Austri - 10.01.1991, Qupperneq 3
Egilsstöðum, 10. janúar 1991.
AUSTRI
3
Stéttarsamband bænda:
Fréttatilkynning frá
„Bændaferðum“
Bændaferðir og vetrarorlof
Næsta orlofsvika verður á Hótel
Sögu vikuna 11. til 17. mars n.k.
Dagskráin verður með hefð-
bundnum hætti. Heimsóttar verða
afurðastöðvar landbúnaðarins,
stofnanir og fyrirtæki. Þá verður
farin ein stutt ferð austur fyrir
fjall.
Haldnar verða kvöldvökur. Þá
mun verða farið í leikhús , tvisvar
verður sameiginlegur kvöldverður
á Hótel Sögu og þrisvar sinnum
sameiginlegur hádegisverður.
í samráði við hótelstjórann á
Hótel Sögu verða framvegis valdir
heiðursgestir, þeim verður boðin
þátttaka í orlofsviku. Það geta
verið hjón eða einstaklingar.
Bændaferðir til útlanda
í marsmánuði er fyrirhuguð
viku ferð til Belgíu og Frakklands
og í sumar verður farin bændaferð
til Þýskalands og Austurríkis og er
þar reiknað með 100 þátttakend-
um.Einnig er boðið upp á ferð til
vesturstrandar Kanada. Er það
þriggja vikna ferð og getur
hámarksfjöldi þátttakenda orðið
47. Upplýsingar um þessar ferðir
fást í síma bændasamtakanna.
Að mörgu er að
hyggja
Ungir leikarar á uppleið
Myndin hér að ofan er tekin á æfingu á leikritinu “Þar er líka líf“, eftir Sól-
veigu Traustadóttur. Leikhópinn skipa krakkar úr unglingadeild Leikfélags
Fljótsdalshéraðs, leikstjóri er Kristrún Jónsdóttir. „Þar er líka líf“ var sýnt
3svar í desembermánuði og erfyrirhugað að hafa 1-2 sýningar nú í janúar.
Máfarnir hurfu
í fréttabréfi Ríkismats
sjávarafurða, sem kom út í októ-
ber, er athyglisverð frétt um bar-
áttuna við að halda máfum í
skefjum, en þeir sækja mjög í
úrgang frá fiskvinnslustöðvum og
geta verið miklir smitberar. Þar
segir:
„Samkvæmt upplýsingum frá
Svavari Valtýssyni hjá Frystihúsi
Kaupfélags Héraðsbúa á Reyðar-
firði var beinakassa komið fyrir í
húsinu til þes að koma í veg fyrir
smithættu af völdum máfa. Svavar
sagði, að áður en beinakassinn
kom til sögunnar hefði beinum og
úrgangi verið safnað á bílpall, sem
komið var hálfum fyrir inni í skúr
við frystihúsið. Reynt var að hylja
úrganginn á bílpallinum með net-
yfirbreiðslu, en það dugði ekki til
að halda máfunum í burtu.
„Starfsmenn höfðu áhyggjur af
þessu og því var brugðið á það ráð
að setja upp beinakassa og við það
hurfu máfarnir með öllu,“ sagði
Svavar. Allar aðgerðir sem stuðla
að því að takmarka æti fyrir máfa
stuðla að fækkun þeirra."
Lýsi og fískur
allra meina bót
Flestir kannast við hollustu lýs-
isins, en í fyrrnefndu fréttabréfi er
m.a. vitnað í læknablaðið Lancet
um þetta efni: „Mataræði eskimóa
og leiðir til að koma í veg fyrir
hjartaáfall er yfirskrift greinar,
sem birtist í læknablaðinu Lancet
nýlega. Þar er því haldið fram að
lýsi sé mikilvægur þáttur í matar-
æði fólks og að oft sé um spurn-
ingu um líf eða dauða að ræða.
Höfundar þessarar greinar segja
að nýlegar rannsóknir leiði í ljós,
að taki menn lýsi reglulega minnki
það verulega hættu á hjartaáfalli.
Þeir mæla með lýsi vegna þess að
Omega 3 fitusýrur í fiski stuðla að
lækkun blóðfitu og draga úr æða-
kölkun og þar með hættunni á
hjartaáfalli. Munum eftir lýsinu!“
Samvinnunefnd Landssamtak-
anna Þroskahjálpar og Öryrkja-
bandalags íslands skorar á Ríkis-
stjórnina að hverfa frá þeim
áformum að fella úr gildi 10. gr.
laga um málefni fatlaðra og færa
þau undir núgildandi lög um
almannatryggingar. Þar sem lög
Hótel Saga hefur fyrst hótela á
íslandi ákveðið að bjóða viðskipta-
vinum sínum sérstök viðskipta-
mannakort sem hvort tveggja eru
fríðinda- og greiðslukort.
