Austri


Austri - 10.06.1993, Qupperneq 4

Austri - 10.06.1993, Qupperneq 4
 4 AUSTRI Egilsstöðum, 10. júní 1993. Austraspurning Spurt að lokinni skákviku. Hvernig var að vera í skák- skóla? Einar Jónsson, 13 ára, Skriðdal. Mér fannst það mjög gaman. ívar Vilhjálmsson, 10 ára, Eski- firði. Það var mjög gaman og mér fannst ég læra heilmikið. Sigurjón Gísli Jónsson, 13 ára, Neskaupstað. Gaman, svo held ég áfram að tefla þegar ég kem heim. Benedikt Sigurjónsson, 9 ára, Húsavík. Bara gaman, sérstaklega að máta stóru strákana. Sveinbjörn Gunnlaugsson, 9 ára, Húsavík. Mjög gaman, mér finnst skemmtilegt að tefla. Björgvin Gunnarsson, 13 ára, Fellabæ. Það hefur verið ágætt, við höfum verið héma allan tímann og haft það mjög skemmtilegt. Hallormsstaður: Lísbet og Skúli sýna í Laufinu Listsýning stendur nú yfir í söluskálanum Laufinu á Hallorms- stað en þar sýnir Elísabet Þorsteins- dóttir pastelmyndir og blýants- teikningar og Skúli Gunnarsson ljósmyndir. Bæði eru þau áhuga- fólk í listinni. Þetta er fyrsta sýning Elísabetar en myndir hennar hafa farið víða þar sem hún hefur teikn- að myndir í bækur sem stúdentsefni við Menntaskólann á Egilsstöðum, MR og fleiri skóla í Reykjavík, hafa gefið út. Skúli hefur haft ljós- myndun að áhugamáli lengi og hef- ur haldið sýningar á verkum sínum á Sauðárkróki og Blönduósi. Mynd- ir hans eru svarthvítar og mynd- efnið gjarnan sótt út í náttúmna. Oákveðið er hvað sýningin verður lengi uppi. Elísabet Þorsteinsdóttir og Skúli Gunnarsson. Austramynd: AÞ VEIÐIMENN ATHUGIÐ! N Úrval nýrra og notaöra skotvopna á ótrúlega góðu veröi TIL D/€MIS: Sako Heavy Barrel nýr verð 80.000,- Rem 870 haglab. 3" mag. verð 40.395.- Rem 11-87 Semi auto 3" mag verð 80.676,- Rem 1100 Semi auto Special Field verð 74.512,- Marocchi undir/yfir tvíhleypa verð 44.321.- Baikal undir/yfir tvíhleypa verð 35.640.- CBC einhleypa 3" mag. verð 11.478,- VEIÐIKOFINN Selási 20 kjallara Egilsstöðum OPIÐ frá kl. 20-22 mánudaga - miðvikudaga - föstudaga og frá 10-14 laugardaga. <D 11437 hs. 11457 Fax 11597 J Skot frá Hlað, Remington, Federal, Sako, Game-Bore og Eley. Einnig leirdúfur og flest til veiða. GERIÐ VERÐSAMANBURÐ ÓDÝRT HÁDEGI í sumar bjóöum við ódýran hádegisverö alla daga, verö frá kr. 750.- Alla fimmtudaga PASTAHLAÐBORÐ og BLANDAÐ HLAÐBORÐ á föstudögum, verö 950.- HOTEL VALASKJÁLF Egilsstöðum © 97-11500 Umsjón : Amdís Þorvaldsdóttir Eg skal kveða við þig vel Ágætu lesendur! Að þessu sinni hef ég tínt til í þáttinn nokkrar vísur eftir Aust- firðinga. Heimamenn verða þó ekki einráðir, því einnig verður leitað á fjarlægari mið. Jónína Þórðardóttir frá Fáskrúðsfirði heilsaði einhverntíman tannlækni sem hún gekk til á eftirfarandi hátt: Þó ég gangi frjáls og frí fjarri sorg og pínum kem ég enn með kjaftinn í kápuvasa mínum. Um “gráa fiðringinn” hafði Jón Björnsson frá Berunesi þetta að segja: Ennþá hugann seiðir sex þá svanna augun skína. En eftir því sem aldur vex - athafnimar dvína. Vísur Lúðvíks Kemp hafa flogið víða og iöngum þótt smellinn en á köflum dálítið blautlegur kveð- skapur og því ekki alltaf talinn prenthæfur. Um að halda boðorð- in segir Lúðvík: Listisemda lífsins njótum liðna tíma er vert að muna. Þó við stöku boðorð brjótum í bróðemi við samviskuna. Systurnar Arnheiður og Hallveig Guðjónsdætur frá Heiðarseli á Jökuldal eru báðar dável hag- mæltar. I garð þeirra sem minna mega sín yrkir Amheiður: Daprast hugur hryggist geð harmsins örvar stinga. Þegar léttúð leikur með lífsins einstæðinga. Og Hallveig yrkir: Eg er bara eins og sprek eld frá skari hrykki. Er að fara allt mitt þrek og engin varastykki. Þá er að leita fanga í öðmm landsfjórðungum. Þættir Baldurs Hermannssonar hafa vakið mikið umtal. Kristján Ámason, bóndi á Kistufelli í Lundarreykjadal get- ur ekki orða bundist og sendir Baldri eftirfarandi kveðju sem hann nefnir “Olnbogabam fortíð- ar”: Baidur Hermannsson sté í stól stórvirki hugðist vinna svarta messu þar gaurinn gól um grimmdarverk feðra sinna. Þó að harðlíft með honum sé hátt í túðunni lætur hrörnar fljótt það holaða tré sem hatast við eigin rætur. Meira verður ekki kveðið að sinni. AÞ Askriftasími AUSTRA er 97-11984 HEITI: ICEFOX Dekkjastœrö: 26". Gírafjöldi: MT-200 GS 21 gíra. Verð: 31.363.- Staðgr. 29.795.- Elgum mikiö úrval af Þríhjól hr. & kv. Staðgr. verð frá kr. 2.822,- til 3.027,- reiðhjóla- hjálmum. Sendum ípóstkröfu Smiðjuvegi 4 200 Kópavogur © 91-689699

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.