægt að ná mynd afþví en gapandi goggar blöstu við þegar gægst var niður í rif- urnar á sópvindunni. A ustramynd/GS Heilfrystur humar: Tilraunir á Höfn lofa góðu Vegaframkvæmdir 1988: Austurland Dreifar Smærri pakhningar Nú þurfum við að koma á fram- færi kvörtun eða tilmælum til mjólkurstöðvarinnar á Egilsstöð- um, sem snertir skyrið okkar ágæta. Er ekki hægt að fá það í minni pakkningum. Nú er skyr einungis selt í 500 gr dollum. Það er alltof mikið fyrir lítil heimili eða þar sem keypt er fyrir aðeins einn. Mikill hluti af innihaldinu skemmist eða verður illætt áður en því verður komið í lóg á þann hátt sem ætlað var. Er ekki hægt að fá 100 gr. pakkningar á markað? Þá myndi líka verða til mikils hagræðis og áreiðanlega leiða til söluaukningar ef skyrið væri sett hrært í dósir án sykurs. Hvað segið þið neytendur. Og hvað segja ráðamenn í mjólkur- stöðinni??? Kattaát í Mogganum var sagt frá því að nú ætti að stemma stigu við katta- drápi til manneldis í Seuol, höfuð- borg S-Kóreu. Dýravinirhyggjast nota Ólympíuleikana til að reka áróður gegn hunda- og kattaáti. Ekkert má nú. En ef til verður þetta okkur til ábata eins og eitr- uðu þörungarnir við Noregs- strendur. Eins dauði er annars brauð. Nú er að grípa tækifærið og kenna Kóreumönnum að eta lambaket í staðinn fyrir kettina. 5mábátar Samkvæmt bráðabirgðatölum nam heildarveiði smábáta fyrstu fjóra mánuði þ.á. 4,092 tonnum á 3,4941. á sama tíma í fyrra. Banndagar í sumar eru frá 13.- 19. júní ogfrá 28. júlí til 6. ágúst. Nýtt smábátafélag var stofnað á Höfn í Hornafirði 29. mars í vetur og mættu 30 manns á stofnfund. Smábátum á Höfn fer ört fjölgandi og eru langflestir á handfæraveiðum. Hafa þeir fisk- að ágætlega. Skylt er að fá veiðileyfi fyrir alla báta undir 6 brl. og ef menn hafa rétt á að stunda netaveiði á bátum undir 6 brl. og ætla að nýta sér það verður að sækja um leyfi til þess. Úr fr.br. L.S. Græna torgið Það var líf og fjör á græna torg- inu á Egilsstöðum laugardaginn 5. júní. Par var skógræktin með „mini-skóg“. Einstaklingar buðu sína framleiðslu, en það voru aðallega sumarblóm en einnig fjölær blóm og kálplöntur, og þarna mátti fá heimaræktaðar, blómstrandi dalíur. Þá voru einn- ig á boðstólum afskorin blóm, blómapottar, ávextir, laukar og rósir. Kaupendur þyrptust að og verslunin var blómleg. AHa helg- ina mátti síðan sjá fólk önnum kafið í görðum sínum við að pota niður blómum og trjám. Það er sannarlega gott til þess að vita að heimamenn eru að verða sjálfum sér nógir um þessa framleiðslu. Þátturinn ykkar Við minnum lesendur á að þessi þáttur „dreifar“ er til orðinn fyrir þá. Hér getið þið, elskurnar mínar, komið á framfæri frétta- klausum, ábendingum og aðfinnslum. En mest gaman er að fá jákvæðar tillögur og umsagnir um menn og málefni. í fyrrasumar hófust hjá fiskiðju KASK tilraunir með að heilfrysta humar. Voru þá unnin fjögur tonn og send á Ítalíumarkað. Þessi vara líkaði vel og er nú í ráði að vinna um 30 tonn á sama hátt í sumar. Að sögn Ara Þorsteinssonar, sem hef- ur haft yfirumsjón með þessari vinnslu, þá voru aðal erfiðleikarnir í sambandi við svokallaðan sorta, sem kemur fram í humri og öllum skeldýrum þegar þau drepast. Með því að dýfa humrinum í sérstaka Hinfallega afurð, heill humar. efnalausn má koma í veg fyrir þessa sortamyndun. í sjónvarpi fyrirekki löngu, komu fram efasemdir um að við ættum möguleika í þessri grein, en við teljum okkur hafa allt aðrar forsendur, sagði Ari. Við vinnum í samræmi við kröfur þessara mark- aða. Þeir hjá humarvinnslunni eru nú að þreifa fyrir sér með aðra markaði. Humar frá í vor var