Austri - 10.06.1993, Blaðsíða 2
2
AUSTRI
Egilsstöðum, 10. júní 1993.
Útgefandi: Kjördæmissamband framsóknarmanna á Austurlandi.
Skrifstofa Austra Lyngási 12, 700 Egilsstaðir,
pósthólf 173, sími 97-11984, fax 97-12284.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Kristjánsson.
Útgáfustjóri: Sólveig Dagmar Bergsteinsdóttir.
Blaðamenn: Arndís Þorvaldsdóttir og Marinó Marinósson.
Auglýsingar: Sími 97-11984, Sigrún Lárusdóttir.
Áskrift: Sími 97-11984, Svanfriður Kristjánsdóttir.
Áskrift kr. 95 pr. blað. Lausasöluverð kr. 120.-
Prentun: Héraðsprent sf. Egilsstöðum.
Austri kemur út á fimmtudögum.
Aðsent efni þarf að hafa borist fyrir kl. 10:00 föstudaga.
Austri er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða.
Póstur
sími
Póstur og sími er það fyrirtæki landsmanna sem
hver og einn hefur mjög mikil samskipti við. Miklar
framfarir hafa orðið í símamálum á grundvelli nýrrar
tækni. Landsmenn hafa mikil not af þjónustu símans
og á margan hátt hefur hún verið til fyrirmyndar.
Ljósleiðarinn, sem hefur verið lagður um land allt á
undanförnum árum, hefur valdið byltingarkenndum
breytingum.
Þetta kemur ekki eingöngu fram í betri og breyttri
þjónustu heldur opnast jafnframt ýmsir möguleikar
til hagræðingar í rekstri. Minna máli skiptir hvar
starfsmenn eru staðsettir eftir að öryggi í fjarskiptum
hefur gjörbreyst. Á sama hátt gefa bættir fjarskipta-
möguleikar mikla möguleika til að reka margvíslega
starfsemi í fámennari byggðarlögum. Landfræðileg
einangrun hefur ekki lengur áhrif á möguleika til
samskipta.
Menn hrökkva hins vegar við þegar stefna Pósts og
síma í hagræðingarmálum birtist í framkvæmd.
Þjónusta, sem hefur verið veitt úti um landsbyggðina
um áratuga skeið, er flutt til Reykjavíkur og störf úti
um land lögð niður. Nú nýlega hefur verið ákveðið
að leggja niður þjónustu ritsímans á Seyðisfirði og
flytja hana til Reykjavíkur. Margir höfðu vonast til
að með vaxandi möguleikum á tæknisviðinu yrði
það stefna Póst og síma að flytja hluta af starfsem-
inni út á land og styrkja með því grundvöll byggðar-
innar.
Hagræðing, sem gengur fyrst og fremst út á að
þjappa starfseminni saman í Reykjavík, er andstæð
þeim markmiðum sem margir stjórnmálaflokkar
hafa sett fram um að flytja meira af þjónustustörfum
ríkisins út á land. Póstur og sími getur, ef vilji er
fyrir hendi, flutt hluta af starfseminni í Reykjavík til
annarra staða á landinu, þar með talið Seyðisfjarðar.
Það hefði verið eðlilegt að styrkja starfsemina á
Seyðisfirði en ekki að leggja hana niður.
I ljósi þessarar reynslu verður að skoða einkavæð-
ingarform Póst og síma. Ef einkavæðingin á að
ganga út á það að fækka störfum stofnunarinnar úti
um land og fjölga þeim í Reykjavík í nafni hagræð-
ingar getur vart orðið friður um það. Stórt fyrirtæki
eins og Póstur og sími verður jafnframt að taka tillit
til þess hvað er þjóðhagslega hagkvæmt og starfa í
sátt við landsfjórðungana.
Austfirðingar geta ekki sætt sig við það að starf-
semin á Seyðisfirði sé nánast lögð niður. Þvert á
móti er það krafan að fleiri störf stofnunarinnar
verði flutt út á land enda hafa breytingar á tækni-
sviðinu gert það mjög auðvelt. H.Á.
Egilsstaðir:
Olöf Blöndal með mál-
verkasýningu
Þann 24. maí síðastliðinn opnaði
Ólöf Birna Blöndal málverkasýn-
ingu í húsnæði Ríkisútvarpsins að
Miðvangi 2 -4 á Egilsstöðum. Þetta
er 3. einkasýning Ólafar en hún
hefur einnig tekið þátt í samsýning-
um í Reykjavík, Akureyri, Egils-
stöðum og á Seyðisfirði. Myndimar
eru 12 að tölu og eru frá Héraði og
Seyðisfirði. Þær eru unnar með ol-
íukrít á litaðan pappír. Sýningin er
opin á vinnutíma alla virka daga
og stendur út júlí.
ÓlöfBirna Blöndal.
