Austri


Austri - 29.03.1990, Side 8

Austri - 29.03.1990, Side 8
Egilsstöðum, 29. mars 1990. 13. tölublað. Ekki mikill snjór í Möðrudal H Trésmíði, múrverk. Utanhússklæðningar. Gerum verðtilboð! Höttur Egilsstöðum: Yelheppnaður „Hattardaguru Austri hafði samband við Vern- harð Vilhjálmsson bónda í Möðrudal á Fjöllum sl. þriðju- dag. Hann sagði, að ekki væri mikill snjór þar um slóðir en ekk- ert hefði þó hlánað þar undan- farna daga. Vernharður kvaðst ætla að fara á jeppa til Héraðs síðar þann dag og bjóst við, að leiðin væri jeppa- fær. Hann sagði, að hlánað hefði töluvert á leiðinni norður í Mývatnssveit, þó ekki hefði hlánað hjá þeim. Nær ekkert hefur verið hægt að róa frá Borgarfirði eystra að undanförnu vegna slæmrar veðr- áttu að sögn Björns Aðalsteins- sonar á Borgarfirði og lítið hefur fiskast þá sjaldan gefið hefur á sjó. Frystihús Kaupfélags Héraðs- búa hefur verið lokað frá því um eða fyrir síðustu áramót. Hafa rúmlega 20 manns verið á atvinnuleysisskrá á Borgarfirði að undanförnu en þeim fiski, sem veiðst hefur frá áramótum, hefur verið ekið til Reyðarfjarðar til Um miðjan janúar sl. lauk framkvæmdum við þriðja áfanga byggingar nýrrar flugbrautar á Egilsstöðum, sem var fólginn í því að ljúka við undirbyggingu flugbrautarinnar og setja á hana farg og breyta farvegi Eyvindarár- innar og veita henni í nýjan farveg út fyrir enda brautarinnar. Að sögn Ingólfs Arnarsonar, umdæmisstjóra Flugmálastjórnar á Austurlandi, er nú unnið að undirbúningi þess að bjóða út fjórða og næstsíðasta áfanga verksins. f fjórða áfanga verður m.a. skipt um jarðveg í flugvéla- stæðum. Til fyllingar í þau verður notaður hluti af farginu, sem nú er á brautinni. Afgangurinn af því fargi verður svo notaður í öryggis- svæðin meðfram flugbrautinni. Verður gengið frá þeim í fjórða áfanga og þau jöfnuð en þau eru nú aðeins grófjöfnuð og sums- Engar bílaferðir hafa verið til Möðrudals um langt skeið en 14 eða 16 vélsleðamenn komu þar við fyrir rúmum hálfum mánuði, er þeir voru á leið á vélsleðamót í Mývatnssveit. Einnig hefur póstur komið til þeirra á vélsleða. Allt fé og hross eru á gjöf í Möðrudal og sagði Vernharður að þau væru orðin hálfþreytt á tíðarfarinu og vildu gjarnan fara að fá hláku. vinnslu, ef undan er skilinn fiskur af þremur bátum, sem leggja upp hjá Saltfiskverkun Karls Sveins- sonar. Að sögn Björns Aðalsteins- sonar var frystihúsið einnig lokað um tíma eftir áramótin í fyrra en þá var það opnað aftur um þetta leyti árs. Borgfirðingar vonast því eftir að frystihúsið geti bráðlega tekið aftur til starfa og atvinnulífið fari aftur að komast af stað með batn- andi tíð og blóm í haga. staðar varla það. í þessum áfanga á einnig að koma fyrir öllum röra- lögnum í brautarfyllingunni, svo sem rörum fyrir kapla, drenlagn- ir, klóaklagnir og þess háttar. Verða rörin grafin niður og gengið frá þeim. Einnig sagði Ing- ólfur, að rífa þyrfti gamla bragga, sem nú standa á væntanlegu flug- vélastæði og því þyrfti að byggja nýja sandgeymslu fyrir veturinn. Gert er ráð fyrir að þessum áfanga verði lokið fyrir næsta vetur, þó ákveðnar dagsetningar hafi ekki verið settar í því sam- bandi. Að þessum áfanga loknum er aðeins fimmti áfangi eftir, sem felst aðallega í því að setja bundið slitlag á flugbrautina, aðkeyrslu- brautir o.s.frv. ásamt færslu og uppsetningu ljósa og tækja sem tilheyra flugbrautinni. G.I. íþróttafélagið Höttur hélt sinn árlega “Hattardag“ í íþróttahús- inu á Egilsstöðum síðastliðinn sunnudag. Að venju var lýst yfir kjöri íþróttamanns Hattar og hlaut Hjálmar Vilhjálmsson þann eftirsótta titil að þessu sinni. Er þetta í tólfta sinn sem íþrótta- maður Hattar er kjörinn hjá félaginu. Áhorfendabekkir voru þéttsetnir og dagskráin fjölbreytt. Boðið var upp á sýnishorn þeirra íþróttagreina, sem iðkaðar eru hjá Hetti. Var yngsta kynslóðin þar í aðalhlutverki. Ungir kngtt- spyrnumenn, handknattleiks- menn og körfuboltamenn kepptu í sínum íþróttagreinum. Pá sýndu ungar fimleikastúlkur fimleika og frjálsíþróttafélagið sýndi ýmsar Rekstur Kaupfélags Austur- Skaftfellinga skilaði hagnaði á sl. ári, en á árinu 1988 nam tapið á rekstri félagsins nærri 112 