Austri - 15.02.1996, Blaðsíða 1
Hótelbygging í
burðarliðnum
Ákveðið hefur verið að ráðast í
hótelbyggingu á Egilsstöðum og
verður stofnað hlutafélag um
bygginguna. Þegar hafa fimm að-
ilar samþykkt aðild: Ferðaskrif-
stofa Islands, Ferðamiðstöð Aust-
urlands hf. KHB, Sjóvá Almenn-
ar og Egilsstaðabær. Hlutafé
verður um 75 milljónir króna sem
er helmingur af áætluðum bygg-
ingarkostnaði. Fyrirhugað er að
framkvæmdir hefjist fljótlega en
áætlað er að taka bygginguna í
notkun um miðjan júní á næsta
ári. I fyrsta áfanga hússins verða
36 tveggja manna herbergi ásamt
tilheyrandi þjónusturými og eru
möguleikar á að stækka bygging-
una um helming. Frumdrög af
teikningum eftir Björn Kristleifs-
son arkitekt liggja fyrir. I umræð-
unni er að hótelið rísi í miðbæ
Egilsstaða en fleiri möguleikar
hafa verið nefndir, en eins og
málin standa í dag hafa engar
ákvarðanir verið teknar þar að
lútandi. Hótelið verður leigt út og
hefur verið ákveðið að Ferða-
skrifstofa íslands (Hótel Edda)
taki það á leigu næstu árin. í bæj-
arstjórn á Egilsstöðum var tekist
á um suma þætti málsins og má
lesa nánar um það í bæjarmála-
dálki á bls. 6.
Blíðviðrið í vetur hefur gert það að verkum að gefið hefur að líta menn við störf sem
oftar eru unnin að sumarlagi. Hér ,flikkar“ Jón Jónsson vélstjóri á rœkjuskipinu
Gesti upp á fleyið, en báturinn er nú í slipp hjá Vélsmiðjunni Stál á Seyðisfirði.
Hringvegur Jökulsá - Víðidalur
Samið við Héraðsverk
Stærsta verkefni í vegagerð sem austfírskt verktakafyrirtæki
hefur fengið síðan að Oddskarðsgöngin voru byggð
Samið hefur verið við Héraðsverk
á Egilsstöðum um byggingu 13,3
km kafla á hringveginum, þ.e. Jök-
ulsá - Víðidalur. Alls bárust 24 til-
boð í verkið og var tilboð Hérðas-
verks hið 7. lægsta, en það hljóðaði
upp á 99,391,000,- eða 61, 36 % af
kostnaðaráætlun sem er kr.
161,955,700.- Vegarkaflinn Jökulsá
- Víðidalur er stærsta verkefni í veg-
agerð sem austfirskt verktakafyrir-
tæki hefur tekist á hendur síðan að
Oddskarðsgöngin voru byggð. Hér-
aðsverk hefur öðlast töluverða
reynslu í nýbyggingu vega og hefur
unnið að slíkum verkefnum fyrir
Vegagerðina á Berufjarðarströnd, í
Heiðarenda, Oddskarði, Jökulsábrú
og við Eiða. Fyrirhugað er að fram-
kvæmdir hefjist í júní n.k. og er
áætlað samkvæmt samningum að
fyllingum verði lokið og vegur
kominn með burðarlagi á 9,4 km
kafla þann 15. október n.k. Héraðs-
verk hefur hins vegar boðist til að
ljúka fyllingum og gerð burðarlags
að fullu næsta haust þannig að hægt
verði að taka allan veginn í notkun
þá þegar. Áætlað er að það verk
kosti 15-20 milljónir og verður það
fjármagnað af verktaka með stuðn-
ingi Búnaðarbankans. Sumarið
1997 verður síðan lögð einföld
klæðning á veginn og á því verki að
ljúka fyrir 1. september.
Að sögn forsvarsmanna Héraðs-
verk er mikil akkur í að fá þetta
verk. Um 15-20 vinnuvélar verða
á svæðinu og er fyrirséð að skipta
þarf út eldri vélum að hluta fyrir
nýrri og öflugri tæki. Verkinu fylgir
mikil tilfærsla á efni. Um 300 þús-
und rúmmetrar af efni fara í fylling-
ar og rúmir 57 þúsund rúmmetrar í
burðarlag. Þá verður klæðning sam-
tals um 80 þúsund fermetrar og frá-
gangur fláa og skerðingarsvæða um
265 þúsund fermetrar. Á milli 20 og
30 manns fá vinnu við verkið og
verður að öllum líkindum unnið á
vöktum til að nýta tímann sem best.
Miklu skiptir að hægt sé að hefja
vinnu strax í júní en menn óttast að
mikið frost í jörðu kunni að hamli
því að verkið geti hafist á tilskyld-
um tíma.
Héraðsverk var á sínum tíma
stofnað af vinnuvélaeigendum á
Héraði í tengslum við uppbyggingu
flugbrautar á Egilsstöðum. Stjórn
fyrirtækisins skipa eftirtaldir:
Ingólfur Bragason, formaður, Einar
Bjarnason, Helgi Hrafnkelsson,
Rúnar Kjartansson og Sigurþór Sig-
urðsson. Framkvæmdastjóri er
Sveinn Jónsson, verkfræðingur.
IF©§juo[p©siir©aoiiafe©[p(pmiQ
ffiflpxálílGr li'ií (SQQíajifi
feQ§i©aQfii(!j]
ASalinngangur
Svona á ný hóíelbygging á Egilsstöðum að líta út samkvœmt frumdrögum af teikning-
um.
Hljómsveit
/ /
Arna Isleifssonar
Á leið í
víking
Hljómsveit Árna ísleifssonar
bregður undir sig betri fætinum í
vikulokin og heldur til Svíþjóðar
þar sem hún mun leika fyrir dansi á
Þorrablóti Islendingafélagsins í
Lundi. Hljómsveitina skipa: Ámi Is-
leifsson, djassgoði með meiru, Fá-
skrúðsfirðingarnir Jóhannes Péturs-
son og Jóhann Midjörd og Stöðfirð-
ingurinn Garðar Halldórsson. Til-
boðið um að spila í Svíþjóð kom
mjög óvænt, en Fáskrúðsfirðingar
sem þar eru búsettir og þekkja
hljómsveitina frá fyrri tíð munu hafa
bent á þá félaga, sem undireins
ákváðu að láta slag standa og taka
boðinu. Að sögn Garðars verður
lagavalið fjölbreytt, rokk, ról og
blús og svo auðvitað görnlu dans-
arnir.
Loðna fryst
allan sólar-
hringinn
Hjá Búlandstindi á Djúpavogi er
nú unnið allan sólarhringinn við
loðnufrystingu og ganga á milli
fimmtíu og sextíu manns vaktir. Að
sögn Jóhanns Þórs Halldórssonar,
framkvæmdastjóra, hefur hrogna-
prósenta náð því lágmarki sem
krafist er fyrir Japansmarkað og
fryst hjá Búlandstindi á fullum af-
köstum, auk þess að pakkaðri
loðnu er keyrt til Breiðdalsvfkur
þar sem hún fer í frystingu. Það er
Þórshamar Gk sem sér vinnslunni
fyrir hráefni og höfðu á mánudag
borist um þrjú þúsund og sex hund-
ruð tonn af loðnu til Djúpavogs og
búið var að lrysta um tólf hundruð
tonn. Allur bolfiskur af smábátum
er fluttur til Breiðdalsvíkur og unn-
in þar en sama tilhögun var á með-
an á síldarvertíð stóð í haust. Þegar
blaðið fór í prentun var Þórshamar
á leið til hafnar með fullfermi.