Austri - 29.03.1990, Side 1
35. árgangur.
Egilsstöðum, 29. mars 1990.
13. tölublað.
í helgarmatinn á tilboðsverði:
Lamba panna ..................... kr. 690.- kg
Nauta Stroganoff................. kr. 890,- kg
Kindabjúgu .........kr. 429.-
Fjöldi annarra gómsætra rétta úr
lamba-, nauta- og svínakjöti.
Opið laugardaga frá 10 til 14.
Kaupfélag Héraðsbúa
matvörudeild - Egilsstöðum
Reyðarfjarðarhreppur gefur út skýrslu um:
Sta arval
stóriðj uvers
Reyðarfjarðarhreppur fól í
janúar sl. fyrirtækinu Hönnun og
ráðgjöf hf. að taka saman yfirlit
yfir nokkra helstu þætti er haft
gætu áhrif á ákvörðun um bygg-
ingu álvers við Reyðarfjörð. Þótti
mönnum hér eystra opinberir
aðilar til þessa einkum hafa beint
athugunum sínum að Straumsvík
og Eyjafirði, en Reyðarfjörður
ekki hafa komið nógu sterklega til
greina við þær athuganir. Þótti
heimamönnum því nauðsynlegt
að taka frumkvæðið og leggja
sjálfstætt mat á nokkra þætti, ef
verða mætti til að möguleikarnir
yrðu séðir í nýju ljósi.
Við fjörðinn voru athugaðir
þrír mögulegir staðir, sem álitleg-
astir þóttu, þ.e. frá Sómastaða-
gerði út að Hrauni norðan
fjarðar, leirur fyrir botni fjarðar-
ins og frá Eyri út að Ytriá sunnan
fjarðar.
í skýrslu um þessar athuganir
eru teknar saman nokkrar helstu
niðurstöður og skal nú getið þess
helsta, sem þar kemur fram, sem
talið er mæla með byggingu stór-
iðjuvers þar:
í Reyðarfirði er landrými fyrir
álver með 185.000 tonna fram-
leiðslugetu á þremur stöðum, þ.e.
norðan fjarðar á Hrauni, á
Leirum við botn fjarðarins og
sunnan fjarðarins á Eyri. Mögu-
leikar til stækkunar í allt að
360.000 tonn teljast á tveimur síð-
asttöldu stöðunum.
Þar eru líklega tveir hagstæð-
ustu byggingareitir, er fyrirfinnast
á landinu. Á Leirum er flatlend
lóð. Þar er efnisflutningur tiltölu-
lega lítill til að lóðin teljist bygg-
öðrum stöðum, sem álitlegir hafa
þótt fyrir álver og hætta af hafís á
siglingaleið er ekki teljandi.
Reyðarfjörður er skemmra frá
væntanlegu raforkuverki en aðrir
þeir valkostir, sem til greina hafa
komið og liggur utan svæða eld-
virkni og jarðskjálfta. Á Austur-
landi hefur verið talið ódýrasta
vatnsafl á landinu fyrir stóriðnað í
stórum áföngum.
Reyðarfjörður hefur vinnu-
sókn, sem telur á bilinu 4200-6000
manns, eftir því hvaða þéttbýlis-
staðir á miðsvæði Austurlands
teljast til hennar. Samgöngur
innan svæðisins eru stöðugt 'í
framför og lokun fjallvega sífellt
fátíðari. Frá flughöfn á Egils-
stöðum er skemmra flug til
Norður-Evrópu en frá öðrum
stöðum hérlendis.
Reyðarfjörður er ekki sérstak-
lega viðkvæmur fyrir mengun, þar
sem landbúnaður er orðinn sára-
lítill og mjög á undanhaldi. Gróð-
urfar og dýralíf er um fátt sérstakt
í firðinum.
Nýjustu álver hafa mjög full-
kominn mengunarvarnarbúnað
og svo yrði þá væntanlega einnig í
Reyðarfirði.