millj- ónum króna. Batnandi afkoma er hjá öllum deildum félagsins. í nýútkomnu fréttabréfi K.A.S.K. kemur fram hjá Her- manni Hanssyni kaupfélagsstjóra að betri afkomu félagsins á milli ára megi þakka bættum ytri skilyrðum ásamt því að ýmsar aðgerðir í rekstri félagsins hafi skilað árangri á liðnu ári. Þar kemur einnig fram að batnandi afkoma sé í öllum rekstrargrein- um, en að venju, verður ekki verði skýrt frá endanlegum rekstrar- tölum opinberlega fyrr en á deild- arfundum og aðalfundi sem hald- æfingar og keppt var í hástökki. í leikhléi fór fram hin árlega verð- launaafhending, þar sem lýst var kjöri íþróttamanns Hattar og veittar viðurkenningar fyrir hverja íþróttagrein, auk þess sem velunnurum félagsins voru þökkuð frábær störf. Dagskráin stóð í tvo tíma og þótti takast hið besta. Stjórn Hattar skipa nú: Björn Kristleifsson formaður, Hjálmar Jóelsson varaformaður, Sigrún Kristjánsdóttir gjaldkeri, Árni Margeirsson ritari, Magnús Kristjánsson meðstjórn- andi og Sveinbjörn Egilsson spjaldskrár- ritari. inn verður í Hofgarði í Græfum þann 7. apríl nk. B. Rekstur K.A.S.K. skilaði hagnaði á sl. ári eftir verulegt tap árið á undan. Myndin hér að ofan var tekin sl. vor þegar Ingvar Carlsson forsœtisráðherra Svía skoðaði fiskiðiuver K.A.S.K. á Höfn. Austram.lSverrir. KURL Að pissa í skóinn Víglundur Þorsteinsson for- maður Félags íslenskra iðn- rekenda komst eftirminnilega að orði á dögunum þegar hann sagði að það væri eins og að “pissa í skó sinn“, færi svo að íslendingar fórnuðu land- ,búnaði sínum fyrir niður- greidda landbúnaðarfram- leiðslu Evrópuþjóða. Fengur er að hverjum liðs- manni sem í ræðu og riti gengur fram gegn „Jónusum" iandsins og varar við innflutn- ingi búvara. „Yorum bláedrú“ í nýjasta blaði Hjálpar- sveitatíðinda, sem er frétta- blað Landssambands hjálpar- sveita skáta, birtust nokkrar skondnar glefsur úr gestabók neyðarskýlis LHS á Hellis- heiði. Þar stendur: „Komum hingað á bíl til að líta á skýlið, vorum bláedrú. Við erum öll pottþétt." „Þetta er fínt place eða skýli.“ „Kom hér og fór aftur.“ „Skruppum í Hvera- gerði í blíðskaparveðri, roki og kulda.“ „Hjálp, gestabókin er búin.“ Maður spyr bara hvort þetta sé virkilega rétt lýsing á „blíðskaparveðri“ fyrir sunnan? Hár í gottinu Kurlritari varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu þegar hann var í mestu makindum að gæða sér á íslensku sælgæti nú á dögunum. í einum bitanum var lítt bragðaukandi aðskotahlutur, nefnilega 7 cm. langt, kolsvart hár. Ekki er sennilegt að hárið hafi lent viljandi í súkkulaðipott fram- leiðandans, en á meðan til eru íslenskir sælgætisfram- leiðendur sem ekki gera þær ráðstafanir sem nauðsynlegar eru til að slíkt hendi sig all.s ekki, tapast markaður til útlendinga og vinna færist úr landi. Einn léttur Á læknaráðstefnu: „Svo ég segi nú frá besta sjúklingnum mínum. Hann þjáist af per- sónuklofa. Ég sendi honum alltaf tvo reikninga og fæ þá báða borgaða." Og annar til — Halló er þetta á lögreglu- stöðinni? — Jújú, það var alveg rétt númer. — Jæja, viljið þið þá koma strax út á hornið á Laugavegi og Snorrabraut, - reiknings- kennarinn minn hefur lagt bílnum sínum þar ólöglega. Miðaldra Miðaldra er sá aldur, þegar þú ert nógu gamall til að vita betur og nógu ungur til að fara ekki eftir því. Borgarfjörður eystri: Dauft yfír atvinnulífínu Egilsstaðaflugvöllur: Fjórði áfangi boðinn út í vor Á myndinni eru verðlaunahafar Hattar. Talið frá vinstri: Eysteinn Hauksson hand- knattleikur, Hjálmar Vilhjálmsson íþróttamaður Hattar, Kristján Rafnsson körfu- knattleiksmaður, Helga Alfreðsdóttir, þjálfari með meiru, Áslaug Árnadóttir fim- leikakona, Andri Snær Sigurbjörnsson frjálsíþróttamaður, Karl Erlingsson þjálfari og Brynjar Sigurðsson sem tók við verðlaunum fh. föður síns Sigurðar Ananías- sonar. Voru þeir Karl og Sigurður sœmdir titlinum „Lyftingamenn Hattar 89“ og er það viðurkenning fyrir að lyfta handknattleiknum á Egilsstöðum á hœrra plan. Og lengst til hœgri er Jón Kristinsson knattspyrnumaður. Austram./B Kaupfélag Austur-Skaftfellinga: Verulega bætt afkoma á sl. ári

x

Austri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.