Austri


Austri - 07.10.1993, Síða 2

Austri - 07.10.1993, Síða 2
2 AUSTRI Egilsstöðum, 7. október 1993. Útgefandi: Kjördæmissamband framsóknarmanna á Austurlandí. Skrifstofa Austra Lyngási 12, 700 Egílsstaðir, pósthólf 173, sími 97-11984, fax 97-12284. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Kristjánsson. Útgáfustjóri: Sólveig Dagmar Bergsteinsdóttir. Blaðamenn: Arndís Þorvaldsdóttir og Marinó Marinósson. Auglýsingar: Sími 97-11984, Sigrún Lárusdóttir. Áskrift: Sími 97-11984, Sólveig Dagmar Bergsteinsdóttir. Áskrift kr. 95 pr. blað. Lausasöluverð kr. 120.- Prentun: Héraðsprent sf. Egilsstöðum. Austri kemur út á fímmtudögum. Aðsent efni þarf að hafa borist fyrir kl. 10:00 föstudaga. Efni skal skila á diskum eða vélrítuðu. Austri er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Ræktunarstarf Um þessar mundir eru liðin 90 ár frá því að skipuleg skógrækt hófst á Austurlandi með starfsemi gróðrar- stöðvar Skógræktarinnar á Hallormsstað. Þessara tíma- móta var minnst með myndarlegum hætti á Hallorms- stað síðastliðinn laugardag. Mikil hugarfarsbreyting hefur orðið hérlendis í af- stöðu almennings til skógræktar. Jákvæð viðhorf hafa komið í stað afskiptaleysis eða beinnar andstöðu. Ahugi á skógrækt í hverri mynd sem hún birtist hefur vaxið með hverju árinu sem líður. Starfsemi gróðrarstöðvanna á ekki síst þátt í þessu, þar sem fagleg vinnubrögð hafa verið í fyriiTÚmi. Þær hafa stutt þrotlaust starf áhugamanna á þessu sviði, en skógræktin hefur alltaf hlotið fulltingi hugsjónamanna. Skógur er ekki sjálfsagt mál, allra síst á Islandi. Is- lendingasögur segja að landið hafi allt verið skógi vax- ið milli fjalls og fjöru, en þúsund ára byggð í landinu hefur leikið skóglendið illa eins og víðar. Gamlar myndir frá Hallormsstað sýna að sá vöxtulegi skógur sem þar en nú, var eitt sinn kjarrlendi. Starfsemi gróðr- arstöðvanna var upphaf skipulegra vinnubragða á sviði skógræktar, hún var einnig upphaf landnáms innfluttra trjátegunda hérlendis. A Fljótsdalshéraði er skógrækt orðin atvinnugrein sem skiptir máli. Miklu varðar að henni verði sköpuð þau skilyrði áfram, að hún geti vaxið og dafnað, og á það bæði við um starfsemi Héraðsskóga og Skógrækt- arinnar á Hallormsstað. Starf gróðrarstöðvarinnar á Hallormsstað sannaði það að skógrækt á framtíð fyrir sér hérlendis. Til þess að sannfærast um það þarf ekki annað en að ganga í það mikla skóglendi á Fljótsdals- héraði sem var ekki til fyrir tveimur áratugum. Samvinna bænda og skógræktarmanna hefur verið með miklum ágætum á Austurlandi, og fjölmargir hafa gert samninga um að taka hluta af landi sínu til skóg- ræktar. Þetta er gert í trausti þess að þessi starfsemi haldi áfram og henni verði skapaður fjárhagslegur grundvöllur, því að tekjur skila sér ekki af skógræktinni fyrr en eftir langan tíma. Menningarlegt gildi skógræktar er afar mikið, og var það rakið í ágætu erindi Sigurðar Blöndal á afmælishá- tíðinni á Hallormsstað síðastliðinn laugardag. Umhverfi í þéttbýli hefur tekið miklum stakkaskiptum með þeim aukna áhuga sem er á skógrækt hjá öllum þorra lands- manna. Bylting hefur orðið hér á Austurlandi í þéttbýli til sjós og lands, og áhugamenn um skógrækt hafa víða lyft grettistaki í því að bæta og fegra umhverfið. Skógrækt var hafin til vegs og virðingar í hugsjónum aldamótamannanna, og þá hugsjón þarf að bera fram til nýrrar aldar. Það er skylda þeirra sem nú ráða málum. J.K. í 90 ár Körfu- bolta- vertíðin að hefjast Um næstu helgi hefst körfu- knattleikstímabilið hjá Hetti með tveimur heimaleikjum á laugardag og sunnudag. Hattar- menn horfa með bjartsýni til komandi keppnistímabils. Liðið hefur styrkst verulega frá í fyrra með tilkomu nýrra leikmanna og nýs þjálfara. Til liðs við Hött hafa gengið tveir leikmenn sem áður léku með úrvalsdeildarliði Tindastóls á Sauðárkróki. Einnig hafa fleiri heimamenn gengið til liðs við körfuknatt- leiksdeíld Hattar þó kjami liðs- ins sé sá sami og undanfarin ár. Einnig hefur Höttur fengið til liðs við sig grískan þjálfara Nick Pashalis að nafni. Nick er mjög reyndur og hæfur þjálfari og mun hann sjá um þjálfun allra flokka Hattar í