send- ur inn á sömu markaði og England og viðtökur á þeim voru mjög góðar. Hér er um að ræða þrisvar sinn- um meira magn sem verið er að vinna, miðað við að áður var aðeins halinn nýttur, en öðru, þ.e. tveim þriðju af humrinum hent í sjó. Það er hrikaleg sóun á verðmætum því það er nýtanlegt kjöt á allri skepn- unni. Hér er því um geysilega verð- mætaaukningu að ræða. Mikla áherslu þarf að leggja á að humarinn líti vel út, því eins og Ari sagði, þá er þetta mjög falleg afurð og hún selst dálítið út á það. Verð á heilum humri lofar góðu enda þótt vinnslan krefjist þrisvar sinnum meira vinnuframlags. Um 200-230 tonn berast væntan- lega á land í sumar af humri á Hornafirði og er þá átt við humar- hala. Nú er, eins og áður er sagt, ráðgert að heilfrysta 30 tonn, sem svarar til 10 tonna af humarhölum. Halarnir fara á markað í Sviss, Kanada og Bandaríkjunum. SB Austurlandsvegur Blábjörg - Hofsá: Fjárveiting er 12.3 m.kr. og að auki verður unnið fyrir viðhaldsfé. Vegur verður styrktur á köflum og réttur af. Lögð verður klæðning 8.5 km. Vegagerðin vinnur verkið og er áætlað að því ljúki í byrjun júlí. Össurá - Reyðará: Fjárveiting er 7.2 m.kr. og auk þess verður unnið fyrir viðhaldsfé. Vegur verður rétt- ur af og lögð klæðning 4.7 km. Vegagerðin vinnur verkið og er áætlað að því ljúki í byrjun júlí. Mýri - Hof: Fjárveiting er 12.0 m.kr. og auk þess verður unnið fyr- ir viðhaldsfé. Lokið verður við nýbyggingu vegar 7.2 km. Verk- takafyrirtækið Fell s.f. á Höfn vinnur verkið og er skilafrestur 1. júlí. Vegagerðin leggur klæðningu á kaflann í júlí. Norðausturvegur Sunnudalsvegur - Teigará: Fjár- veiting er 7.0 m.kr. Vegur verður endurbættur um 5.0 km. upp Bursta- fellsbrekkur. Vegagerðin vinnur verkið í júní og júlí. Jökulsárhlíð - Krossavík: Fjár- veiting er 1.0 m.kr. Unnið verður við tæknilegan undirbúning vegar yfir Búr. Norðfjarðarvegur Um Hólmaháls: Fjárveiting 4.8 m.kr. Lögð verður klæðning 1.8 km. Frá Hólmahálsi að Eskifjarð- ará verður vegur styrktur og endur- nýjuð klæðning 2.5 km. fyrir við- haldsfé. Vegagerðin vinnur verkið í júní og júlí. Við Eskifjörð: Fjárveiting er 8.0 m.kr. Lokið verður við nýbyggingu vegar á 0.7 km. og gata upp úr Eskifirði endurbyggð 0.3 km. Vegagerðin vinnur verkið í júní og júlí. Eskifjörður - Beljandi: Fjárveit- ing er 23.1 m.kr. Lokið verður við undirbyggingu vegar 2.5 km., en yfirbygging og frágangur verður unnin næsta sumar. Verkið er boð- ið út og á verktaki að skila undir- byggingu í byrjun október, en veg- inum í heild á að vera lokið í byrjun ágúst á næsta ári. Seyðisfjarðarvegur Neðri Stafur - Efri Stafur: Fjár- veiting er 13.8 m.kr. Lokið verður við frágang vegar á 4.0 km. og lögð klæðning. Vegagerðin vinnur verk- ið í júní og júlí. Suðurfjarðavegur Skriður - Höfðahús: Fjárveiting er 15.1 m.kr. Vegur verður endur- byggður 4.9 km. Verkið verður boðið út í júní og á verktaki að skila þvi fyrir haustið. Sævarendaströnd: Unnið verður fyrir viðhaldsfé. Vegur verður styrktur 9.0 km. Verkið verður unnið í haust og verður a.m.k. að hluta boðið út. Jökuldalsvegur: Fjárveiting er 7.0 m.kr. Unnið var fyrir hluta fjár- veitingar s.l. haust og verður unnið að lagfæringum á ýmsum stöðum á Jökuldalsvegi í sumar. Vegagerðin vinnur verkið. Upphéraðsvegur Atlavík - Hafursá: Fjárveiting er 12.9 m.kr. Vegur verður réttur af og lögð klæðning 4.6 km. Vega- gerðin vinnur verkið í júní og júlí. Flugvallavegur á Norðfirði: Fjárveiting er 3.8 m.kr. Byggð verður ný brú og fyllt að henni. Vegagerðin vinnur verkið í haust. Austramynd: SA

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.