Viðskiptamannakortið er gefið
út til tveggja ára í senn og þarf að
sækja um það til hótelsins. Það er
ætlað til greiðslu á gistingu, þjón-
ustu og veitingum og er hvorki
Ályktun
um málefni fatlaðra eru nú í
endurskoðun svo og lög um
almannatryggingar er stefnt í voða
því starfi sem beinist að samræm-
ingu í þessum málaflokki.
Hin ótímabæra breyting á
lögunum skerðir um leið rétt fjöl-
skyldna fatlaðra barna til umönnun-
tekið aukagjald við útgáfu þess né
við úttektir eða reikningsyfirlit.
Fríðindin sem handhöfum
kortsins standa til boða felast m.a.
í forgangsþjónustu varðandi her-
bergjabókanir, heimild til að rýma
ekki herbergi fyrr en kl. 18 á brott-
farardegi, ókeypis afnotum af
gufubaði, nuddpotti og æfinga-
arbóta og stefnir framkvæmd
þessa réttar í óvissu.
Virðingarfyllst,
Ásta B. Þorsteinsdóttir, formaður
Landssamtakanna Þroskahjálpar.
Arnþór Helgason, formaður
Öryrkjabandalags fslands.
tækjum í heilsuræktarsal auk
ókeypis afnotum af fullbúinni
skrifstofu ætlaða viðskiptavinum
hótelsins. Þá fá handhafar við-
skiptamannakortsins afslátt hjá
nokkrum bílaleigum. Þessi fríð-
indi geta breyst og fleiri atriði bæst
við til hagsbóta fyrir handhafa
kortsins.
Viðskiptamannakort Hótel Sögu
Ljósmyndasafnið
á Egilsstöðum:
Af hverjum
er myndin ?
Ef lesendur vita af hverjum myndirnar eru þá vinsamlegast
komið upplýsingum til Sigurðar Pálssonar á Héraðsskjalasafninu
á Egilsstöðum, sími 11417.
Byggingavörudeild Egilsstöðum:
YAMAHA vélsleðar, sýningarsleði á staðnum.
Komið eða hringið og íáið nánari upplýsingar um verð
og greiðslukjör.
YAMAHA
Vélsleðareimar, margar gerðir. Vélsleðahjálmar og stígvél.
Vélsleðavarahlutir YAMAHA.
Tilboð í
matvörudeild:
Lamba lærissneiðar .... 890,- kg.
Reyktar grísakótel. 1050. - kg.
Tyrolpanna (svínakj.) . 795,-kg.
Saltað hrossakj. úrb. ... 350,-kg.
Maarud skrúfur og
hringk 100 gr........135,-
Pepsi Cola 1.5 L......145,-
Sanitas pilsner 0,5 L.. 75,-
Vefnaðarvörudeild:
Efni í þorrablóts- og árs-
hátíðarfatnaðinn.
Spariskór á herra.
Kuldaskór og úlpur.
Moon boots st. 36 til 39.
Tilbúnar eldhúsgardínur.
Samkort
TESCO verðlisti:
Tesco matarolía 1 L..... 120.-
Tesco kornolía 1 L .... 166,-
TesCo tómatsósa 745 gr. .. 149,-
Tesco íssósa 250 gr. .. 107,-
Tesco súpur 420 gr. ds. ... 54,-
Tesco kornflakes 500 gr. .. 214,-
Tesco bak. baunir 220 gr. . 37,-
Tesco bak. baunir 440 gr. . 60,-
Tesco muesli 750 gr..... 322,-
Tesco borðsalt 750 gr. ds. . 49,-
Tesco hrísgrjón 4x125 gr. . 121,-
Tesco hrg. lögur 750 ml. .. 100,-
Tesco mýkir 1 L......... 96,-
Tesco þvottaefni 4 kg... 679,-
Tesco þvottaefni
m/mýkir 3,5 kg....... 612,-
Tesco sjampó 4 teg. 0,5L . 115,-
Tesco WC steinar 50 gr. .. 82.-
Tesco stálull m/10...... 82,-
Tesco uppþv.efni 1 kg... 235,-
Verslið þar sem úrvalið er.
Opið mán. - fim. kl. 09 til 18,
fös. 09 til 19, lau. 10 til 14.
Opið í hádeginu alla daga.
ItP? Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum