Austri - 29.03.1990, Blaðsíða 6
6
AUSTRI
Egilsstöðum, 29. mars 1990.
Búða-
tíðindi
Nýlega kom út 1. tölublað 1.
árgangs af Búðatíðindum, sem er
fréttabréf sem hreppsnefnd Búða-
hrepps gefur út. Tilgangur frétta-
bréfsins er að upplýsa Fáskrúðs-
firðinga um verkefni hrepps-
nefndar á hverjum tíma, en
óákveðið er hversu oft fréttabréfið
kemur út.
í fréttabréfinu koma meðal ann-
ars fram fróðlegar upplýsingar um
breytingar á tekjustofnum sveitar-
félaga og verkaskiptingu milli ríkis
og sveitarfélaga, sem tóku gildi um
síðustu áramót. Við birtum hér til
fróðleiks úrdrátt úr fréttabréfinu
um þessi mál:
Um tekjustofna
sveitarfélaga
“Þann 1. janúar 1990 tóku gildi
ný lög um tekjustofna sveitarfél-
aga. Þessi lög breyta verulega
tekjustofnum sveitarfélaga, en
þeir eru:
1. Útsvör.
2. Aðstöðugjöld.
3. Fasteignaskattur.
4. Framlög úr Jöfnunarsjóði.
Breytingar á lögunum hvað
varðar útsvör breyttist með stað-
greiðslunni. Að öðru leyti var ekki
um að ræða miklar breytingar á
útsvarinu. Samkvæmt upplýs-
ingum Sambands íslenskra sveitar-
félaga nýttu 75.5% allra sveitarfél-
aga útsvarsprósentuna að fullu og
á Austurlandi nýttu 31 af 33 sveit-
arfélögum útsvarsprósentuna að
fullu. Til að fá óskert framlag úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélgaa þarf að
nýta útsvarsprósentuna að fullu.“
(Hámark er7.5%. Innsk. Austra).
“Aðstöðugjöld breyttust einnig
verulega með þessum lögum. Ekki
er lengur gert ráð fyrir mismun-
andi hámarksálagningu eftir
atvinnugreinum, sem hingað til
hefur tíðkast. Þannig hefur
útgerðin ekki lengur hámarks-
álagningu 0.33% af heildargjöld-
um, fiskvinnslan hefur ekki lengur
hámarkið 0.65% og iðnaður ekki
lengur hámarkið 1.0%, nú hafa
allar greinarnar sama hámarkið og
er það 1.3%.“
“Fasteignaskattarnir breytast
mjög mikið. Nýju lögin gera ráð
fyrir að samskonar hús, hvar sem
þau eru staðsett á landinu myndi
sama stofn til álagningar fasteigna-
gjalda. Við þessa lagabreytingu
hækkar stofn til álagningar fast-
eignagjalda víðast hvar á landinu
utan Reykjavíkur.
Verkaskipting ríkis
og sveitarfélaga
“Verkaskipting ríkis og sveitar-
félaga hefur verið til umræðu síð-
ustu ár.. Um síðustu áramót var
verkaskiptum milli ríkis og sveitar-
félaga breytt verulega. Helstu
breytingar eru að 1. janúar tók
ríkið yfir rekstur heilsugæslu-
stöðva, en sveitarfélögin tóku við
rekstri grunnskóla (fyrir utan laun
kennara). Þá þurfa sveitarfélögin
ekki lengur að greiða framlög til
fræðsluskrifstofu, framhaldsskóla,
sj úkrasamlags, atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs og sýsluvegasjóðs, og
hlutdeild í tannviðgerðum barna
lækkar úr 50% í 33% og fellur
niður um næstu áramót. í staðinn
þurfa sveitarfélögin að greiða tón-
skóla að fullu og kosta hærri hlut í
nýframkvæmdum ýmsum s.s.
íþróttahúsum." (Hér má bæta við
að sveitarfélögin bera nú allan
kostnað af heimilishjálp en áður
greiddi ríkið 35% af kostnaði við
heimilishjálp fyrir aldraða. Inn-
skot Austra).
“Markmið þessarar breytingar á
verkaskiptingu var að færa saman
fjárhagslega ábyrgð og ákvarðana-
töku.“
Alþjóðadagur
fatlaðra
Alþjóðasamband fatlaðra (Fim-
itic) hefur allt frá árinu 1960 valið
þriðja sunnudag í mars til að
kynna og berjast fyrir ýmsum
hagsmunamálum fatlaðs fólks og
hefur eitt málefni verið tekið til
meðferðar hverju sinni.
Alþjóðasamband fatlaðra hefur
ákveðið að einkunnarorð dagsins
skulu vera VELFERÐ í EVRÓPU
FRAMTÍÐARINNAR EINNIG
FYRIR FATLAÐA.
Brýnt er að velferð á öllum
sviðum komi fötluðum til góða.
Tæknin eykur fjölbreytni í atvinnu-
háttum og gerir fötluðu fólki kleift
að vinna ýmis störf til jafns við
ófatlaða. Því er nauðsynlegt að
nýta sér tæknina eins og unnt er,
til að hún komi fötluðum til góða.
