Austri


Austri - 19.12.1991, Blaðsíða 27

Austri - 19.12.1991, Blaðsíða 27
Egilsstöðum, jólin 1991. AUSTRI 27 Land og saga Þessi getraun er fólgin í því að þið eigið að finna nöfn á 10 stöðum á Austurlandi, lýst er landfræði- legum aðstæðum og í örstuttu máli komið inn á sögu þeirra. Ef tekinn er fyrsti stafurinn í hverju staðar- nafni eiga þeir í réttri röð að mynda nafn á sveitabæ á Austur- landi, þar sem lengi var samkomu- staður og á tímabili eini kjörstaður Norðmýlinga. Dregið verður úr réttum lausnum og verðlaun veitt. Eyðibýli í fjarðarbotni sögð landnámsjörð Eyvindar sem kom út með Brynjólfi gamla Porgeirs- syni. Þar var fyrrum stórbýli og prestssetur fram undir lok 18. aldar og þar vitnar örnefni ekki langt frá um samskipti klerka og trölla. Þar hafa búið margir merkir menn og er einum þeirra lýst eftir- farandi í þjóðsögum Sigfúsar Sig- fússonar: „Hann var einhver at- kvæðamesti leikmaður eystra á þeirri tíð, gáfumaður mikill, vel að sér, glíminn og rammur að afli, skrautmenni og kallaður yfirgangs- menni“. Bærinn er umgirtur háum fjölium og þar sér ekki sól í rúma fjóra mánuði á ári. Býlið hefur ekki verið í ábúð um árabil íbúðarhús er nýtt sem orlofsheim- ili. Þar voru í gangi óvenjulegar framkvæmdir á árunum 1974-1977 og er mannvirkið í um 630 m hæð yfir sjávarmál. Oft er þar erfitt yfirferðar á vetrum og löngum hafa snjóþyngsli gert vegfarendum erfitt fyrir. Á einmánuði og hörpu er þangað mikið sótt og stunduð þar íþrótt, sem talið er að hafi bor- ist til Norðurlands með norskum manni á síðustu öld. Þar var oft á útmánuðum margt um manninn og einkum sótt til hákarla-, lúðu- og skötuveiða. Lítið er þar um mannaferðir nú á dögum og æðarfuglinn nánast ein- valdur á sjó og landi. Grónar rústir verbúða vitna um horfna mannvist og Ærin, Lambið og Hrúturinn eru enn á sínum stað og bíða karla með krafta í kögglum. Fjall 637 m y.s. skammt frá þjóðvegi í einum mesta fjallgarði Austurlands. Sagnir segja að nafn þess megi rekja til mannvirkis í heiðni. Engu að síður koma þar einnig klukkur við sögu, sem sagt er að hafi verið staðsettar í gjá í fjallinu og hringt fyrir vindi og varið nærliggjandi byggðir fyrir ásókn trölla. Handan hafsins Þægileg fangavist Pablo Escobar heitir rúmlega fertugur maður, borinn og barn- fæddur í Kólumbíu. Heimabær hans heitir Envigado. Escobar þessi er víðfrægur auð- kýfingur sem grætt hefur of fjár á eiturlyfjasölu. Yfirvöld í Kól- umbíu þóttust lengi hafa reynt að góma kauða m.a. fyrir tilmæli Bandaríkjastjórnar sem vildi fá hann framseldan en Bandaríkin lögðu Escobar til markaðinn u.þ.b. 15 milljónir eiturlyfjaneyt- enda. Giltu þar hin gamalkunnu lögmál um framboð og eftirspurn. í júnímánuði síðastliðnum lét ríkisstjórn Kólumbíu þau boð út ganga að eftirlýstir kókaínbarónar yrðu ekki framseldir og fengju auk þess mildari dóma ef þeir gæfu sig fram. Skömmu síðar gekk áður- nefndur Escobar inn á næstu lög- reglustöð og óskaði eftir hand- töku. Sú fróma ósk var uppfyllt. Escobar var komið fyrir í fang- elsi á 2700 m háum fjallstindi fyrir ofan heimabæinn, Envigado. í klefa hans er fyrirferðarmikið rúm og góð aðstaða fyrir Escobar til að baða þybbinn kroppinn. Hann valdi sjálfur húsgögnin og klefafé- lagana ef hægt er að kalla 300 fer- metra byggingu klefa. Sá grunur mun hafa læðst að einstaka manni að „klefafélagarnir" — 6 að tölu — séu fremur í hlutverki lífvarða en fanga enda mun samkeppni í eiturlyfjabransanum vera harðari en gengur og gerist milli olíufélaga á íslandi og Escobar á sér keppi- nauta að ekki sé talað um fjandmenn. Þá er íþróttavöllur og heilsuræktarstöð á fangelsislóð- inni. Forseti