Austri - 10.01.1991, Blaðsíða 8
BBOMiS
býður betur!
Opið mánd. - föstud. kl. 13:00 til 18:00
Góður
valkostur
í verslun.
Egilsstöðum, 10. janúar 1991. 2. tölublað.
Mannfj öldaþróun í Austur-
landskjördæmi 1989 til 1990
EGILSSTÖÐUM S 12020
Gæðanna vegna
...
Rætt um þverbraut á
Hornafj arðarflugvelli
Hér fara á eftir tölur frá Hag-
stofu íslands um íbúafjölda í
öllum hreppum og kaupstöðum í
Austurlandskjördæmi 1. desember
1990 og tölur frá 1. desember 1989
til samanburðar, en í síðasta tbl.
birti Austri tölur um íbúafjölda í
kaupstöðum og kauptúnahreppum
í kjördæminu.
Af meðfylgjandi tölum má m.a.
sjá, að nokkur fækkun hefur orðið
á íbúum í Norður-Múlasýslu eða
um 38 manns, og fækkun varð um
9 manns í Suður-Múlasýslu. Hins
vegar fjölgaði um 41 íbúa í
Austur-Skaftafellssýslu og fer það
langt með að vega upp fækkunina í
Múlasýslum. Munar það mest um
fjölgun á Höfn og í Nesjahreppi.
Norður-Múlasýsla
Skeggj astaðahreppur
Vopnafj arðarhreppur
Hlíðarhreppur
Jökuldalshreppur
Fljótsdalshreppur
Fellahreppur
Tunguhreppur
Hj altastaðahreppur
Borgarfj arðarhreppur
Seyðisfjörður
Suður-Múlasýsla
Skriðdalshreppur
Vallahreppur
Egilsstaðabær
Eiðahreppur
Mj óafj arðarhreppur
Neskaupstaður
N orðfj arðarhreppur
Eskifjörður
Reyðarfj arðarhreppur
Fáskrúðsfj arðarhreppur
Búðahreppur
Stöðvarhreppur
Breiðdalshreppur
Beruneshreppur
Búlandshreppur (Djúpiv.)
Geithellnahreppur
Austur-Skaftafellssýsla
Bæjarhreppur
Nesjahreppur
Höfn
Mýrarhreppur
Borgarhafnarhreppur
Hofshreppur
Hlutfallslega mest fjölgun
í Fellahreppi
Áberandi mest fjölgun í pró-
sentum talið varð í Fellahreppi
(Fellabær), en þar fjölgaði íbúum
um 8.86% og við bættust 32 íbúar
það á síðasta ári. Á Egilsstöðum
fjölgaði um 4.69% eða 65 íbúa og
í Búlandshreppi (Djúpivogur) var
fjölgunin 3.37% eða fjölgun um 15
íbúa.
Hlutfallslega mest fækkum varð
hins vegar í Vopnafjarðarhreppi
9.09%, en þar fækkaði um 18
manns. í Vallahreppi fækkaði um
7.69% eða um 13 manns og 5.22%
fækkun varð á Seyðisfirði, en þar
fækkaði um 51 íbúa. Hafa ber í
huga, að Seyðisfjarðarhreppur var
sameinaður Seyðisfjarðarkaupstað
á síðasta ári.
l.des. l.des. Breyting Breyting
1990 1989 tala %
3.198 3.236 -38 -1.18
132 134 +2 + 1.50
909 927 -18 -9.09
99 101 -2 -2.00
166 166 0.00 0.00
119 121 -2 -1.68
393 361 +32 +8.86
99 98 + 1 + 1.00
89 87 +2 +2.29
215 213 +2 +0.93
977 1028 -51 -5.22
7.671 7.680 -9 -0.11
110 113 -3 -1.10
169 182 -13 -7.63
1.450 1.385 +65 +4.69
153 159 -6 -3.92
32 31 + 1 +3.20
1.721 1.754 -33 -1.91
87 85 +2 +2.35
1.060 1.095 -35 -3.30
726 719 +7 +0.97
95 94 + 1 + 1.06
758 749 +9 + 1.20
343 345 -2 -0.58
354 365 -11 -3.10
79 82 -3 -3.79
459 444 + 15 +3.37
75 78 -3 -4.00
2.368 2.327 +41 + 1.76
56 56 0.00 0.00
304 297 +7 +2.35
1.679 1.647 +32 + 1.94
92 93 -1 -1.08
117 117 0.00 0.00
120 117 +3 +2.56
Þann 16. desember sl. var hald-
inn á Höfn almennur fundur að
frumkvæði Flugmálastjórnar, þar
sem m.a. var rætt um þverbraut á
Hornafj arðarflugve lli go ýmsa
aðra valkosti í flugmálum. Á fund-
inn mættu m.a. yfirmenn Flug-
málastjórnar og Ingólfur Arnarson
umdæmisstjóri á Austurlandi
ásamt bæjarstjórnarmönnum á
Höfn og sveitarstjórnarmönnum í
norður/suður og flug félli því oft
niður og því seinkaði enn oftar
vegna þess að hliðarvindur væri á
brautina. Ný þverbraut með fyrr-
nefnda stefnu myndi því að hans
áliti og fleiri gjörbreyta aðstæðum
í flugi til og frá Hornafirði.