körfuknattleik í vetur. Fyrir skömmu lék liðið tvo æfingaleiki í Reykjavík. And- stæðingamir voru ekki af verri endanum, Valur og KR, en þessi lið kepptu einmitt til úrslita um Reykjavíkurbikarinn um síðustu helgi. Höttur tapaði báðum leikjunum naurnt og sýnir sú frammistaða að liðið er til alls líklegt í vetur því þetta eru fima- sterk lið. Eins og á síðasta ári verður 1. deildin riðlaskipt í vetur og er leikin fjórföld umferð innan rið- ils en tvöföld umferð við liðin í hinum riðlinum. Með Hetti í riðli eru IR, Leiknir og Reynir Sandgerði en í hinum riðlinum eru Léttir, Þór Akureyri, Breiða- blik og íþróttafélag stúdenta. Alls verða leiknir 20 leikir á keppnistímabilinu. Fyrstu leikir Hattar verða hér á Egilsstöðum um næstu helgi en þá kemur Leiknir í heimsókn en það er nýtt lið í deildinni og er Torfi Magnússon landsliðs- þjálfari leikmaður og þjálfari með liðinu. BS. Eskifjörður: Gömlu fötin hennar ömmu Á laugardaginn kemur verður mikið húllum hæ í Valhöll, Eski- firði, en þá ætla allir saumaklúbb- ar á Austurlandi að koma saman og borða góðan mat og skemmta sér. Að þessu sinni stendur saumaklúbburinn Sæmundur á Eskifirði fyrir skemmtuninni en í fyrra var haldin samskonar skemmtun á Reyðarfirði og var á- kveðið í framhaldi af því að end- urtaka leikinn að ári. Bergleif Joensen sem sér um rekstur Val- hallar, tjáði blaðamanni Austra að mikið væri spurt um skemmtunina og stefndi í góða þátttöku allsstað- ar að. Oprúttnir náungar á ferð Fyrir skömmu sá blaðamaður að búið var að skjóta þremur skotum í gegnum vegvísi sem er staðsettur fyrir ofan Egilsstaðabæ við vega- mót þegar ýmist er farið til Seyðis- fjarðar, Egilsstaða eða á Reyðar- fjörð. Má glögglega sjá að skotið hefur verið í áttina að Egilsstaða- bæ. Því miður er slíkt ekki ný- mæli, en í þessu tilfelli má sjá hversu stórhættulegt þetta hefur verið. Ekki veit blaðamaður hvenær þetta gerðist en það skiptir ekki máli. Svona atvik sýnir hversu hættuleg skotvopn geta verið, séu þau í röngum höndum. MM ▲ 8 1 ! 1 fafl t9lt**t*8lr Ibúum Egilsstaða hefur stafað mikil hœtta af, þegar skotið var á merkið. Annað merki ofar er líka sundurskotið og sér til íbúðarhúsa frá því líka. Umdæmanefnd Austurlands: Fundardagar kynningafunda Umdæmanefndar Austurlands 23/10 - 2/11 1993: Umdæmanefnd Austurlands mun halda kynningarfundi fyrir íbúa allra byggöarlaga á Austurlandi, sem kjósa eiga um tillögur vegna sameiningar sveitarfélaga 20. nóvember 1993. Fundirnir verða sem hér segir: Fundarst. Sveitarfélag 1. Skeggjastaðahr. 2. Vopnafjarðarhr. 3. Hlíðarhreppur 4. jökuldalshr. 5. Tunguhreppur 6. Fljótsdalshr. 7. Vallahreppur 8. Skriðdalshr. 9. Fellahreppur 10. Egilsstaðabær 11. Eiðahreppur 12. Hjaltastaðarhr. 13. Borgarfjarðarhr. 14. Seyðisfjörður 15. Mjóafjarðarhr. 16. Neskaupstaður 17. Norðfjarðarhr. 18. Eskifjörður 19. Reyðarfjarðarhr. 20. Fáskrúðsfj.hr. 21. Búðahreppur 22. Stöðvarhreppur 23. Breiðdalshr. 24. Bæjarhreppur 25. Nesjahreppur 26. Höfn 27. Mýrahreppur 28. Borgarhafnarhr. 29. Hofshreppur Grunnskólinn Mikligaður Hálsakot Skjöldólfsstaðir Tungubúð Végarður Iðavellir Arnhólsstaðir Grunnskólinn Valaskjálf Grunnskólinn Hjaltalundur Fjarðarborg Herðubreið Sólbrekka Egilsbúð Grunnsk. Kirkjumel Valhöll Félagslundur Grunnsk. Búðum Skrúður Samkomuhús Grunnskolinn Skólahús v/Stafafell Mánagarður Sindrabær Grunnskólinn Hrollaugsstaðir Hofgarður Dagur Klukkan Fi. 28/10 20:00 Fö. 29/10 20:00 Su. 31/10 13:00 Su. 31/10 17:00 La. 30/10 20:00 Má. I/II 20:00 Su. 31/10 20:00 Fö. 29/10 20:00 La. 30/10 16:00 Þr. 26/10 20:00 Má. I/II 20:00 Su. 31/10 20:00 La. 23/10 20:00 Mi. 27/10 20:00 La. 23/10 13:00 Su. 24/10 20:00 Su. 24/10 15:00 La. 30/10 15:00 Mi. 27/10 20:00 Mi. 27/10 20:00 Þr. 2/11 20:00 Má. 25/10 20:00 Má. 25/10 20:00 Su. 24/10 15:00 Þr. 26/10 20:00 Mi. 27/10 20:00 Su. 24/10 20:30 La. 23/10 20:30 La. 23/10 15:00 Áskilinn er réttur til að breyta fundadögum eða tímasetningum fundanna ef óviðráðanlegar aðstæður kaila á slíkar breytingar. Fyrir hönd Umdæmanefndar Austurlands. Stöðvarfirði 4. okt. 1993, Björn Hafþór Guðmundsson.

x

Austri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.