í skýrslunni kemur fram að aðstœður
eru góðar í Reyðarfirði fyrir byggingu
álvers■ Austram.lSig.
ingarhæf. Á Eyri verður lóð til að
nokkru á fyllingu út á grynningar,
þegar lóðin er jöfnuð.
í Reyðarfirði eru hafnarskilyrði
mjög góð. Höfn yrði þar í öllum
tilvikum ódýr fyrir skip af þeirri
stærð, sem er til viðmiðunar.
Þaðan eru styttri siglingaleiðir til
helstu hafna í Evrópu, en frá
Rekstur Valaskjálfar í fyrra:
Tapið var tvær komma
þrjár milljónir
— Tvær og hálf milljón í hagnað án fjármagnsliða
Héraðsheimilið Valaskjálf tap-
aði á sl. ári rúmlega 2.3 millj-
ónum en árið 1988 nam tapið
rúmum 11.7 milljónum. Á árinu
1989 reiddu eigendur Valaskjálf-
ar, sem eru öll sveitarfélög á Hér-
aði, fram rúmar 12 milljónir
króna til að grynnka á skuldum
Héraðsheimilisins.
Á sameiginlegum fundi oddvita
á Héraði sem haldinn var á Egils-
stöðum nýlega voru m.a. lagðir
fram reikningar Héraðsheimilis-
ins Valaskjálfar. Þar kom fram að
rekstrartekjur Valaskjálfar voru á
sl. ári 61.5 milljónir á móti 47.1
milljón árið 1988. Rekstrargjöld
voru 58.9 milljónir en 50.7 millj-
ónir árið 1988. Rekstrarhagnaður
ársins, án fjármagnsliða, var því
árið 1989 2.5 milljónir en árið
áður var rekstrartap uppá 3,6
milljónir. Þegar fjármagnsgjöld
og tekjur eru teknar með er tap
ársins 1989 uppá 2,3 milljónir en
árið 1988 var tapið 11.7 milljónir.
Á sl. ári lögðu eigendur fram
verulegt fé til Valaskjálfar eða
12.1 milljón en á árinu 1988 1.2
milljónir. Heildarskuldir Vala-
skjálfar eru 53 milljónir. Eig-
endur fyrirtækisins eru öll sveitar-
félög á Héraði en Egilsstaðabær á
þó langstærstan hlut.
Hótel Valaskjálf hlf
Eins og áður hefur komið fram
í Austra var hlutafélagið Hótel
Valaskjálf h/f stofnað í nóvember
sl. Fyrsta janúar í ár yfirtók það
rekstur Héraðsheimilisins Vala-
skjálfar ásamt eignum og
skuldum, en eldri byggingu Hér-
aðsheimilisins ásamt innanstokks-
munum mun það leigja. Eigendur
þessa nýja hlutafélgs eru öll sveit-
arfélög á Héraði og á Egilsstaða-
bær stærstan hlut eða 64.5% hluta-
fjár. Tilgangurinn með stofnun
þessa nýja hlutafélags er m.a. að
gera rekstrarfyrirkomulagið
sveigjanlegra og skapa um leið
möguleika á að fá nýja hlufhafa
inní reksturinn. í því skini er
áformað að bjóða hlutabréf til
sölu á almennum markaði innan
tíðar.
B.
Loðnuvertíðinni
að ljúka
Loðnubræðslu hér austanlands
er um það bil að ljúka þessa dag-
ana og virðist hún hafa gengið
þokkalega þrátt fyrir erfitt tíð-
arfar það sem af er árinu.
Á Vopnafirði voru bræddar um
6.000 lestir af loðnu hjá Tanga hf.
og lauk bræðslu þar fyrir um mán-
uði.
