Austri


Austri - 13.07.1995, Side 6

Austri - 13.07.1995, Side 6
6 AUSTRI Egilsstöðum,13. júlí 1995. Sjóður Sigríðar J. Kjerúlf Árið 1991 ánafnaði Sigríður J. Kjerúlf eigur sínar Vistheimilinu Vonarlandi sem nú hefur verið breytt í sambýli. Fjármagnið hefur verið ávaxtað til þessa en í nóvem- ber á síðastliðnu ári setti félags- málaráðuneytið reglu um vörslu og ráðstöfun á arfi Sigríðar J. Kjerúlf. I annarri grein reglnanna segir: “Arfinum skal varið til þess að styrkja starfssemi Vonarlands á því sviði sem ríki og sveitarfélög veita ekki fé til, bæði til sambýlisins sem heildar svo og einstakra íbúa þar, og til bflakaupa, reksturs bfls, ferðalaga íbúanna og fleira. Skal þess gætt að ráðstöfun fjársins hafi ekki í för með sér framhaldsskuld- bindingar á einhvem hátt fyrir nk- ið. Auk Vonarlands er heimilt að ráðstafa arfinum til þroskaheftra á Austurlandi til kaupa á innbúi til þeirra sem em að stofna eigið heimili, enda rýrir það í engu út- hlutun samkvæmt 2.gr.” Sam- kvæmt reglunum mun úthlutunar- nefnd sjá um úthlutanir. Sú nefnd hefur nú þegar tekið til starfa og verður úthlutað í fyrsta sinn í sum- ar. I nefndinni eiga sæti þnr fulltrú- ar, Unnur Fr. Halldórsdóttir, for- stöðukona sambýlanna að Tjamar- braut 39a-b Egilsstöðum, Sigurlaug Stefánsdóttir, Egilsstöðum, tilnefnd af Félagsmálaráðuneyti og Ástvald- ur Kristófersson, Seyðisfriði, til- nefndur af svæðisráði. Nánari upp- lýsingar veita Unnur Fr. Halldórs- dóttir og Soffía Lámsdóttir í s: 471-1833. Unnur Fr. Halldórsdóttir, formaður. Hjólreiðahátíð á Austurlandi um næstu helgi Helgina 15.-16. júlí verður haldin hjólreiðahátíð á Austurlandi. Islands- mót í fjallahjólreiðum verður haldið á Hallormsstað laugardaginn 15. júlí og verður keppt í 6 flokkum og í fjómm vegalengdum. Bikarmót í götuhjólreiðum verður sunnudaginn 16. júlí og verður Frá Islandsmeistaramótinu 1994. hjólað frá Egilsstöðum til Neskaup- staða. Leiðin, sem meistaraflokkur mun fara er 71 kflómetrar en B- flokkur, sem er 17 ára og eldri, kvennaflokkur og unglingaflokkur 48 kílómetra eða frá Egilsstöðum til Eskifjarðar. Á sunnudag verður fjölskylduhjól- Ljðsmynd Jón Ingi Sigvaldason. Upplifun í skjóli skógarins ^\\,EIK HtýS/ö "iHérfyrir austan" reiðakeppni á Egilsstöðum (vega- lengd 5 kílómetrar). Er sú keppni stillt inn á að allir í fjölskyldunni geti tekið þátt í keppninni, jafnvel með bamið í barnastólnum. Bjarni Svav- arsson, íslandsmeistari í hjólreiðum, sem leit við hjá ritstjórn Austra í vik- unni, sagði að um 20 hjólreiðamenn úr Reykjavík ætluðu að mæta á stað- inn til að taka þátt í mótinu. Hann sagði að leiðimar sem famar yrðu væru alveg meiriháttar. í Hallorms- stað væm t.d. aðstæður á heimsmæli- kvarða og gæfu mikla möguleika fyrir fjallahjól. MM MOLDVARPA Nú er skurðgrafan óþörf Nú þarf ekki að eyðileggja malbikið Með moldvörpunni leggur þú lögn neðan- jarðar án alls óþarfa jarðrasks og óþarfa kostnaðar sem gröftur hefur í för með sér. Leitið upplýsinga Ofnasmiðja Björns Oddssonar Egilsstöðum, símar471 1665, 852 2660 og 852 1916 BÆTT HEILSA og betra líf Umsjón: Sigurborg Kr. Hannesdóttir, sími 12143 GRÆNMETIA GRILLIÐ Eins og veðrið hefur verið hér á Héraði undanfama daga, er ekki hægt að efast um að hið langþráða sumar er komið. Á kvöldin og um helgar heyrist sláttuvélaniður um allt og grill- ilmurinn fyllir loftið. Við mann- eskjurnar emm eins og mold- vörpur sem eru að skríða út úr holunni, nema hvað að einmitt núna notum við tækifærið til að “molvarpast” í garðverkunum. Grannar hittast við útiverkin og þegar hlýnar í veðri er eins og allt verði svolítið hlýrra í mann- lífinu. Og það er um að gera að njóta alls þessa, og upplifa augnablikið í allri sinni dýrð. Já, grillið er ómissandi hluti af sumarlífinu, og í dag ætla ég að fjalla lítillega um grillun á græn- meti. Flestir hafa þann hátt á þegar grillað er, að setja kartöflur á kolin til að hafa sem meðlæti með kjötinu. Hitt vita kannski ekki allir, að hægt er að grilla allskyns grænmeti, og það er hreinasta lostæti. Svo ég nefni það helsta, þá em það maís- kólfar, tómatar, paprikur, laukur, púrrulaukur