Austri - 24.11.1994, Síða 1
Áttahundruð til þús-
und jólatré felld í ár
í Hallormsstaðaskógi
Á bilinu 800 - 1000 jólatré verða
höggvin í Hallormsstaðaskógi fyrir
jólin og verða þau öll sett á markað
hér í fjórðungi. Þegar blaðamaður
hafði samband við Þór Þorfinnsson,
skógarvörð í byrjun viku lá fyrir að
fara í skóginn og velja jólatré fyrir
Kaupfélag Héraðsbúa en vinnan við
að höggva jólatré fyrir hinn hefð-
bundna heimilismarkað hefst upp úr
mánaðarmótum. Hefð er fyrir að
Kaupfélagið kaupi hæsta tréð sem
fellt er í skóginum fyrir jólin ár
hvert og taldi Þór, að fyrir valinu
yrði að þessu sinni rauðgrenitré, um
10 metra hátt. Hægt verður að velja
um þrjár mismunandi tegundir
jólatrjáa frá Hallormsstað, rauð-
greni, blágreni og stafafuru og eru
tré ætluð til heimilisnota frá 0,70 -
1,75 m. á hæð. Skógræktin verður
að þessu sinni með greinar frá Hall-
ormsstað til sölu fyrir jólin en fram
til þessa hafa þeir flutt inn greinar
sem verið hafa á markaði. Um 12
manns eru í vinnu hjá Skógrækt-
inni, en verið er að vinna girðingar-
efni fyrir Egilsstaðabæ sem á að
fara í gerði í kringum sundlaugina.
AÞ
Mynd þessa sendi Sigrún Jóhannsdóttir,Eiríksstöðum
Jökuldal í keppnina „Besta Ijósmyndin “ sem Austri stóð
jyrir á dögunum. Má sjá á myndinni að grassúra hefur náð
fótfestu í gömlum tréstaur og virðist dafna all vel, þar sem
hún virðist ná í vatn og næringu í glufum staursins.
Geðugt
fiskirí eftir
fjögurra
ára
ördeyðu
„Hér var geðugt fiskirí í síðustu
viku“ sagði Karl Sveinsson fisk-
verkandi og útgerðarmaður á Borg-
arfirði, en síðustu þrjá daga vik-
unnar var landað þar 27 tonnum.
Síðastliðin fjögur ár hefur verið
einmuna lélegt fiskirí á miðum
Borgarfirðinga og hafa sjómennim-
ir talað um steindauðan sjó. Að
sögn Karls hefur síðasta ár verið
með versta móti og hafði Fiskverk-
unin um mánaðarmótin september -
október tekið á móti 200 tonnum
upp úr sjó á móti 300 tonnum í
fyrra. Undanfamar vikur hefur afl-
inn verið að glæðast og hefur
veiðst töluvert af ýsu sem Karl
segir óvenjulegt á þessum tíma árs.
Hjá Saltfiskverkun Karls unnu að
jafnaði 5-6 manns í sumar, en
þessa síðustu daga hafa yfir 20
manns verið þar við störf. Frá
Borgarfirði róa 10 bátar. Ekki gaf á
sjó vegna brælu nú í byrjun viku,
en vonandi verður framhald á afla-
hrotunni. AÞ
Nýi aðflugsbúnaðurinn kemur
að góðum notum
Nýi aðflugsbúnaðurinn sem settur
var upp á Egilsstaðaflugvelli í byrj-
un októbermánaðar hefur komið að
góðum notum þann stutta tíma sem
hann hefur verið í notkun. Þrátt fyrir
að óvenju þokusamt hafi verið í
haust hefur varla fallið niður flug og
mjög lítið verið um seinkanir. Sjö ár
em nú liðin síðan bygging nýja
flugvallarins hófst. Upphaflega var
áætlað að hefja verkið árið 1988 og
ljúka því á fjórum árum. Stjómvöld
ákváðu síðan að hefja framkvæmdir
fyrr og var fyrsta skóflustungan tek-
in 27. nóvember 1987. Á bygging-
artímanum var ákveðið að flug-
brautin yrði gerð burðarmeiri og
byggð þannig að auðvelt yrði að
lengja hana síðar og lengdi það
verktímann nokkuð. Völlurinn var
formlega tekinn í notkun 25. sept-
ember 1993. Að sögn Ingólfs Arn-
arssonar, flugvallarstjóra, hefur
þotuumferð verið miklu meiri en
búist var við. Frá 25. september til
áramóta í fyrra lentu 3 þotur á vell-
inum og í ár eru þær orðnar 11. Vel
hefur gengið að afgreiða vélamar
sem flestar hafa millilent til að taka
farþega í leiguflugi. þá sagði
Ingólfur að Egilsstaðaflugvöllur
væri kominn á kort erlendra flugfé-
laga og hafa erlend flugfélög spurst
fyrir um völlinn, auk þess að þrjú
félög hafa sent fulltrúa sína hingað í
því augnamiði að athuga möguleika
á að nota völlinn sem varavöll fyrir
tveggja hreyfla þotur í Atlantshafs-
flugi. Aðspurður um væntanlega
samvinnu Brunavarna á Héraði og
Flugmálastjórnar um slökkvilið og
slökkvibúnað sagði Ingólfur að þau
mál væru í biðstöðu, þar sem ekki
fengist neitt fé til til þessara hluta
fyrr en 1996. Samvinna þessara að-
ila er þegar hafin og hefur tankbíll
frá Brunavömum verið á vellinum
þegar stærri vélar hafa lent þar.
Þessa dagana standa yfir breytingar
í flugstöðinni á húsakynnum þar
sem innritun fer fram og á þeim að
ljúka í þessum mánuði. Vonir
standa til að eftir áramót verði hafist
handa við að ljúka innréttingum í
biðsal og veitingaaðstöðu á annarri
hæð. AÞ
Það sem afer þessu ári hafa 11 þotu lent á Egilsstaðaflugvelli flestar að sœkjafarþega
í millilandaflugi. Myndin hér að ofan var tekin þegar þota með 168farþega af Austur-
landi var að komafrá Glasgow á dögunum. Austramynd MM
Loðnuflokkunar-
stöð hjá SR-mjöl
á Reyðarfirði
Þessa daganna er unnið að því að
koma upp flokkunarstöð hjá SR-
mjöl á Reyðarfirði. Að sögn Jóns
Inga Ingvarssonar verksmiðjustjóra
er ætlunin að flokka loðnu í vetur.
Venjulega hefst loðnufrysting í
byrjun febrúar. Hann sagði að
búið væri að steypa gmnn undir
200 fm húsnæði við löndunar-
bryggjuna. Það er Tréiðjan Einir
sem reisir húsið undir flokkunar-
tækin. Flokkunartækin sem verða 3
í húsinu eru fengin notuð að utan.
Jón segir að búið sé að koma fyrir
nýjum dælubúnaði á bryggjunni í
tengslum við flokkunarbúnaðinn
sem eru svokallaðar vakumdælur
sem soga hráefnið upp úr tönkum
skipa án þess að skemma hráefnið.
Flestar verksmiðjur sem flokka
loðnu era komnar með svona dæl-
ur. Jón sagði að með flokkunar-
búnaðinum ættu allir sem koma ná-
lægt vinnslunni að hagnast, bæði
fjárhagslega og í vinnusparnaði.
Með búnaðinum geta loðnu-
frystendur einbeitt sér að frysting-
unni þar sem handflokkun mun
hverfa. Það hráefni sem skilst frá
við flokkunina fer strax í bræðslu
en það er oft um helmingur af afla.
MM
þegar búið er að fella þau.
ejteipp