Þetta er liður í að auðvelda
fötluðum að lifa mannsæmandi og
sem eðlilegustu lífi.
Aðgengi fatlaðra þarf að koma í
betra horf. Vinnustaðir eiga að
vera aðgengilegir öllum, einnig
opinberar byggingar, skólar, sam-
komustaðir o.s.frv., svo að fatlaðir
geti lifað eins sjálfstæðu lífi og
unnt er. Húsnæði þarf að vera
aðgengilegt svo að fatlaðir geti
haft fleiri válmöguleika á atvinnu
og búsetu. Flest mannvirki er
næsta auðvelt að breyta ef vilji er
fyrir hendi. Einnig þarf að hafa
betra eftirlit með nýbyggingum, að
reglum um aðgengi sé framfylgt. í
því velferðarþjóðfélagi sem við
byggjum ætti vart að þurfa að taka
þetta fram en engu að síður er
ótrúlega víða pottur brotinn í
þessum efnum.
Nauðsynlegast af öllu er að rjúfa
þá einangrun sem meirihluti fatl-
aðs fólks býr við.
Félagslegt öryggi, húsnæðismál,
nauðsynleg hjálpartæki og tæki-
færi til menntunar eru því atriði
sem einnig þarf að leggja síaukna
áherslu á.
Frá Sjálfsbjörg,
landsambandi fatlaðra.
S 11158
Varahlutaverslun
Gunnars Gunnarssonar hf.
er flutt 1 Véltæknihúsið að
Lyngási 6-8.
Kappakstursbíll í
útstillingarglugganum.
V.
VarahlutaverslunT
Gunnars
Gunnarssonar
Lyngásl 6 - 8
Egilsstöðum
sími 11158.
BOSCH
BOSCH rafmagns-
handverkfæri í miklu úrvali,
á sama verði og í Reykjavík.
BOSCH rafgeymar í flesta
bíla, báta og vinnuvélar.
Vesturþýsk hágæðavara á
ótrúlega lágu verði.
BOSCH er betri vara.
Drífholt'
sllOlO
Egilsstöðum
I* 2 :© S s s Q. • k* QJ
<*■ s
fc* CQ QJ C3 'C3
<
Áletruð penna-
statíf til
fermingargjafa.
AIJASTEIWN?
720 Borgarfirði eystri
S 97-29977
®11010
Páskaeggin frá Nóa - Síríus
eru íslensk úrvalsvara.
jmoh a Míte
Umboð: Drífholt
Box 1, 700 Egilsstaðir
Til fermingargjafa
Hljómtæki,
sjónvörp.
Svefnpokar,
tjöld.
Skrifborð,
tölvuborð.
Skíðavörur,
reiðhjól.
Föt fyrir þig!
SKÓGAR
Egilsstöðum S 11230
Egilsstaðakirkja
Sunnudagur 1. apríl
Sunnudagaskóli kl. 11.00
Messa kl. 14.00.
Sóknarprestur.
Ókeypis
smáauglýsingar
Aukavinna. Vantar einhvern sem getur
tekið að sér vélritunarverkefni. Tilvalið fyrir
þá sem hafa tölvu heima við.
Upplýsingar í síma 11548. Rögnvaldur.
Til sölu mjög vel með farinn Buick skyhawk
árg. '85. Innfiuttur 1987. Ekinn 56 þús.
mílur. Rafmagn í rúðum, ABS bremsukerfi.
Verðhugmynd 650 þús. Engin skipti. Upp-
lýsingar í síma 97-81361 eða 97-81345.
HÉRAÐSPRENT sf.
S 97-11449 EGILSSTÖÐUM
Tvær ferðir í viku.
Brottför úr Reykjavík:
Þriðjudaga og föstudaga.
Afgreiðsla á Landflutningum.
S 91-84600
Bílasímar:
U-236 S 985 27236
U-2236 S 98521193
SVAVAR & KOLBRÚN
S 97-11953
S 97-11193
700 Egilsstöðum
Ljósmynda-
stækkari!
Óska eftir að kaupa
góðan og vel með
farinn ljósmynda-
stækkara. Upplýs-
ingar í síma 11984
á vinnutíma.
íbúð óskast á
leigu í sumar á
Egilsstöðum.
íbúð óskast til leigu
á Egilsstöðum frá 1.
maí til 1. septem-
ber. Upplýsingar í
síma 91-29797 eftir
kl. 18:00.
VERSLIÐ í HEIMABYGGÐ
Ný sending af skóm.
Verð frá kr. 2.980.- ^
Töskur, beautibox, bréfamöppur
og seðlaveski með og án tölvu,
nytsöm fermingargjöf á góðu verði
Hvítir hanskar, sokkar,
slæður og hárskraut.
Staðgreiösiuafsláttur.!
Opið mánud. - föstud.
kl. 10 - 12 og 13 - 18.
Laugardaga kl. 11 - 13.
Verslunin
KRUMMAFÓTUR.
Lyngási 1,700 Egilsstaðir
Sími 97-11155