Kólumbíu er að vonum harðánægður með þennan feng sinn og segist hafa unnið hreint gríðarlegan sigur í viðureigninni við eiturlyfjakóngana. Þegar for- setinn var spurður hvort aðbún- aður þessa fanga væri ekki óvenju- lega góður svaraði hann því til að aðbúnaðurinn væri hvorki betri né verri en tíðkaðist hjá saka- mönnum af líku tagi í Bandaríkj- unum. (Það er þá kannski ekki að furða að öll fangelsi í Bandaríkj- unum eru yfirfull). Fólkið í Envigado er vel stætt fjárhagslega miðað við það sem gengur og gerist í Kólumbíu. Það á velgengnina fyrst og fremst Escobar að þakka enda hafa Pablo Escobar. margir trúaðir bæjarbúar hengt mynd af honum við hliðina á líkn- 1. Jólatréð má aldrei taka beint inn í stofuhita úr miklu frosti. Ef frost er, þegar taka á tréð inn, þá verður að láta það þiðna hægt og helst í raka, t.d. leggja það í kalt vatn í baðkeri. 2. Eftir að tréð hefur jafnað sig inni og tími er kominn til að setja það í vatnsfót, þarf oft að fjarlægja nokkrar greinar neðst af stofni og snyrta hann. 3. Saga skal um 5 cm sneið neðan af stofninum. Leggið neðstu greinarnar upp með stofninum eski Maríu meyjar og biðja þess að hann verði hið fyrsta laus úr haldi. Margir eru þó þeirrar skoðunar að Escobar þurfi ekki hjálp að ofan eins og allt er í pottinn búið. Fangaverðirnir sem gæta hans eru flestir frá Envigado og skæðar tungur segja að þeir séu ekki þarna til að hindra Escobar í því að sleppa út heldur til þess að koma í veg fyrir að óvinir hans komist inn. Hámarksrefsing fyrir eiturlyfja- misferli í Kólumbíu er 12 ár. Sú refsing styttist um þriðjung gefi menn sig fram eins og Escobar og hún styttist enn ef fangar eru sam- vinnuþýðir og taka þátt í vinnu og námi sem fangelsisstjórnin skipu- leggur. Líkur benda því til að fangavist Escobars geti orðið endaslepp. sh og tyllið bandi utan um þær meðan næsta aðgerð fer fram. 4. Tálgið börkinn af stofninum 10 cm frá stúfnum. Stingið þessum 10 cm stofnsins niður í sjóðandi vatn í um það bil 10 mínútur. 5. Gangið frá trénu strax að suðu lokinni í vatnsfót, sem aldrei má tæmast af vatni. Athugið að vatnsfóturinn má aldrei tæmast, annars geta smá loftbólur komist í vökvaæðar stofnsins og valdið ótímabærum dauða trésins. Gleðileg jól Fangelsið á fjallinu. Með réttri meðferð fellir rauðgrenið ekki barrið um jólin Þverhnípt fjall í sunnanverðum fjórðungi um 537 m y.s. Af nafni þess má draga að þar hafi verið skógarnytjar fyrr á tímum og þar var fyrir 30 árum girt af land með skógrækt í huga. Austan við fjall þetta er heiði samnefnd afréttar- landi sem tilheyrir Skagafjarðar- sýslu. Örnefni þetta á Suðausturlandi er náttúrunafn og minnir á umsögn um Framsóknarflokkinn sem orðið hefur býsna lífseig. Á þessum slóðum er að finna stærsta berg- hleif úr djúpbergi sem þekktur er hérlendis. Sagt er að þarna sé snjóflóða- og skriðuhætt og aldrei mun þar hafa risið byggð. Stöðuvatn í óbyggðum með heldur óhugnanlegu nafni og eru þjóðsagnir um tilurð þess nokkuð mismunandi og einar þrjár þekkt- ar. Sagnir eru um að stunduð hafi verið veiði í vatninu, en í því er hólmi þar sem á að hafa verið veiðiskáli. Upp úr miðri 19. öld fundust mannabein skammt frá vatninu og var talið að þau væru af sakamanni sem sloppið hafði úr varðhaldi fyrr á öldinni. Stuttur fjörður, inn af honum töluvert undirlendi, grösugt, sem klofnar í tvo dali. Þar er að finna náttúrufræðiminjar frá fornsögu- legum tíma og hefur m.a. verið rætt um, að hefja þar nám á jarð- efnum. Fjölmenn byggð var í f. fram á þessa öld, en engin föst búseta er þar nú, en hlunnindi nytjuð að hluta. Á sjöunda áratugnum var þetta mannvirki byggt