Hjá Síldarverksmiðju ríkisins á
Seyðisfirði lauk bræðslu á loðnu
23. mars sl. og var tæplega búist
við meiri loðnu þangað á vertíð-
inni. Þar var búið að bræða
64.500 tonn af loðnu frá áramót-
um, þar af rúm 4.000 tonn af
norskum bátum, sem leituðu
hafnar vegna veðurs einkum í
Loðnan er ekki stór fiskur en skapar okkur oft mikinn gjaldeyri, þegar mikið magn
veiðist. Pví miður er verð á loðnumjöli nú um 20% lægra en í fyrra, en verð á lýsi
er svipað og í lok vetrarvertíðar í fyrra.
AustramlB.
janúar. Hjá S.R. var brætt nærri
4.700 tonnum meira nú en á
vetrarvertðinni í fyrra og er það
með því mesta, sem verksmiðjan
hefur tekið á móti á vetrarvertíð.
Hjá Hafsíld á Seyðisfirði var sl.
mánudag búið að vinna 27.626
tonn frá áramótum. Bræðslu var
ekki lokið en búist við að hráefnið
kláraðist í þessari viku. Lítið mun
hafa veiðst af loðnu eftir 10.
mars, m.a. vegna illviðra og
bjuggust þeir hjá Hafsíld ekki við
að fá meiri loðnu. Flestir bátar
munu vera búnir með loðnukvóta
sína nema helst einhverjir minni
bátar.
Síldarvinnslan á Neskaupstað
hefur tekið á móti rúmlega 62.000
tonnum af loðnu en á vetrarver-
tíðinni í fyrra voru brædd þar um
58.000 tonn. Vonast þeir eftir að
fá einhverja viðbót þar áður en
vertíðinni lýkur.
Á Eskifirði hefur verið tekið á
móti tæpum 68.000 tonnum af
loðnu frá áramótum hjá Loðnu-
verksmiðju Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar hf.
í Síldarverksmiðjum ríkisins á
Reyðarfirði er búið að bræða
28.847 tonn af loðnu frá áramót-
um. Er það heldur minna en á
vertíðinni eftir áramót í fyrra en
þá tóku þeir á móti yfir 30.000
tonnum af loðnu. Á Reyðarfirði
var búist við að bræðslu lyki á
föstudaginn í þessari viku, ef
verksmiðjan fengi ekki meiri
loðnu, sem ekki virtist mikil von
um Framhald á bls. 7
Eskifjörður:
Pöntunarfélag Eskfirð-
inga hf.opnar verslun
Síðastliðinn föstudag hóf nýtt
hlutafélag, Pöntunarfélag
Eskfirðinga hf., rekstur matvöru-
verslunar í fyrrum húsakynnum
hins eldra Pöntunarfélags
Eskfirðinga, sem hið nýja hluta-
félag keypti.
Að sögn Guðmundar Stefáns-
sonar framkvæmdastjóra hins
nýja hlutafélags var versluninni
vel tekið af heimamönnum á opn-
unardaginn en boðið var upp á
kaffi og meðlæti í versluninni
allan þann dag. Verslunin var
einnig opin á laugardaginn frá kl.
10 til 13 og verður það væntanlega
áfram. Eins og fyrr segir er hér
um matvöruverslun að ræða en
Verslunarhús Pöntunarfélags Eski-
fjarðar hf. Þar er nú rekin matvöru-
verslun og eru eigendur hennar Hrað-
frystihús Eskifjarðar hf, Bœjarsjóður
Eskifjarðar og fleiri aðilar. Austram.lB
Guðmundur Stefánsson sagði að
óráðið væri, hvort farið yrði út í
að bjóða upp á fleiri vöruflokka
síðar.
Fimm stöðugildi eru nú við
hina nýju verslun.
Stærstu hluthafar í félaginu eru
Hraðfrystihús Eskifjarðar hf.
með 84.5% hlutafjár, Bæjar-
sjóður Eskifjarðar með 10% hluta-
fjár og um 30 einstaklingar og
félög á Eskifirði með 5.5% hluta-
fjár.
G.I.
,-------—» - \
Ég vil hafa álver í Fellabæ.