Austri


Austri - 19.12.1991, Qupperneq 22

Austri - 19.12.1991, Qupperneq 22
22 AUSTRI Egilsstöðum, jólin 1991. Er hver að verða síðastur? Safnahúsið á Egilsstöðum, eins og það litur út í dag. Minjasafn Austurlands var stofnað á Hallormsstað haustið 1943. Að því stóðu Samband aust- firskra kvenna (SAK), Búnaðar- samband Austurlands (BSA) og Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands (UÍA). Seinna gerð- ust Múlasýslur og Menningar- samtök Héraðsbúa aðilar að safn- inu. Gunnar Gunnarsson á Skriðu- klaustri virðist fyrstur vekja máls á að tímabært sé að halda saman gömlum hlutum sem beri vitni um hverfandi verkhætti. Gunnar sat í fyrstu stjórn safnsins þar til 1948 að hann flutti burt af Austurlandi og gaf ríkissjóði hús sitt á Klaustri. Árið eftir var Minjasafni Aust- urlands boðin aðstaða í húsinu og þótti það vera í samræmi við vilja Gunnars og Fransisku Gunnars- son. Á Klaustri var safnið til húsa um næstum 30 ára skeið og þrengdist hagur þess síðari árin vegna til- raunastöðvar á vegum landbúnað- arráðuneytisins, sem þurfti á hús- inu að halda. Lengi toguðust menn á í menntamála- og fjármálaráðu- neytum um hverjum bæri með réttu að sitja staðinn og leystist sá hnútur ekki fyrr en 1979 að samið var um að landbúnaðarráðuneytið héldi Gunnarshúsi en byggt yrði yfir Minjasafnið annarsstaðar. Öll sú saga er rakin í Múlaþingi 1976 (eftir Hjörleif Guttormsson) og Snæfelli 1984 (eftir Sigurjón Bjarnason) og víðar og er engu þar við að bæta. Árið 1993 verður Minjasafnið 50 ára og ári síðar, eða svo, kemst það í sitt fyrsta varanlega, boðlega húsnæði. Pá verður lokið 1. áfanga Vallarvinnuáhöld. Taðkvörn, eða skíta- mylla sem Guðmundur Þorfinnsson bóndi á Litla Steinsvaði smíðaði. Aðal- heiður Sigurðardóttir á Galtastöðum fram gaf safninu 1976. Taðkvísl sem Gísli Þorvarðarson i Papey smíðaði, endurbœtt af Gústaf syni hans, sem gaf safninu 1975. Sporrekuna smíðaði Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi, ásamt fleiri verkfœrum sem safnið van- hagaði um. Guðmundur vann við við- gerðir á safnmunum 1979. Ljósm.: Helgi Hallgrímsson. safnahússins á Egilsstöðum og Minjasafnið fær um 600 ferm. til umráða auk sameignar. í húsinu fullbyggðu á safnið 800 ferm. húsnæði. Auk þess sem safnið leggur með sér í húsbygginguna vegna Skriðuklausturs greiða sveitarfélög í Múlasýslum ákveðið hlutfall af kostnaði. Blóðtökutæki, koppar og bíldur. Björg Jónsdóttir Ijósmóðir frá Höfða á Völlum átti, en Ingibjörg Stefánsdóttir á Egilsstöðum gaf safninu. Ljósm. : Pétur Eiðsson. Servantur með tilheyrandi þvottaskál, könnu og næturgagni. Frá heimili Eyjólfs, Einars, Jónasar, Hólmfríðar og Aðalheiðar Jónsbarna. Þau bjuggu í Mjóanesi á Völlum um 1920. Síðaststóð servanturinn í gestaherbergi hjá þeim systkinum á Höfða, en þar bjuggu þau í rúm 40 ár. Aðalsteinn Bjarnason gaf safninu. Ljósm.: Pétur Eiðsson. Guðmundur Þorsteinsson að störfum sínum í Minjasafninu. Ljósm.: Safnastofnun Austurlands. Kertaform frá Gilsá í Breiðdal, pottaskafa, heimasmíðuð úr járni, frá Brenni- stöðum í Eiðaþinghá, og búðarkeyptur pottabursti, frá Hamragerði í Eiðaþinghá. Ljósm.: Pétur Eiðsson. Kistill frá Kirkjubóli í Stöðvarfirði og tágakarfa frá Hákonarstöðum á Jökuldal. Kúpulaga körfur eins og þessi hafa verið algengar og eru búnar til úr íslenskum tágum. Ljósm.: Pétur Eiðsson. „Trausti", ílát til að fœra fólki mat í á engjar. Frá Núpi í Berufirði. Ljósm.: Pétur Eiðsson. Þar sem safnahúsið ætlar sýni- lega að verða að veruleika, sem er kannski meira en margir hafa þorað að trúa á, er kominn tími til að hefja undirbúning fyrir þau merku tímamót. Hér á eftir fara hugleiðingar um Minjasafn Austurlands eins og það gæti orðið í nýju húsi. Safnið var stofnað á tímum þegar breytingarnar gengu hratt fyrir sig. Pað sem vakti fyrir stofn- endum safnsins var að bjarga minjum gamaldags bændasamfé- lags sem stríðsárin bundu að fullu enda á. Að leiðarljósi var þetta: nú er ekki seinna vænna, nú er hver að verða síðastur, sem svo lengi hefur verið einskonar viðlag við minjasöfnun. Að einhverju leyti tengdist stofnun Minjasafnsins lokaspretti sjálfstæðisbaráttunnar. Það átti að halda fram ágæti rammíslensks, heiðarlegs þjóðlífs. Það sama gerðist annarsstaðar á Norður- löndunum þegar þau stóðu í sinni sjálfstæðisbaráttu á ýmsum tímum, og stofnun Þjóðminja- safnsins 1863 spratt af sömu rótum. Kringum 1945 var safnað um 400 gripum til Minjasafnsins. Mikið voru það nytjahlutir á undanhaldi s.s. stafaílát, tóvinnu- áhöld og ljósfæri, en líka útskornir skraut (og nytja-) hlutir eins og stokkar, öskjur og rúmfjalir. Tölu- Brennivínspeli, talinn úr eigu Páls Ólafssonar skálds. Pelinn fannst í stiga- skoti á Hallfreðarstöðum þegar rifið var 1941. / glerið er rispað: Þorbjörg Odds- dóttir 1870, á hina hliðina: Páll og Bakkus. Viðir úr salslofti Páls komu til Minjasafnsins um 1950, en salurinn og loftið voru á sinni tíð einhver glæsileg- ustu húsakynni. Ljósm.: Pétur Eiðsson.

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.