Austri


Austri - 13.07.1995, Qupperneq 3

Austri - 13.07.1995, Qupperneq 3
Egilsstöðum, 13. júlí 1995. AUSTRI 3 Stríðsárasafnið á Reyðarfírði opnar á laugardag Næstkomandi laugardag opnar Stríðsárasafnið á Reyðarfirði sýn- ingu í svokölluðum Spítalakampi sem er efst í bænum við Búðareyr- ará. Sýningin ber yfirskriftina “Samskipti hers og þjóðar”. Breski herinn var með spítala á þessum stað á stríðsárunum. Að sögn Isaks Olafssonar, sveitarstjóra hafa þrír nemendur við Háskóla Islands unn- ið við söfnun gagna allt síðastliðið ár og væri sú vinna að skila sér til baka, því safninu væri að berast ýmsar gjafir um þessar mundir. Hann sagði að safnið væri enn- fremur á höttunum eftir gömlum húsmunum frá þessum sama tíma s.s. borðum, stólum, eldhúsmunum svo eitthvað sé nefnt. Sýningargest- ir fá afhent kort af nágrenni Reyð- arfjarðar þar sem merkt hafa verið inn staðir sem vert er að skoða. I síðustu viku komu þeir Þór Magnússon, þjóðminjavörður og Sturla Böðvarsson. formaður þjóð- minjaráðs í heimsókn og skoðuðu aðstæður. Þess má geta að í tengsl- um við opnun Stríðsárasafnsins verður síðar um kvöldið sama dags haldin skemmtun í Félagslundi þar sem Leikfélag Reyðarfjarðar og Fjarðavísnafélagið munu skemmta fólki með skemmtiatriðum frá stríðsárunum. Sýningin í Spítala- kampinum verður opin alla daga til 31.ágústnk. MM Þar sem ekki var búið að stilla upp munum þegar Ijósmyndara Austra bar að stilltu iðnaðarmennirnir sem voru að standsetja salinn sér upp með nokkra hluti sem verða á sýningunni. Hálf milljón til kaupa á snjóflóðaýlum Nýlega færði Félag austfirskra svo þessi gjöf ætti að koma að góð- kvenna björgunarsveitum Slysa- um notum. varnafélags íslands á Austurlandi Framsóknarmenn og aðrir vinir og velunnarar flokksins, hafíð þið komið í Viðfjörð? Kjördæmissamband Framsóknarmanna á Austurlandi býður ykkur með í Viðfjörð sunnudaginn 30. júlí n.k. gegn vægu gjaldi. Farið verður frá Egilsbúð, Neskaupstað kl. 13 og siglt til Viðfjarðar. Fararstjóri verður Þórarinn V. Guðnason. Þegar komið verður á áfangastað munu hinir stórsnjöllu og landsþekktu matreiðslumenn Halldór og Jón grilla pylsur og snúa sneiðum á hefðbundinn hátt með dyggum stuðningi eiginkvenna sinna Sigurjónu og Möggu. Ferðin er dagsferð en umhverfi Viðfjarðar og Hellisfjarðar verður skoðað. Siglt verður heim seinnipart dagsins en þeir sem vilja reyna meira á sig geta gengið inn til Norðfjarðar í góðra manna hópi (u.þ.b. 3 klst. gangur). Rútuferðir verða frá söluskála KHB, Egilsstöðum og frá upplýsingamiðstöðinni á Höfn. Allar nánari upp- lýsingar og skráningar í ferðina eru hjá formönnum Framsóknarfélaganna á hverjum stað og hjá Þórhöllu í síma 471-2585. Að sjálfsögðu eru allir velkomnir með. f.h. KSFA Þórhalla Snæþórsdóttir 500 þúsund krónur að gjöf til kaupa á snjóflóðaýlum. Gjöfin er eins og fyrr segir ætluð til kaupa á snjóflóðaýlum fyrir sveitirnar á Austurlandi en björg- unarsveitimar á Austurlandi eru 13 að tölu. Snjóflóðaýlur geta skipt sköpum í snjóflóðaleit, fjallaferðum og ef fólk grefst undir fargi. Tækið er bæði sendi- og móttökutæki. Dæmin hafa sýnt að í snjóflóði er það tíminn sem skiptir höfuðmáli og getur slíkt tæki ráðið úrslitum um björgun. Snjóflóðaýlan vinnur þannig að það sendir stöðugt út merki sem á fljótlegan hátt er hægt að staðsetja og auðveldar því alla leit. Félag austfirskra kvenna var stofnað árið 1942 og var tilgangur- inn í upphafi að viðhalda kynnum kvenna frá Austurlandi sem fluttst höfðu til höfuðborgarinnar. Fljót- lega sneru félagskonur sér að því að styrkja austfirska sjúklinga sem þurftu að dvelja yfir jól á sjúkra- húsum. Enn í dag bera þær um- hyggju fyrir sveitungum sínum og styðja með ýmsu móti. Félagskonur eru um 100 talsins. í vetur kom fram í útvarpsviðtali, við austfirskan björgunarsveitar- mann, að björgunarsveitir á Austur- landi vantaði m.a. snjóflóðaýlur ýóðati cCayiíUt ~ ýáðatt dayúut ^etfðan.- ýóðcut, dayúut Setfð-Cd^jönðcci Islandsflug fafun s4u&t£cn<íúty<z Flug alla daga vikunnar milli Reykjavíkur og Austurlands - Akstur til og frá Reyöarfirði og Eskifirði alla virka daga Nýir umboðsmenn: Eskifjörður: Kristinn Aðalsteinsson Verslunin Nýjung, sími 476 1105 Reyðarfjörður: Jónas Pétur Bóasson Bíley, sími 474 1453 Seyðisfjörður: Davíð Gunnarsson Essóskálinn, sími 472 1240 Sááent %ex - eddzent þex íslandsflug - “SáHue 4úfcen. 'fexð en ódtpiaAt. /íðtci fem^tcc aíiiti <zð dtnya facCCt fcvtyfaCd... e*t 4WL átMt íslandsflug. ödýuzAt Sye. ~ TQetý. - £$4. aðeittd 6st. 7.900- Aðrir umboðsmenn á Austurlandi eins og áður: _ Egilsstaðir- r'eneittuCe^ ftjéttítAta Ásta Sigfúsdóttir, Blómabær, sími 471 2333 Neskaupstaður: Magni Kristjánsson, Tröllanaust, sími 477 1797 íslandsflug leitast við að þjóna Austfirðingum í rúmlega þrjú ár. Wlóttökurnar sýna að þörf var á nýjum valkosti. ISLANDSFLUG ditia ftuerfélcuýið med lifvuc AýimiXtunn

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.