og gefið nafn, sem sótt er í norræna goðafræði. Þarna er gjarnan uppi gleðskapur í vikulokin og í grennd tefla hrossa- bændur fram gæðingum á þingum sínum. Víðsýnt er þarna og gefur að líta formfögur fjöll. Þegar Jónas Hallgrímsson var að vinna að íslandslýsingu sinni dvaldi hann á nálægu prestssetri og kannski hefur kvæði hans um Tíkar-Manga orðið til á gönguferð þeirra félaga um þessar slóðir. Þar gefur nú að líta grónar rústir á bakka stöðuvatns og oft reisa ferðamenn þar tjöld sín, enda náttúrufegurð mikil. Býlið var byggt upp á 19. öld og var búið þar um 80 ára skeið. Þó afskekkt væri var það í þjóðbraut á fjölfarinni leið milli landsfjórðunga, en býsna snjóþungt mun þar vera á vetrum en góðir sumarhagar og silungs- veiði hvöttu til búsetu. EFST Á BAUGI: ISLENSKA. ALFRÆDÍ 0RDABÖKIN Jól: fæðingarhátíð Jesú, 25. des.; upphafl. heiðin hátíð um vetrarsólhvörf til dýrðar frjó- semisguðum. Við lögfestingu kristins siðar var jóladagurinn settur 25. des. og var hann tal- inn nýársdagur til loka 16. aldar. jólatré: skreytt og ljósum prýtt barrtré, sett upp á jólum; veiga- mikill þáttur í jólahaldi Vestur- landabúa; upphafl. þýskur siður og eru elstu heimildir um j frá S- Þýskal. á 16. öld. Norðurlanda- búar fóru að setja upp j um 1800, siðurinn barst til ísl. um 1850 en varð ekki almennur fyrr en eftir 1900. Erfitt var að útvega barrtré á Isl. og því voru j smíðuð úr viði og skreytt með sortulyngi, beitilyngi eða eini. Innflutt barrtrc urðu almenn á fsl. eftir 1940. Grýla: óvættur í ísl. þjóðtrú; af tröllaætt og m.a. nefnd meðal tröllkvenna í Snorra-Eddu; á margar hliðstæður í þjóðtrú víða um Evr. Margar sögur fara af útliti G en öllum ber saman um að hún sé ferleg ásýndum, m.a. sögð hafa 15 hala, þrjá eða 300 hausa og þrenn augu í hverju höfði; sögð éta menn, einkum óþekk börn. G var áður fyrr notuð til að hræða börn. Á 17. öld er hún fyrst tengd jólum og sögð koma og setja í pokann sinn þau börn sem höfðu verið óþekk á liðnu ári. Fjölmörg kvæði og þulur eru til um G. Hún er þrígift og á mörg börn en þeirra þekktust eru jólasvein- arnir. Af þremur eiginmönnum G er sá síðasti, Leppalúði, kunnastur. Leppalúði: persóna í ísl. þjóð- sögum; stór, ljótur og loðinn tröllkarl, yfirleitt talinn þriðji eiginmaður Grýlu. Þau áttu 20 börn saman og meðal þeirra eru stundum taldir jólasveinarnir. Auk þess átti L holukrakka sem hét Skröggur. jólasveinar: vættir sem tengjast jólum í ísl þjóðtrú; fyrst getið í rituðum heimildum á 17. öld og þá taldi tröll og barnafælur, synir Grýlu og Leppalúða. Á 19. öld voru j ýmist taldir níu eða þrettán, illviljaðir, hrekkjóttir og þjófóttir; sagðir stórir, ljótir og luralegir í vexti, klæddir röndóttum fötum með gráa húfu á höfði og gráan poka á baki. Til eru mörg jólasveinanöfn frá 19. öld en þekktust eru Stekkja- staur, Giljagaur, Stúfur, Þvöru- sleikir, Pottasleikir, Askasleikir, Faldafeykir, Skyrgámur, Bjúgnakrœkir, Gluggagœgir, Gáttaþefur, Ketkrókur og Kerta- sníkir. Um aldamótin 1900 ímyndaði fólk sér j í gömlum ísl. bændafötum en á 20. öld fengu þeir æ meiri svip af °°Nikulási og tóku um leið að færa börnum gjafir. Þrátt fyrir breytt útlit og hlutverk hafa ísl. j haldið tölu sinni og nöfnum. jólakötturinn: köttur í ísl. þjóð- sögum, tengdur jólum; fyrst getið í munnmælum á s.hl. 19. aldar. Sagt er að þeir sem ekki fái nýja flík á jólum fari í j eða klæði hann. Hugmyndin um j virðist hafa borist til ísl. frá Nor- egi en þar óttast menn jólageit- ina ef þeir fá ekki nýja flík; gæti þó verið miklu eldra því fjand- inn gat m.a. birst í kattarlíki.

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.