Austri


Austri - 07.10.1993, Side 6

Austri - 07.10.1993, Side 6
6 AUSTRI Egilsstöðum, 7. október 1993. Sameining sveitarfélaga -Undirbúningi stórlega ábótavant Slöngur - Barkar - Tengi Söluaðilar á Austurlandi Cch LANDVÉLAR HF Bílar og Vélar, Vopnafirði Síldarvinnslan Neskaupstað SMIÐJUVEGI 66, KÓPAVOGI Björn og Kristján, Reyðarfirði SÍMI 91-76600 Um sameiningu sveitarfélaga: Hvar eru austfirskir pennar? Ert þú hlynntur eða andvígur sameiningu sveitarfélaga? Tekjustofna sveitarfélaga jafn réttháa tekjustofnum ríkisins Nokkur umræða hefur orðið um sameiningu sveitarfélaga upp á síðkastið, aðallega hefur sú um- ræða þó verið á vettvangi embætt- ismanna og stjómmálamanna. Það athyglisverða við þessa umræðu er innihaldsleysi umræðunnar. Nýlega var dreift bæklingi frá samráðs- fundi um sameiningu sveitarfélaga sem ætlað er það hlutverk að hvetja menn til að greiða atkvæði um mótun síns samfélags. Erfitt er að sjá tilgang með útgáfu bæklingsins annan en þann að tilkynna að sam- ráðsnefndin sé til og koma á fram- færi auglýsingu um kjördag. Þá er og látið að því liggja að meðal að- alatriða í sameiningarumræðunni sé hvað sveitarstjómarmenn verði margir og hvað króinn eigi að heita eftir sameiningu. Ég sakna upplýs- inga um það hvort frumvarp um breytingar á stjómarskrá lýðveldis- ins, um að gera tekjustofna sveitar- félaga jafn réttháa tekjustofnum ríkisins, verði lagt fram. Þeim er vorkunn sem hafa verið valdir í nefndir til þess að gera tillögur um breytta stjómskipan landsins því stjómvöld vantar vilja til að breyta stjómkerfinu svo réttlæti, skilvirkni og eða jöfnuður aukist ásamt tiltrú almennings á stjórnvöldum. Jafna atkvæðisréttinn og gjör- breyta stjórnskipan ríkisins Við hverjar alþingiskosningar vaknar upp umræða um mismun- andi vægi atkvæða og er það engin furða þegar atkvæði Vestfirðinga hafa margfalt, nærri fjórfalt meira vægi en atkvæði þeirra sem óhag- stæðast vægi hafa, þetta er gjaman réttlætt með því að á landsbyggð- inni sé erfiðara að hafa áhrif á stjómsýsluna, en það er málinu ó- viðkomandi. Við sem búum á strjálbýlli hlutum landsins verðum að skilja að við getum ekki krafist óréttlátra kosningareglna í sárabæt- ur því að óréttlætið bitnar líka á al- menningi á suðvesturlandi. Það er staðföst trú mín að jafna eigi at- kvæðisréttinn og reyndar gjör- breyta stjómskipan ríkisins. Ekki má þó grípa til gamalkunnra ráða eins og þeirra að fjölga þingmönn- um til að ná jafnræði í þingmanna- tölu kjördæmanna. Þingmönnum á að fækka um leið og kjör þeirra yrðu bætt og liggur því beinast við að fækka þingmönnum í fámenn- ustu kjördæmunum. Þá er um leið nauðsynlegt að efla svo nýtt stjóm- sýslustig að það geti tekið við megninu af þeirri þjónustu sem rík- ið nú veitir í húsnæðismálum, sam- göngumálum, umhverfismálum, heilbrigðismálum og skólamálum. Ríkistofnanir eins og Fasteignamat, Brunamálastofnun, Húsnæðisstofn- un og Byggðastofnun verði lagðar niður í núverandi mynd og málefn- um þeirra komið fyrir í nýju stjóm- sýslustigi sem annað hvort verði stóreflt sveitastjómarstig, þar sem lágmarks íbúatala yrði miðuð við að minnsta sveitarfélagið verði aldrei minna en sem nemur tíunda hluta þess stærsta eða stofnað verði til þriðja stjómsýslustigsins, en víð- ast í Evrópu eru stjómsýslustigin þrjú og hefur það gefist vel, en það segir ekki að við þurfum að hafa þau þrjú ef við getum fundið aðrar aðferðir sem duga jafn vel eða bet- ur. Spumingar sem mig og marga aðra vantar að fá svör við eru um aðalatriði sem nú brenna á almenn- ingi þegar landsstjórnin virðist ráð- villt og rúin trausti nagandi rotvarin kalkúnabein. Sömu annmarkar munu koma í veg fyrir verkefnaflutning Gagnstætt því sem stendur á for- síðu snepilsins sem samráðsnefndin lét útbúa er mér eða öðrum ekki gefinn kostur á að segja álit sitt á neinum tillögum á kjörstað 20. nóvember næstkomandi nema þá þeim að strika út línur á landakorti og þá kannski bara af því að það er svo langt síðan þær vom dregnar og mér er meira að segja leyfilegt að kenna mig við Súðavíkurhrepp eftir að búið er að leggja hann nið- ur. Er þörf að stækka öll sveitarfé- lög á landsbyggðinni eða verður því með réttu haldið fram að lítið sé verra en stórt án þess