Fljótsdalshérað:
Hjóladagur fjöl-
skyldunnar
Á Héraði er nú í gangi herferð í
því skyni að bæta hjólreiðamenn-
ingu íbúanna undir yfirskriftinni
“Gerum Fljótsdalshérað að fyrir-
myndar hjólreiðahéraði”. Næst-
komandi laugardag verður haldinn
hjóladagur fjölskyldunnar á Egils-
stöðum. Dagskráin hefst klukkan
13:00 úti á Egilsstaðaflugvelli þar
sem farið verður í leiki og þrautir.
Ennfremur verður lögreglan með
hjólaskoðun og seldir verða 100
reiðhjólahjálmar á 500 kr stykkið,
en þess má geta að á hjólamarkaði
um síðustu helgi seldust 100 hjáim-
ar á sama verði upp á tæpum hálf-
tíma. Hjóladeginum lýkur á úti-
vistarsvæðinu í Egilsstaðaskógi en
þangað verður hjólað klukkan
15:00, farið í leiki og endað með
grillveislu í boði þeirra aðila sem
að átakinu standa. AÞ
Skagfirskir
látúnsbarkar
á
ferðinni
Karlakórinn Heimir í Skagafirði
verður á söngferðalagi á Austur-
landi um næstu helgi.
Kórinn verður með tónleika í
Stöðvarfjarðarkirkju á föstudags-
kvöld, í Herðubreið, Seyðisfirði á
laugardag og í Egilsstaðakirkju
laugardagskvöld.
Undirleikarar eru þeir Tomas Hig-
gerson, píanó og Jón St. Gíslason,
harmonikka. Einsöngvarar eru Ein-
ar Halldórsson, Gísli Pétursson,
Pétur Pétursson og Sigfús Péturs-
son. Efnisskráin verður mjög fjöl-
breytt undir stjóm söngstjórans
Sólveigar S. Einarsdóttur.
Með þessu söngferðalagi er kórinn
að ljúka vetrar og vorstarfinu en
hann hefur haldið 10 tónleika frá
áramótum víðsvegar um Norður-
land. Söngfélagar í vetur hafa verið
Munaðar-
hóllá
tímamótum
Veitingastaðurinn Munaðarhóll á
1 árs afmæli laugardaginn 12.júní
nk. Af því tilefni verður tilboð á
þríréttuðum matseðli. Einnig verð-
ur sú nýbreytni tekin upp að bjóða
uppá súpu og rétt dagsins frá kl.
11:30-14:00. Auk þess er í boði
kaffi og smáréttaseðill alla daga.
Nýr kokkur Hallgrímur Jónsson
verður á Munaðarhólnum í sumar
og kemur hann frá Veitingahúsinu
Argentínu. Sú breytta stefna er nú á
Munaðarhóli að fækka dansleikjum
°g leggja meiri áherslu á létta pía-
nótónlist. Einnig verður boðið uppá
þægilega dinnertónlist sem Ámi Is-
leifs mun sjá um.
56. Hljómplatan, geisladiskurinn
og snældan “Undir Bláhimni”
verða til sölu á tónleikunum.
Fréttatilkynning.
0 0
1 1 1 1 i 1 i 1 1 Karlakórinn Heimir syngur íStöðvarfjarðarkirkju föstudaginn ll.júníkl. 21.00 í félagsheimilinu Herðubreið, Seyðisfirði laugardaginn 12. júnikl. 16.00 og í Egilsstaðakirkju laugardaginn 12. júní kl. 21.00. Söngstjóri er Sólveig S. Einarsdóttir, undirleikarar Tómas Higgerson og Jón St. Gíslason. Mjögfjölbreytt dagskrá. 1 i i 1 i 1 i 1 1
0 MSM0J0M0ISMSM0MSM5MaMiMa0MaMSMSM0M 0
Reyðarfjörður:
Tveir menn
heiðraðir
fyrir björg-
unarafrek
Á Sjómannadaginn voru þeir
Gunnar Hjaltason og Jón Ómar
Halldórsson heiðraðir af Slysa-
vamarfélaginu Ásól fyrir björg-
unarafrek sem þeir unnu á síð-
asta ári. Jón Ómar bjargaði
stúlku út úr bíl sem hafði oltið
út í sjó rétt við heimili hans 8.
mars á síðasta ári.
Þann 28. september bjargaði
Gunnar Víði Péturssyni trillu-
sjómanni út við Skrúð er trillan,
sem Víðir var á, sökk skyndi-
lega. Ekki mátti tæpara standa
því slysið gerðist mjög snöggt.
MM
RAYNOR
hágæða amerískar iðnaðar-
og bílskúrshurðir
MARMOROC
utanhússklæðning - yfjr 13
ára reynsla á íslandi
ÞAK- OG VEGGSTÁL
úrval þak- og veggefna,
frábært verð, fjöldi lita
VERKVER
Skúlagotu 61 a
Sími 621244/fax 629560