og hvítlaukur. Allur laukur verður sætur við grillun, og sérstaklega verður hvítlaukur- inn ljúffengur - eða það finnst mér að minnsta kosti. Kartöflunum er pakkað í álp- appír og þær settar beint á heit kolin. Þar þurfa þær að vera allt frá hálftíma eða lengur, eftir stærð kartaflnanna og hversu heitt er í kolunum. Lauk og hvít- lauk finnst mér best að setja líka beint á kolin og án þess að pakka þeim inn. Þeir líta að vísu ekki sérlega fallega út á eftir, en það er bara ysta lagið sem “brennur”, laukurinn sjálfur verður safaríkur og ljúffengur. Eins má setja laukinn í álpappír og kannski svolitla smjörklípu með, fyrir þá sem vilja veita sér slíkan munað. Maískólfar og púrrulaukur (í heilu lagi) eru sett á grindina og þau eiga að fá dökkar rendur, jafnvel svo að virðist brennt. Það á reyndar sérstaklega við um púrmlaukinn. Paprikan og tómatamir fara líka á grindina. Paprikan verður mjúk og ljósari á litinn, en tómat- arnir mega vera þar til hýðið byrjar að springa. Svo er ágæt hugmynd að verða sér úti um trépinna og þræða upp á þá ca. 2cm kúrbítssneiðar (- zucchini), sveppi og lauk. Þetta er svo allt penslað með olíu, annað- hvort ólífuolíu eða til þess gerðri grillolíu. Pinnamir þurfa að vera drjúga stund á grillinu, eða þar til kúrbíturinn er orðinn mjúkur í gegn. Með öllu þessu lostæti er upplagt að hafa góðar kaldar sósur. Það má t.d. benda á að klippa niður gras- lauk og blanda saman við kotasælu. Grísk jógúrtsósa með hvítlauk, fínt saxaðri agúrku og hreinni jógurt er lflca bæði holl og góð. Eins er hægt að kaupa tilbúna gríska hvítlauks- sósu, sem fæst í bréfum og er blandað í sýrðan rjóma (10% að sjálfsögðu!). I eftirmat er svo tilvalið að grilla banana, sem settir eru á grindina. Venjulega er hellt súkkulaðisósu yfir þá og rjóma þar á ofan. Hollari útgáfa er að nota þess í stað ristaðar möndlur og hunang. Einnig mæli ég með svokallaðri Tahini sósu, sem búin er til úr sesamfræum, með banönunum. Eg veit reyndar ekki til að hún fáist í matvöruverslunum á svæðinu, heldur eingöngu í heilsubúðum á Akureyri eða í Reykjavík. Já, góðir lesendur, þetta eru bara nokkrir punktar um grillun á græn- meti, og ekki ætla ég að halda því fram að ég sé neinn sérfræðingur á því sviði. Það er hins vegar ákaf- lega gaman að gera tilraunir, og þetta er góð leið til að draga úr kjöt- neyslu án þess að það komi niður á bragðlaukunum eða sælkeratilfinn- ingunum. Og ilmurinn er ekki síðri en af nautasteikinni. Gleðilegt grænmetis- grillsumar! Verðlaunahafar ásamt Jóni Guðmundssyni framkv.stj. Austmats, lengst til vinstri. Ljósmynd: Arna Sigurðardóttir. Opna Aust- matsmótið Opna Austmatsmótið fór fram á Ekkjufellsvelli 8.-9. júlí og urðu úr- slit eftirfarandi: í Karlaflokki án forgjafar sigraði Halldór Birgisson GHH 146 högg, Þorsteinn Hall- grímsson GV 146 og Finnur Sveinsson GR 147 högg. Halldór sigraði í annarri holu í bráðabana. Þorsteinn setti vallarmet er hann lék á 70 höggum en Finnur setti vallarmet á 9 holum 8. júlí er hann lék á pari vallarins, 33 höggum. I Karlaflokki með forgjöf sigraði Kristinn Ástvaldsson GFH 125 högg, Haukur Kjerúlf GFH 126 högg og Sigurður Elís Rögnvalds- son GFH 128 högg. í Kvennaflokki án forgjafar sigraði Laufey Odds- dóttir GE 192 högg, Emelía Gúst- afsdóttir GFH 199 högg og Dagmar Óskarsdóttir GE 203 högg. Kvennaflokkur með forgjöf: Emel- ía Gústafsdóttir GFH 143 högg, Dagmar Óskarsdóttir GE 147 högg og Laufey Oddsdóttir GE 148 högg. Unglingaflokkur án forgjaf- ar: Birgir Már Vigfússon GHH 156 högg, Guðgeir Jónsson GN 163 og Baldur Jónsson GE 173 högg. Unglingaflokkur með forgjöf: Birg- ir Már Vigfússon GHH 122 högg, Guðgeir Jónsson GN 129 högg og Baldur Jónsson GE 135 högg. Þátttakendur voru alls 61. Þar sem enginn keppandi fór holu í höggi bíður nautið sem Austmat hf. bauð í verðlaun fyrir holu í höggi. ■ ■ Matarfiíaðborð öíí íaugardagskvöíd Kaffifiíaðborð á sunnudögum Afía daga á ía carte HALLORMssTAÐ Sundíaugin er opin aíía dagafrá L 13-19 nema sunnud, ojj fimmtucí. frá Lf. 13-21

x

Austri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.