Fram kom hjá Vigni, að Flug-
leiðir áformuðu að fjölga flug-
ferðum til Hornafjarðar til muna
næsta sumar. Yrðu til dæmis dag-
Þessi myndarlega flugstöðvarbygging er á flugvellinum á Hornafirði, en Hornfirð-
ingar hafa mikinn áhuga á að fá þverbraut á flugvöllinn sem fyrst til að bceta
aðstæður til flugs þangað.
Nesjahreppi. Einnig voru þar for-
ystumenn í ferðaþjónustu á svæð-
inu og ýmsir áhugamenn um þessi
mál.
Að sögn Vignis Þorbjörnssonar
umdæmisstjóra Flugleiða á Höfn
hefur bygging þverbrautar á flug-
vellinum á Hornafirði verið á 10
ára flugmáláaætlun, en þeirri
framkvæmd hafi verið frestað
oftar en einu sinni. Meðal annars
var lagning á bundnu slitlagi á
brautina, sem fyrir er, látin ganga
fyrir.
Vignir sagði, að ekki væri búið
að staðsetja væntanlega þverbraut
ennþá, en reiknað væri með að
hún myndi hafa stefnu í norð-
austur/suðaustur. Væru þetta rík-
jandi vindáttir á þessu svæði.
Núverandi braut liggur hins vegar
legar morgun- og kvöldferðir frá
Reykjavík í júlí og ágúst vegna
dagsferða á Vatnajökul með
ferðamenn. Því væri enn brýnna
fyrir þá en áður, að þessi þver-
braut yrði gerð.
Eins og fyrr segir, mun vera gert
ráð fyrir þessari framkvæmd á
flugmálaáætlun, og kvaðst Vignir
vonast til að eitthvað yrði hægt að
byrja á þessu verki í sumar, en
Flugmálastjórn mun hafa yfir-
stjórn á þessum framkvæmdum,
eins og öðrum flugvallafram-
kvæmdum. Ekki mun þó liggja
fyrir endanleg kostnaðaráætlun og
nánari staðsetning er enn óákveð-
in, eins og áður getur. Óljóst er
því hver framvinda málsins verður
á þessu ári.
G.i.
Landbúnaðarvandinn
etinn á þorra
Eskifjörður:
Enn er verið að
veiða síld
Guðrún Þorkelsdóttir og
Sæljónið eru enn á síld-
veiðum og fer afli Guðrúnar í
söltun. Sæljónið átti eftir um
500 tonna kvóta um áramót
fór út 5. janúar og kom inn
daginn eftir með 120 tonn og
fór aflinn í flökun hjá Frið-
þjófi hf. Hólmatindur liggur í
höfn vegna bilunar en við-
gerð stendur yfir. Aþ.
Nú fer tími þorrablóta í hönd og
leggjast þá landsmenn á eitt og
keppast við að eta svokallaðan
landbúnaðarvanda ýmist súrsaðan
eða reyktan. Hjá Kaupfélagi Hér-
aðsbúa sér Sveinn Jóhannson
matreiðslumaður um þessa hluti
og útbjó hann á haustmánuðum og
lagði í súr ýmsan hefðbundinn
þorramat eins og lundabagga,
sviðasultu, hrútspunga og bringu-
kolla. Hákarl og harðfisk kaupir
kaupfélagið af Vigfúsi Helgasyni á
Borgarfirði en hann hefur verkað
hákarl frá því 1940 og notar
aðferðir sem gengið hafa frá kyn-
slóð til kynslóðar og hefur hann
fram til þessa veitt hákarlinn
sjálfur. í fyrra sá Sveinn um mat á
12 þorrablótum og munu gestir
hafa torgað um hálfu tonni af súr-
mat og öðru eins af hangikjöti.
