Austri


Austri - 13.07.1995, Qupperneq 2

Austri - 13.07.1995, Qupperneq 2
2 AUSTRI Egilsstöðum, 13. júlí 1995. Útgefandi: KSFA. Skrifstofa Austra Tjarnarbraut 19, 700 Egilsstaðir, pósthólf 173, sími 471-1984, fax 471-2284. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Kristjánsson. Útgáfustjóri: Sólveig Dagmar Bergsteinsdóttir. Biaðamenn: Arndís Þorvaldsdóttir og Marinó Marinósson. Auglýsingar: Sími 471-1984, Sigrún Lárusdóttir. Áskrift: Sími 471-1984, Sólveig Dagmar Bergsteinsdóttir. Verð í lausasölu kr. 150.- Áskrift kr. 125.- Prentun: Héraðsprent sf. Egilsstöðum, sími 471-1449 Austri kemur út á fimmtudögum. Aðsent efni þarf að hafa borist fyrir kl. 10:00 föstudaga. Efni skal skila á diskum eða vélrituðu. Austri er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Samhengi ríkisfjármála og atvinnuuppbyggingar Skuldir rrkissjóðs og sveitarfélaga eru um þessar mundir nálægt 238 milljörðum króna. Á undanfömum ámm hefur verið viðvarandi hallarekstur á ríkissjóði og þann halla þarf að jafna með lántöku erlendis eða innanlands og þau lán bera vexti eins og gerist á markaðnum hverju sinni. Því eru skuldir sveitarfélaganna einnig nefndar hér að þau þurfa einnig að leita inn á lánsfjármarkaðinn til þess að jafna þær, sé ekki dregið úr útgjöldum. Vandi þeirra hefur því áhrif í efnahagslífinu, rétt eins og fjármál ríkissjóðs. Afkoma sveitarfélaga hefur farið mjög versnandi síðustu árin. Kemur þar margt til, bæði auknar kröfur um framkvæmdir og þjón- ustu og þátttaka í atvinnulífinu. Þau vaxtagjöld sem falla á ríkissjóð árlega nema nú yfir 12 milljörðum króna og munu fara í 18 milljarða á næstu fjórum ámm verði þróunin viðlíka og verið hefur. Þetta er hrikaleg upphæð sem betur væri komin í öðru. Það er alveg ljóst að ef ekki verður spomað við fæti í rík- isfjármálum er verið að leggja afar þungar byrðar á framtíð- ina og því þyngri sem hallarekstur og lántökur halda lengur áfram í sama mæli og verið hefur. Vandinn verður sífellt verri viðfangs. Vissulega á ríkið verðmætar eignir á móti skuldum. Upp- bygging hefur verið gríðarlega mikil á síðustu áratugum. Það hefur orðið orkubylting í landinu og innlendir orkugjafar anna nú að langmestu leyti raforku og hitunarþörf lands- manna. Það hefur einnig orðið umhverfis- og samgöngubylt- ing með lagningu bundinna slitlaga í þéttbýli og miklum vegaframkvæmdum sem vissulega er þó hvergi nærri lokið. Það hefur orðið bylting í húsakosti skóla, í byggingu íþrótta- mannvirkja og í byggingu heilbrigðisstofnana og svona mætti lengi telja. Við eigum að hafa alla möguleika til þess að staldra við og finna út úr því með hverjum hætti er hægt að spoma við útgjaldaþenslunni hjá ríkissjóði. Þörfin fyrir opinbert fjármagn verður alltaf fyrir hendi en það verður að skoða það vel, hvaða verkefni eiga að hafa forgang. Með nú- verandi afkomu er einfaldlega ekki hægt að gera að gera allt fyrir alla. Áframhaldandi skuldasöfnun opinberra aðila leiðir til auk- innar samkeppni um lánsfé og hækkandi vaxta. Um leið er þrengt að möguleikum atvinnufyrirtækjanna til þess að byggja sig upp og möguleikum nýrra fyrirtækja að komast á legg. Á hvorutveggja er þörf, ef takast á að skapa störf fyrir þá sem koma inn á vinnumarkaðinn og minnka atvinnuleys- ið. Opinber þjónusta hefur vaxið hröðum skrefum á síðustu árum. Þess er ekki að vænta að þróunin verði viðlíka næstu áratugina. Önnur framleiðslu- eða þjónustustarfsemi verður að koma til. Slík framþróun verður ekki nema almenna atvinnulífið í landinu fái svigrúm. Aðhaldssöm stefna í ríkisfjármálum verður að veita það svigrúm. Það er farsælast fyrir þjóðina og atvinnulífið þegar til lengri tíma er litið. J.K. Sýning á skúlptúrum í Hallormsstaðaskógi Um næstu helgi, 14. - 17. júlí, verður haldin sýning í Hallorms- staðaskógi á höggmyndum (tréút- skurð) eftir 17 íslenska listamenn. Sýningin er haldin að frumkvæði Skógræktarinnar á Hallormsstað en myndlistarmennirnir Helgi Þorgils Friðjónsson og Hannes Lámsson hafa haft umsjón á vali þátttakenda á sýningunni. Tilgangur sýningarinnar er að vekja athygli á skóginum og þeirri starfsemi sem þar fer fram. Jafn- framt er verið að gefa almenningi kost á að kynnast list í óvenjulegu umhverfi. Markmið sýningarinnar er einnig að gefa listamönnum kost á að vinna út frá íslenskum efnivið en flest verkin, sem unnin em úr lerki úr skóginum, tengjast honum á einn eða annan hátt. Sýningunni verður valin staður meðfram gönguleiðum um trjásafn skógar- ins, sem er það stærsta á Islandi. Á- kveðið var að allir listamennirnir fengju tveggja metra lerkibol sem grunn að listaverki. Þeir hafa síðan útfært sínar hugmyndir, bætt við bolinn, sagað hann niður eða skorið út. Verkin hafa verið unnin á vinnustofum í vor og í sumar en nokkrir hafa verið að skapa verk sín í þessari viku í Hallormsstaða- skógi. Listafólkið sem verða með verk á sýningunni em: Kristján Guðmundsson, Magnús Pálsson, Halldór Ásgeirsson, Þorvaldur Þor- steinsson, Helgi Þ. Friðjónsson, Hannes Lámsson, Gunnar Ámason, Kristinn G. Harðarson, Sólveig Að- alsteinsdóttir, Valborg Ingólfsdótt- ir, Finna B. Steinsson, Erling Klin- genberg, Ólafur Gíslason, Jóhann Eyfells, Inga Svala Þórisdóttir, Inga Jónsdóttir og Ingileif Thor- lacius. MM Breið- dalsá opnuð Fjórir laxar veiddust í Breiðdalsá fyrstu viku veiðitímans en áin var opnuð þann 30. júní síðastliðinn. Laxamir vom vænir eða á bilinu 10 -15 pund. Á sama tíma hefur verið mjög góð silungsveiði í ósnum og er mesta veiði eftir daginn 32 sil- ungar. í Breiðdalsá em leyfðar 5 stangir á dag og eru veiðileyfi seld í Hótel Bláfelli á Breiðdalsvík. Framsóknarfélag Mánudag 14. ágúst Spjall um bæjarmálin Bæiarfulltrúarnir verða á staðnum s4Ctin veC&otmUn *í4ecit á HJ Austrahusinu, Tjjarnarbraut I9, kjallara

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.