að rök- styðja það frekar, sem reyndar verður erfitt, því svo dæmi sé tekið þá geta Súðvíkingar leyst sín sorp- mál einir sér ódýrar en reynslan sýnir, að sum stærri sveitarfélög geta gert. Skólahald verður ekki ó- dýrara í Súðavík við það að sam- einast og líklega tekst Súðvíking- um að afla neysluvatns fyrir plássið með minni kostnaði og minna brambolti en sumum stærri sveitar- félögum. Þannig getur minni eining sýnt hagkvæmni fram yfir þá stóru þó því verði heldur ekki á móti mælt að til að sveitarfélögin verði í stakk búin til að taka við megninu af þjónustu ríkisins þá þarf að stækka þau og efla, en tillögur sem sveitarfélaganefnd lét frá sér fara eru of mótsagnakenndar til að nokkur maður sem lagt hefur sig niður við að hugsa um þessi mál taki þær alvarlega hvað varðar breytta verkaskiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga eða eflingu sveit- arstjórnarstigsins þar sem sömu annmarkar munu koma í veg fyrir verkefnaflutning eftir sameiningu sveitarfélaga og standa í veginum nú, sum sveitarfélögin verða of lít- il, stærðarmunur yrði 200faldur, samkvæmt tillögum sveitarfélaga- nefndar en mætti varla vera meira en lOfaldur að mínu áliti. Vara við stórauknum afskipt- um jöfnunarsjóða Umdæmanefnd á Vestfjörðum leggur fram lítt rökstuddar tillögur, án samráðs við sveitastjómimar, en leggur því meir upp úr því að gera gagnrýnendur tillagnanna tor- tryggilega áður en tillögumar eru lagðar fram. Það stendur til að kjósa um það að færa þjónustuna frá fólkinu sem býr á fámennari svæðunum. Beðið er með tillögur um að leggja niður fámennari skóla. Ætlar ríkið einu sinni enn að fela sveitarfélögunum í landinu verkefni án þess að tekjur til að standa undir kostnaðinum fylgi með? Væri ekki rétt að kanna vilja kjósenda til þriðja stjórnsýslu- stigsins. Umræðan snýst, að því er virðist, um aukaatriði tilfinningalegs eðlis og ef spurt er um hverjar hugmyndir séu uppi um nýja verkaskiptingu milli ríkisins og sveitarfélaganna þá eru svörin á þann veg, að litlu eða engu þyrfti að breyta, til að gera þá verkaskiptingu að veruleika, öðru en verkaskiptalögum. I lokin vil ég vara menn við til- lögum um að stórauka afskipti jöfnunarsjóða af málefnum samfé- lagsins, reynslan sem við höfum ætti að verða okkur víti til varnaðar í þeim efnum. Eðlilegast er að tekjujöfnunin eigi sér stað í skatt- kerfinu en aldrei má ganga svo langt í tekjujöfnun að hagkvæmni njóti sín ekki og eða óljóst sé hvar fjármálaleg ábyrgð liggi í samfé- laginu. Súðavík 30. sept. 1993. Heiðar Guðbrandsson Nú líður óðum að kosningu um sameiningu sveitarfélaga sem fram fer 20. nóvember nk. Frek- ar lítil umræða hefur verið hér á Austurlandi undanfarið um undir- búning og kynningu málsins. Að sögn Bjöms Hafþórs Guð- mundssonar, framkvæmdastjóra hjá Samtökum sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi,SSA. verða haldnir kynningarfundir um sam- eininguna í lok mánaðarins í þeim sveitarfélögum þar sem kosið verður um sameiningu. Hver er þín skoðun eða ertu búin(n) að rnynda þér skoðun um Gaman væri að fá sendar inn línur frá lesendum Austra um málið, hvort sem menn eru sam- mála eða ósammála sameiningu sveitarfélaga. Skrifa mætti til dæmis um kosti og galla fyrir íbúa og hvað ávinnst og koma með spurningar t.d. til ráða- manna. Með von um góð við- málið ? fagtún Sornofil - hugtak fyrir þétt þak AUSTFIRÐINGUR! Býrð þú undir bárujárnsþaki með of litlum halla? Áttu lika bílskúr með steyptri, sléttri plötu? SARNAFIL er þakdúkur sem margir íslendingar eiga yfir höfði sér og líkar ágætlega. SARNAFIL er langtímalausn fyrir timburþök, steinþök og þaksvalir. ™ fagtún hf. Brautarholti 8 - Reykjavík Sími 91-621370 - Fax 91-621365 BYÐUR YKKUR VELKOMIN Óvenju fallegt, hagkvæmt og vel staðsett mlLLc SKÓLAVÖRÐUSTlG 30 • SÍMI 623544 WIR Wirsbo-PEX-rör Hitaþolin PEX-rör frá Wirsbo í Svíþjóð hafa verið seld hérlendis f um 15 ár. Wirsbo er leiðandi I framleiðslu á rörum og fylgihlutum fyrir neyslu- vatn (rör-í-rör), gólfhita og snjó- bræðslu. Allt viðurkennt efni. Leitið upplýsinga. ÍSLEIFUR JÓNSSON - meö þér i veitun vatns - BolholU 4. Sfmi 680340 fu680440 IOI Sendum í póstkröfu.

x

Austri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.