Austmat á Reyðarfirði hefur
mörg undanfarin ár selt þorramat
og sagði Jón Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri að í fyrrra hefðu
þeir séð um mat á 14 þorrablótum
og hefðu í það farið 2 tonn af
hangikjöti, 400 kg af saltkjöti og
um 1 tonn af hefðbundnum súrmat
og reiknuðu þeir með svipaðri sölu
nú.Þess má geta að súr hvalur sem
hingað til hefur verið í þorratrog-
inu er nú ófáanlegur vegna hval-
veiðibanns. Auk KHB og Austmat
útbúa margar matvöruverslanir
þorramat og selja í verslunum
sínum og mun þessi góði þjóðlegi
matur auka vinsældir sínar frekar
en hitt þrátt fyrir skraf um kaloríur
og cholesterol. ap.
KURL
Verst af öllu er í heimi
einn að búa í Reykjavík
Norræna ráðherranefndin
lætur sig flest varða og er í
minnisbók sem hún gaf út
fyrir árið 1991 ýmsar hag-
nýtar upplýsingar að finna.
Þar er m.a. sagt frá því að
85,3% finnskra kvenna eigi
sér náinn vin. Hvað varðar
kynsystur þeirra í Danmörku
eru 84% þeirra á sama báti.
íslenskar konur virðast aftur
á móti plagaðar af karl-
mannsleysi og verst staddar
norrænna kvenna í þessum
málum, því aðeins 72,8%
þeirra telja sig eiga náinn vin.
í fleiru á mörlandinn met.
íslenskir karlmenn í Reykja-
vík á aldrinum 55-64 ára eru
á norrænan mælikvarða met-
hafar í einsemd eða eins og
skáldið sagði „Verst af öllu er
í heimi einn að búa í Reykja-
vík.“ Samkvæmt riti þessu
virðist mesta bílífið vera á
finnskum konum búsettum í
Helsingfors og þá vitum við
það. Ef marka má sögu þá
sem hér fer á eftir viröist
hagur karla vænkast eftir að
64 ára markinu er náð.
Smiður, hálf-áttrœður,
kvœntist í fyrrasumar laglegri
stúlku um þrítugt.
Aldavini brúðgumans leist
illa á þetta uppátœki gamla
mannsins og gerði hann sér
ferð heim til hans strax eftir
brúðkaupið til að gefa honum
holl ráð.
,Aldursmunurinn“, sagði
hann, „er ofmikill til að þetta
geti blessast, nema eitthvað
komi til. Ég ráðlegg þér ein-
dregið að fá í húsið ungan,
geðslegan leigjanda, enda er
húsakostur hjá þér nœgur. “
Gamli maðurinn féllst á
þetta. Nokkrum mánuðum
síðar kom vinurinn aftur í
heimsókn. ,Jœja, hvernig
gengur?“ spurði hann.
„Prýðilega“, svaraði sá hálf-
áttræði, „konan á von á
barni. “
„Og hvað segirðu mér af
leigjandanum?“
„HÚN á líka von á barni. “
★
Gott er selsblóðið
Steingrímur læknir Matthí-
asson átti tal við Jón Ósmann,
hinn jötuneflda ferjumann við
Héraðsvötn, og spurði hann
margs um hætti hans og
venjur. Meðal annars kvað
Steingrímur hann hafa sagt:
„Gott er selsblóðið, læknir.
Það er fjallgrimm vissa fyrir
því.“
Þær hringja bæði hátt og lágt vekjara-
klukkurnar frá okkur.
Birta hf. Egilsstöðum, sími 11606.
Opið:
mán. - föst. 10-12 og 13-18
laugard. 10-18.
Staðgreiðsluafsláttur.
Úrval af skóm s.s. kuldaskór,
Verslunin götuskór, spariskór
KRUKmAFóTUk hælaskór.
Egilsstöðum, sími 11155.